Vikan


Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 36

Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 36
sýndist óvenjulega grönn í mittið, bar á mig nýjan varalit og tók af mér „glamúr“-mynd. Þetta var „Eftir“. Hún tók myndir af mér þar sem ég var að lakka á mér neglurnar, bursta hárið og gera morgunleikfimi. Meö matarupp- skriftunum fylgdi mynd af mér þar sem ég var að matbúa, með prjónauppskriftinni fylgdi mynd þar sem ég var að prjóna peysu handa Oscari og á tískusíðunni sýndi ég klæðnað sem var „einkennandi fyrir mig, bæði sem unga stúlku og væntanlega brúði". Auk þess var grein eftir mig um „Hvernig það er að vera trúlofuð". Greinin var nú reyndar eftir Jack en nafn mitt var sett undir og á hinni opnunni var mjög litfögur mynd af mér sem ungri, nýtrúlof- aðri stúlku undir blómstrandi eplagreinum - sem voru ennþá óraunverulegri en ást mín til Oscars. Ef myndin sýndi nógu greinlega hversu ástfangin ég var átti hún að birtast á forsíðu ágústblaösins. Þaö var gaman að þessu. Gallinn var bara sá að nú var bráðum von á Oscari heim og þá átti auðvitað að birta mynd af okkur saman og ég var hrædd um að ég gæti ekki látið neina sérstaka hrifningu í Ijós. - Ég hef aldrei hitt milljónara, sagði ég við Jack þegar hann kom með bréfið frá Peter Durk þar sem hann tilkynnti komu sína næst- komandi mánudag. - Það er heldur ekkert eftirsóknarvert, sagði Jack þungbúinn. - Ég vona bara að hann fari ekki að skipta sér af framhaldssögunni. Á unglingsárum sínum hafði Jack skrifað skáldsöguna Dreggjar sem var framhaldssaga í Hamingjusama heimilinu um þessar mundir. Að mínu áliti var þetta óttaleg raunarolla því allar persónurnar hrundu niður hver eftir aðra en Jack var mjög upp með sér af henni. Reyndar voru allar sögur Jacks eitthvað í þessum dúr svo dauðsföllin á Hamingjusama heimilinu urðu með tímanum nokkuð mörg. Það var enginn rauður renningur á gólfinu þegar Peter Durk kom. Hann skálmaði bara inn í básana og bauð góðan dag og sagðist heita Peter Durk sem var í rauninni alveg óþarft því að það eru sjálfsagt mjög fáir sem kannast ekki við hann. Það birtast alltaf myndir af honum f blöðunum öðru hverju - f lysti- snekkjunni, sívala kappakstursbílnum, við leikhúsfrumsýningar og alltaf er einhver lagleg, Ijóshærð stúlka í fylgd með honum. Hann er myndarlegur og viðkunnanlegur náungi og þrátt fyrir ungæðislegt yfirbragö ber hann það með sér að hann mundi ekki láta í minni pok- ann ef til þess kæmi að hann þyrfti að verja hendur sínar. - Þér eruð víst tilraunakanínan, sagöi hann um leið og hann heilsaði mér. - Þér eruö raun- ar fallegasta kanína sem ég hef lengi séð. - Hann tyllti sér á skrifborðsbrúnina og virti mig gaumgæfilega fyrir sér en það hafa margir gert á undan honum, til dæmis Bill Jones, en hann horfir á mig eins og ég væri gómsæt nauta- steik sem hann hefði ekkert á móti að smakka á. En augnaráð Peters var líkast því að hann væri að virða fyrir sér óvenjulega fallegt sólarlag. - Við skulum koma á einhvern skemmtilegri stað, sagði hann. - Það er miklu betra að hugsa í björtu og vistlegu umhverfi. Ég leit kuldalega á hann. Hann var senni- lega vanur því að stúlkurnar kæmu á harða- hlaupum, bara ef hann rétti út litla fingur. - Ég hugsa ekki nema þann tíma sem ég fæ það borgað, svaraði ég afundin. - Og það er frá eitt til fjögur. - Ég geri ekki ráð fyrir að það sé neitt sér- staklega vel borgað, sagði hann og brosti út að eyrum. Af þessu brosi mátti ráða að hann hefði ekki hugmynd um hvað brauðstrit er. - Mamma er vön að segja að peningar séu ekki það sem mestu skiptir, sagði ég. - Það var skrítið, sagði Peter Durk yngri. - Mamma er vön að segja nákvæmlega hið gagnstæða. En nóg um það. Þó að ég hefði mátt ráða hefði ég ekki getað valið betri fyrir- myndarstúlku en yður. Ef framhald hefði orðið á útkomu blaðsins hefði ég lagt það til að láta yður skreyta forsíðuna í hverjum mánuði. - Þótt undarlegt kunni að virðast er það ein- hvern veginn þannig ef maður vinnur við viku- blað að það verður eins og hluti af manni sjálf- um - eða ef til vill öllu heldur eins og barn sem manni þykir vænt um, þó það geti stundum verið hálfgert vandræðabarn. Enda þótt ég teldi blaðið ekki neinn helgidóm, eins og Jack gerði, gat ég alls ekki þolað hvernig Peter Durk talaði um Hamingjusama heimilið. - Þér ætlið þó ekki að stöðva útkomu þess, myrða það, eftir allt það umstang sem við erum búin að hafa út af ágústblaðinu? Hann hleypti brúnum. - Já, þetta er stórkostlegt tækifæri fyrir yður. Þér verðið sennilega fræg fyrir útkomu blaðsins. - Það verður of dýrt fyrir yður að stöðva það héðan af, sagði ég. Það er búið að taka næst- um því allar myndirnar og ... Hann beygði sig niður og strauk ósýnilegt fis af vanga mínum. - Þér getið verið alveg róleg, vina mín, sagði hann. - Mér líkar vel við yður og ég skal sjá um aö ágústblaðið komi að minnsta kosti út. Það lítur út fyrir að ég hafi gengið í gildru Hamingjusama heimilisins og ég sem kæri mig ekkert um hamingjusöm heimili, hverju nafni sem þau nefnast. Daginn eftir settist Peter Durk yngri að í ein- um tóma básnum og við fórum allt f einu að mæta stundvíslega klukkan níu. Það var raun- ar alveg ástæðulaust því Peter Durk kom aldrei fyrr en undir hádegi. Bros hans féll mér vel í geð. í öllum blööum eru langargreinar um „Hvernig menn eigi að fara að því að vinna sig upp“ eða „Hundrað aðferðir til þess að verða góður sölumaður", „Eruð þér vinsæll?" eða eitthvað í þá áttina. I síðasta eintaki Hamingju- sama heimilisins var grein um „Hvernig eigin- konan getur haft áhrif á velgengni mannsins". Ég hugsaði með sjálfri mér að þess konar greinar væru alveg óþarfar fyrir menn sem brostu eins og Peter Durk. Um það leyti sem hið fræga ágústblað átti að fara f prentun komust Durk og Jack að þeirri niðurstöðu að myndin, sem átti að sýna ást mína til Oscars, væri ekki nógu góð. - Þér minnið allt of mikið á dauðan fisk á þessari mynd, sagði Peter. - Þú lítur út eins og þú værir nýkomin heim frá jarðarför þíns ástkæra Oscars, sagði Jack. Ertu alveg tilfinningalaus gagnvart honum? - Hann er svo langt í burtu, svaraði ég út f hött. - Ef hann sér þessa mynd kemur hann ekki aftur og fer kannski enn lengra í burtu, sagði Jack. - Hann kemur í næstu viku, sagði ég stúrin. - Við getum ekki beðið svo lengi, sagði Peter. - Við verðum að taka nýja mynd f dag. Hann leiddi mig inn á Ijósmyndastofuna. Þar var plötuspilari sem var hafður til að hjálpa upp á sakirnar þegar draumlyndiö var af skornum skammti á morgnana. Ég var að leita að við- eigandi plötu en allt í einu tók Peter mig í fang sér. - Svo man ég ekki annað en það að til- búnu eplagreinunum var raðað í kringum mig og allir sögðu að myndin hefði heppnast mjög vel. - Ég skal ná í leigubíl handa þér, sagði Peter þegar við gengum - eða öllu heldur svif- um - út. - Það eru margir kílómetrar til Bronx, sagði ég. - Ég fer úr á leiðinni, sagöi hann og settist við hliðina á mér. En hann fylgdi mér alla leið heim að húsdyrum og bað bílstjórann að bíða meðan hann fylgdi mér upp. - Þetta var reglulega skemmtilegt, sagði hann. - Ég vona aö þér sofið vel og yður dreymi Oscar. Morguninn eftir fór ég beint inn í básinn til Jacks Browns. - Það kemur ekki til mála að ég giftist Oscari, sagði ég. - Hvað ertu að segja? Nei, því ræður þú auðvitað sjálf.. En góða mín, þú átt þó ekki við að þú viljir ekki giftast honum Oscari okkar? En Janie, þú verður að giftast honum. - Ég er ekki ástfangin af Oscari, sagði ég. Nú kom Bill Jones aðvffandi og klapp hans átti víst að lýsa föðurlegri umhyggju. - Jæja, þarna er þá fyrirmyndarstúlkan Ijóslifandi. Nú fer Oscar að koma heim svo að við getum farið að taka myndir af brúðkaupsundirbúningi og þess háttar... - Mér geðjast ekki einu sinni vel aö honum, greip ég fram í. - Hverjum, mér? hrópaði Bill furðu lostinn. - Hún er ekki ástfangin af Oscari. Jack horfði ásakandi á mig. - Hún vill ekki giftast honum. Hún getur í rauninni alls ekki þolaö hann. - Það er ekki heiðarlegt gagnvart Oscari að halda þessum skrípaleik áfram, sagði ég. Heiðarlegt gagnvart Oscari? Hver kærir sig um Oscar? En hvernig fer fyrir okkur og Ham- ingjusama heimilinu? Allt í einu var básinn orð- inn fullur af fólki sem ruddist hvert um annað og talaði hvert í kapp við annað. - Það er best að leyfa stelpunni að giftast hverjum sem hún vill, jafnvel þótt það væri Farúk konungur, sagði Jack að lokum. Við höldum áfram með greinarnar en strikum yfir Oscar. Það tekur sjálfsagt enginn eftir því hvort sem er. - Ég tek eftir því, andmælti ég. - Oscar tek- ur eftir því. Þetta er ekkert annað en heimsku- legur skrípaleikur sem eyðileggur líf okkar. Þetta er hreint og beint hlægilegt, ekkert nema eintómt fjas. Verst af öllu er þó þessi kjánalega grein eftir Jack þar sem hann talar um að svífa á Ijósrauðum skýjum og falla í öngvit af ham- ingju. Að svo mæltu rigsaði ég út og hafði á til- finningunni að ég líktist einna helst Bette Davis í átakanlegu hlutverki. Eftir nákvæmlega stundarfjórðung kom Peter inn til mín og tók í hönd mér. - Komdu, vina mín, sagði hann, við skulum ræöa saman dálitla stund. Það ganga ýmsar einkennilegar sögur um þig. - Og um Oscar, sagði ég dauflega. - Um Oscar, sagði hann með alvörusvip. - Ég get sagt þér að undanfarið hefur það verið viðkvæðið hjá rúmlega sex þúsund manns að ég sé eigingjarn ónytjungur og engin stúlka með réttu ráði ætti að láta sér detta í hug að snúa baki við heiðarlegum manni mín vegna 36 VIKAN ÍITBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.