Vikan - 31.05.1990, Side 2
FORSfÐAN
Forsíöustúlkan heitir Arielle
Mabilat, er frönsk, en býr með
fslenskum pilti í Breiðholti.
Vikan birtir viðtal við Arielle á
bls. 20 og kemur þar m.a. fram
að þrátt fyrir að stúlkan sé
fædd einhent hefur það ekki
komið í veg fyrir að hún legði
stund á fyrirsaetu- og sýningar-
störf. Fyrir forsíðumyndatök-
una farðaði Margrét Bára
Magnúsdóttir hana með nýju
línunni frá Dior. Myndina tók
Maggi.
ÍSLENSKUR
6 FIÐLULEIKARI
hlaut á dögunum eftirsóknar-
verð verðlaun.
a/ HINNVELHEPPNAÐI
ZÖ ÍSLENDINGUR
í sérhverju samfélagi er ríkj-
andi ákveðið gildismat eða
„ímynd um manninn". Vikan
veltir fyrir sér þeirri spurningu,
hvert gildismatið kann að vera
hér á landi.
28 KYNDULDIR
Ævar R. Kvaran rifjar upp á-
stæðu þess að dr. Sigmund
Freud nefndi hið óhuganlega
afbrigði óeðlilegrar ástar milli
náskyldra ödipusduld.
íoPOR
starfa í afar mörgum tilfellum
saman á tónlistarsviðinu hér á
landi. Vikan ræddi við fjögur
pör sem þekkt eru fyrir slíkt
samstarf. Rætt er við Ellen
Kristjánsdóttur og Eyþór
Gunnarsson, Rúnar Júlíusson
og Maríu Baldursdóttur, Svan-
hildi og Ólaf Gauk og loks Finn
Eydal og Helenu Eyjólfsdóttur.
1 8 AUÐUR HARALDS
skrifar síðari grein sína fyrir Vik-
una um yfirgengilegt flóð sjón-
varpsauglýsinga á Ítalíu og ger-
ir góölátlegt grin að öllu saman
eins og henni einni er lagið.
23 GRETAGARBO
skildi eftir sig umtalsverð auð-
ævi er hún lést fyrir skömmu.
Vikan segir frá bróðursyni
hennar, Áke Fredriksson, sem
er líklegur erfingi hennar.
24 ÖRNÓLFURt
VALDIMARSSON
er lýsandi dæmi þess að
„sjaldan fellur eplið langt frá
eikinni". Hann er sonur hins
þjóðkunna skíðakappa Valdi-
mars örnólfssonar og hefur
svo sannarlega fetað í fótspor
(eða eigum við að segja
skíðafar) föðurins.
er kvikmynd sem Bíóhöllin hóf
nýverið sýningar á. Vikan seg-
ir frá þessari léttu og skemmti-
legu mynd þar sem Richard
Gere fer með aðalhlutverkið.
34 SMÁSAGAN
Fyrirmyndarstúlkan er saga
um stúlku sem vann á viku-
blaðinu Hamingjusama heimil-
iö. Skyndilega var hún orðin
miðpunkturinn í áhugamálum
allra. Hún var stúlkan sem átti
að bjarga blaðinu - en það var
ekkert skemmtilegt.
40 SÁLR>EN SJÓNARMIÐ
Jóna Rúna Kvaran svarar bréfi
frá konu sem segist vera
„gjörsamlega búin og miður
sín af áhyggjum'1.
42 SPORHUNDAR
Hjálparsveitar skáta í Hafnar-
firði heita Kolur og Charlotte
og vita svo sannarlega „nefi
sínu nær“. Vikan ræddi við
umsjónarmann hundanna en
þetta eru sporhundar númer
sjö og átta sem hann hefur
umsjón með.
46 SJÓNVARPSÞULAN
Sigríður Arnardóttir er einnig
umsjónarmaður unglingaþátt-
arins Zikk Zakk á Rás 2. Vikan
átti stutt viðtal við þessa ungu
og bráðhressu stúlku.
48 DRAUMARÁÐNINGAR
Draumaráðandi Vikunnar
svarar spurningum frá fjórum
lesendum.
51 MATAR-
UPPSKRIFTIR
Vikunnar og klúbbsins Fram-
anda njóta vinsælda og fjöl-
margir safna uppskriftunum í
möppur. Að þessu sinni gefa
meistarakokkarnir lesendum
uppskriftir að jarðarberjaturni
og gufusoðnum skötuseli í
bambuskörfu.
52 ÍMYNDUNARVEIKIN
er komin á svið í flutningi
áhugaleikhópsins Fantasíu.
Vikan hitti hinn glaðværa
leikhóp þegar lokaundirbún-
ingur stóð yfir fyrir frumsýning-
una.
54 STÖÐ 2
er að hefja sýningar á hinni
spennandi þáttaröð Aftur til
Eden. Áströlskum þáttum um
peninga, völd og ástir Step-
hanie Harper.
56BLÓMA-
SKREYTINGAR
eru listgrein, segir Guðný S.
Þorleifsdóttir í blómabúðinni
Stör í Domus Medica við
Egilsgötu í Reykjavík.
2 VIKAN ÍITBL 1990