Vikan


Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 34

Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 34
masa c: ra S) F YRIRMYNDARSTÚ LKAN Kannist þér viö vikublaðið Hamingju- sama heimilið? Ég hef unnið við það nokkuð lengi en nú er ég hætt þar og þaö er best að ég skýri frá orsökinni. En fyrst ætla ég að segja svolítið frá blaðinu sjálfu. Flestir halda að vikublaðsritstjórn sé heimur alveg út af fyrir sig og ef dæma á eftir lífinu á Hamingjusama heimilinu er ef til vill eitthvað til I þessu. Reyndar kemur blaðið aðeins út einu sinni í mánuði en samt sem áður köllum við það vikublað. Ef þér hafið einhvern tíma komið inn í verslun Peters Durks hafið þér sjálfsagt séð Hamingjusama heimilið. Það kostar eina krónu og ég held að það sé ekki selt annars staðar. Að minnsta kosti seljast ekki mörg ein- tök á mánuði, ekki einu sinni hjá Peter Durk. Ritstjórnin hefur rúmgóð húsakynni sem er skipt í litlar skrifstofur með skilveggjum sem ná aðeins hálfa leið til lofts svo að það minnir einna helst á skíðgarð. Helmingur básanna var auður svo að hver starfsmaður hafði að minnsta kosti tvö skrifborð. Blaðið var alltaf í fjárþröng. Peter Durk eldri, stofnandi blaðsins, gekk að þessu með lífi og sál I barnslegri trú sinni á hamingjusöm heimili. Það vildi bara svo óheppilega til að hann dó skömmu eftir að ég fór að vinna við blaðið og Peter Durk yngri hafði allt önnur áhugamál, sem sé Ijóshært kvenfólk. Á hverjum laugardegi biðum við þess með eftirvæntingu hvert okkar yrði næst til að bætast I atvinnuleysingjahópinn en samt vor- um við sex eftir þegar okkur varð Ijóst að þessu varð ekki við bjargað. Ég var einkaritari Jacks Browns. Þá átti ég heima í Bronx, sem er í úthverfi borgarinnar, svo ég hafði nógan tíma til að hugsa um þetta vandræðaástand á heimleiðinni í neðanjarðarlestinni. Útlitið var mjög skuggalegt svo ég ákvað að giftast Oscari Carthouse. Ég var 23 ára og Oscar var eini maðurinn sem hafði beðið mín. Þegar við opinberuðum gaf hann mér ósvikinn demants- hring, síðan fór hann til Kaliforníu til að leggja stund á verkfræðinám. Á meðan stytti ég mér stundir við að hugsa um væntanlegt hjónaband okkar. Að vísu var Oscar enginn draumaprins en það mundi þó frelsa mig frá hungurdauðanum að giftast honum. Útlitið var nefnilega orðið svo svart að allt benti til þess að nú væri komið að því að Hamingjusama heimilið þyrfti ekki lengur á einkaritara aö halda. Durk yngri hafði tilkynnt að hann ætlaði að heiðra New York og ritstjórnina með komu sinni eftir nokkra daga og þá ... Við höfðum komist á snoðir um þetta á aukaritstjórnar- fundi. Venjulega var haldinn fundur á fimm mánaða fresti og af því má ráða hvernig Ham- ingjusama heimilið varð til. En nú voru aðeins þrír mánuðir liðnir frá síðasta fundi svo eitt- hvað sérstakt hlaut að vera á seyði. Ég hafði skýrslugerð fundarins með höndum og það var heldur þreytandi starf þegar tekið er tillit til þess að niðurstaðan varð alltaf hin sama, að svo framarlega sem við fengjum ekki einhverja snjalla hugmynd viðvíkjandi blaðinu mundi Peter Durk yngri láta ritstjórnina sigla sinn sjó og hafa einhver önnur ráð með að sólunda eignum sínum. Þetta hafði verið viðkvæðið í lífsins sem vísar veginn. Bill var oröinn rjóður af ákafa. Hann reyndi að lýsa því með handa- pati hverjum kostum draumadís ætti að vera búin og af því mátti helst ráða að hún ætti að vera þannig vaxin að jafnvel Marilyn Monroe stæðist ekki samanburð við hana. - Já, stúlka sem milljónir ungra stúlkna gætu tekið sér til fyrirmyndar - stúlka sem þrýstir splunkunýju giftingarvottorði að barmi sér, heldur í höndina á hinum nýbakaða eiginmanni og gerir fram- tíðaráætlanir um litla notalega hreiðrið þeirra — dreymir um matargerð, húshaldsreikninga, framtíðina, vögguvísur- stúlkan sem er mátt- arstoð þjóðfélagsins. Bill gerði augnablikshlé til að anda en hélt svo áfram af fullum krafti: - Ef til vill verður heppilegra að byrja svolítið fyrr. Kannski ætti þetta heldur að vera ung, nýtrúlofuð stúlka sem er önnum kafin við að búa sig undir brúð- kaupið, fyllir kommóðuskúffurnar - og syngur vögguvísur, skaut Jack inn i. En Bill lét slíkar athugasemdir ekkert á sig fá. Ég hafði fyrir löngu gefist upp við aö skrifa allt þetta mál- skrúð í minnisbók mína og sat annars hugar og horfði á sólarlagið milli tveggja skýjakljúfa. Síöustu geislarnir skinu á hönd mína svo aö demanturinn Ijómaði í öllum regnbogans litum. Bill rótaði í blaðabunka. - Ég skal nú skýra það I stuttu máli hvers konar stúlkur við höfum í huga. Meðalaldurinn er 21% ár, 83,3% hafa hlotið æðri menntun, 91,5% vilja gjarnan gift- ast, 52% munu eiga börn yngri en tíu ára þegar þær eru 28,7 ára gamlar. Árstekjur þeirra eru að meðaltali 45.000 krónur... Bill leit á mig til að vita hvort ég fylgdist með. Allt í einu kom hann auga á demantshringinn. Hann mældi mig út frá hvirfli til ilja, síðan leit hann aftur á hringinn. - Fyrirmyndarstúlkan okkar mætti vel líkjast Janie. Ekki vænti ég að þú sért 21% árs gömul? Hún hefur að minnsta kosti mjög venjulegt hár, sagði Marta, sem stjórnar kvennaþáttum okkar, og strauk hárið sem þennan dag var rauðbleikt að lit. - Að því leyti getur hún verið samnefnari fyrir margar. í fyrstu sagðist ég ekki taka þetta í mál en Jack sagði að allar ungar stúlkur mundu gleypa við því að sjá nafn sitt á prenti og full- vissaði mig um að þetta yrði stórkostleg aug- lýsing fyrir mig. Hin táknræna trúlofaða unga stúlka og allt það bull! Ég var ekki heldur alveg viss um aö mig langaði til að auglýsa trúlofun okkar Oscars fyrir öllum heiminum. En ég lét nú samt undan að lokum, eftir að þau höfðu fullvissað mig um að framtíð blaðsins væri al- gerlega undir mér komin. Bill tók til ósþilltra málanna. Það átti að birta greinar og myndir af mér á hverri blaðsíðu: Minn táknræni dagur, mitt táknræna kvöld (sem nýtrúlofuð stúlka sat ég auðvitað heima og skrifaði unnustanum, þvoði mér um hárið og dreymdi um framtíðina með Oscari í litla hreiðrinu okkar). Marta skrifaði grein með fyrir- sögninni Fyrirog eftir. Hún átti að birtast i dálk- unum um kvenlega fegurð. Hún færði mig í kjól sem var tveimur númerum of stór, hælalausa skó, þurrkaði af mér varalitinn og greiddi hárið slétt niður með vöngunum. Þetta var „Fyrir". Á eftir nældi hún kjólinn saman að aftan svo ég Hann beygði sig niður og strauk ósýnilegt fis af vanga mínum. Skyndilega var hún orðin miðpunkturinn í áhugamálum allra. Hún var stúlkan sem átti að bjarga blaðinu - en það var ekkert skemmtilegt... marga mánuði svo okkur kom þetta ekkert á óvart en það verð ég að segja vikublaðsritstjór- um til hróss að þeir gefast ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Ef þeim er ekki hreint og beint fleygt útbyrðis hika þeir ekki við að farast með skipinu - afsakið, blaðinu. Okkur vantar ákveðinn lesendahóp, lýsti Jack Brown yfir. Bill Jones tók í sama streng. - Það sem Hamingjusama heimilið vanhagar um er hinn fullkomni lesandi, ung stúlka full af lífs- fjöri og eldlegum áhuga, ung stúlka I blóma 34 VIKAN ÍITBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.