Vikan - 14.12.1989, Blaðsíða 69
TEXTI: BRYNDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Öm Garðarsson í hópi vaskra kvennna sem æfa hjá Bertu í vaxtarræktarstöðinni
Æfingastudio — og öll ætla þau að vera í hollustunni í hádeginu í vetur.
Nokkuð er um liðið síðan
við kynntum matreiðslu-
meistarana okkar í Fram-
anda-klúbbnum sem sjá
um matarkortin okkar
góðu hér í Vikunni en þess
má geta að í lok þessa árs
verða kortin orðin 88
talsins. Klúbburinn hefúr
það að markmiði að brydda
upp á nýjungum í matar-
gerð, nota ætíð ferskt hrá-
efni og nýta það hráefni
sem býðst á mismunandi
árstíðum. Skemmst er firá
því að segja að töluverðar
breytingar hafa orðið á
högum flestra Framanda-
manna frá því við sögðum
frá þeim síðast og er ætlun-
in að bæta hér úr - um leið
og við kynnum veitinga-
stað sem er í eigu tveggja
Framandamanna, Snorra B.
Snorrasonar og Sturlu
Birgis, og segjum frá öðr-
um nýjum í Keflavík þar
sem Framandamaðurinn
Sverrir Halldórsson sér um
matseldina, auk þess sem
þessir þrír elda fyrir okkur
hátíðarmatinn í ár.
Ef við förum eftir þeirri röð
(f.v.) sem matreiðslumeistar-
arnir eru í hér á myndinni er
það af Ásgeiri H. Erlingssyni að
segja að hann hefur starfað á
veitingastaðnum Alexandre í
Nimes í Frakklandi undanfarið
en er nýkominn heim til starfa
á Holiday Inn. Sturla Birgis
starfar á og rekur veitingastað-
inn Punktur og pasta ásamt
Snorra Birgi Snorrasyni, eins
og segir nánar ffá hér á eftir.
Jóhann Jacobsson er yfirmat-
reiðslumaður á Holiday Inn.
Francois Louis Fons sér til þess
að Akurnesingar fái gómsætan
mat því hann er yfirmat-
reiðslumeistari á Hótel Akra-
nesi. Jóhann Sveinsson sér um
matseldina á Sælkeranum í
Austurstræti. Snorri er á
Punkti og pasta. Örn Garðars-
son er yfirmatreiðslumaður á
Flughótelinu í Keflavík. Þórar-
inn Guðmundsson er mat-
reiðslumaður á þeim vinsæla
stað MúlakafR. Sverrir Hall-
dórsson sér um matseldina á
nýjum veitingastað í Keflavík
sem heitir Ráin og
sagt er nánar ffá hér á
eítir. Á myndina vant-
ar Bjarka Hilmarsson,
sem er enn að vinna
á Tahiti, en hann er
væntanlegur heim eft-
ir áramótin og fá
Vikulesendur þá
væntanlega að njóta
þess sem hann hefur
lært í þarlendri matar-
gerð, sömuleiðis gest-
ir Flughótelsins í
Keflavík því þar mun
Bjarki taka til starfa.
Þorkell Garðarsson er
yfirmatreiðslumaður á Lækjar-
brekku og þar hefur Guð-
mundur Halldórsson einnig
starfað síðan hann kom ífá
Frakklandi fyrir rúmu ári. Úlfar
Finnbjörnsson er á nýja mexí-
kanska matstaðnum Bandito á
Hverfisgötunni. Þess má einn-
ig geta að franska sendiráðið
hefur ráðið klúbbinn til að sjá
um allar veislur sendiráðsins.
HOLLUSTA f KEFLAVÍK
Eins og fyrr segir er Örn
Garðarsson yfirmatreiðslu-
maður á Flughótelinu í Kefla-
vík og í byrjun desember tók
hann upp á þeirri nýjung í
samvinnu við vaxtarræktar-
stöðvarnar Hjá Önnu Leu og
Bróa, Æfingastudio og Perlu í
Keflavík að bjóða upp á holl-
ustufæði í hádeginu. Þar er um
að ræða holla og góða græn-
metis- og baunarétti, ferska
ávexti, auk annarra léttra rétta,
svo sem pastarétta úr heil-
hveiti eða blönduðu hveiti.
Þarna eiga allir að geta fengið
eitthvað við sitt hæfi — jafnvel
þó þeir séu ekki í megrun —
því einnig er boðið upp á hefð-
bundna fæðu en þess vandlega
gætt að hún sé holl og heilsu-
samleg. Þorkell og Snorri ætla
að vera Erni innan handar í
byrjun og einnig ætlar fyrir-
tækið Heilsa h/f, sem rekur
verslunina Heilsuhúsið, að
kynna vörur sínar. Heilsufæði í
hádeginu verður 4—5 daga vik-
unnar og verður haldið áfram
með þessa nýbreytni eins
lengi og áhugi er fyrir hendi.
66 VIKAN 25. TBL.
1989