Vikan


Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 43

Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 43
7EXFI: PORGEIR ÁSIVALDSSON Sporhundurinn Kolur verður seint sagður fríð- ur og laglegur í framan en það má kannski segja að hann sé afslappaður í útliti, með lafandi eyru og kinnar og sokkin augu. Krakkarnir segja að hann sé „krúttaralega krumpaður" eða skemmtilega ssetur en útlitið er ekki allt. Það á við bæði um mannskepnuna og blóðhundana eða spor- hundana sem Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði hefur um langan aldur alið og komið hafa að góðum notum við mannaleit á undanförnum árum og áratugum. Uppaland- inn eða „pabbinn" hefur verið einn og sami maðurinn síðan sporhundurinn Nonni varfeng- inn hingað til lands árið 1960. Hann heitir Snorri Magnússon og gjörþekkir orðið þessa teg- und hunda og hvernig þeir at- hafna sig við erfiðustu að- stæður, þefandi uppi slóð týndra manna. Þrír áratugir eru ekki skammur tími og frá- bær árangur hundanna hefur vakið athygli [ nágranna- löndunum, þar sem þessi teg- und er ekki notuð sem spor- hundar. „Það væri fínt að eiga svona hund. Þá mundi maður aldrei týnast," segja þeir Kolbeinn og Svani sem fengu að fara með Vikunni í heimsókn til sporhundanna Kols og Charlotte. UÓSM.: RÓBERT ÁGÚSTSSON „Þetta eru hundar númersjö og átta síðan 1960,“ segir Snorri þegar Vikuna ber að garði þar sem blóðhundarnir Kolur og Charlotte eru hafðir. Húsbóndinn á heimilinu, Kolur, heilsar Snorra með virktum og stekkur upp á grindverk með framlappirnar og þefar af ókunnugum gestum. „Þótt heitið blóðhundur eða bloodhound sé kannski svolít- ið ógnvekjandi er þetta mesta gæðablóð, gerir ekki nokkrum manni mein. Þetta eru blíð og gæf dýr. Ég fékk þá sem hvolpa og þeir eiga eftir svona fjögur til fimm ár í fullu fjöri. Maður telst góður ef þeir duga áratuginn áður en ellin sækir þá heim. Að baki þjálfun hvers hunds eru þúsundir kílómetra í hlaupum út um allar trissur þar sem þjálfunin felst fyrst og fremst í því að búa til slóð og láta hundana síðan rekja hana. Einhver er fenginn til að ganga sex til sjö kilómetra og síðan er látinn líða nokkur tími, kannski sólarhringur, áður en hundunum er hleypt af stað. Þeir hafa rakið allt upp í 130 tíma gamla slóð sem telj- ast verður ótrúlega gott þar sem slóðin kannski liggur um eða yfir fjölfarnar leiðir manna, jafnvel malbik og stundum hef- ur fennt eða rignt í millitíðinni. En auðvitað geta þeir klikkað, þetta eru ekki vélar heldur skynugar skepnur sem gera sín mistök. Lyktarskyn þeirra er háþróað og næmt, mörg hundruð sinnum meira og betra en hjá mannskepnunni. Á styttri leiðum hafa þeir jafn- vel rakið slóðir manna á hjóli eða í bíl. Það er eins og lyktin „liggi í loftinu" og þeir skynja hana. Líkt og með fingraförin hefur hver maöur sína lykt. Kolur og kærastan hans, tíkin Charlotte, ókyrrast þegar húsbóndinn aöhefst ekkert, stendur bara og talar við ókunnuga utan girðingar. Þau iáta vita af sér með alls kyns hljóðum og hreyfingum og þegar Snorri býr sig undir að hleyþa Kol út vita þau hvaö er í aðsigi og fara í hvelli að út- gönguleið. Tíkin Charlotte er afar óhress þar sem Kolur fær einn að fara út í veðurblíðuna og gefur það til kynna með Frh. á næstu síðu Snorri Magnússon „ræðir við“ hundinn Kol, sporhund á besta aldri. Snorri er hundapabbi hjá Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði og hefur alið sporhunda af þessari tegund í þrjátíu ár - alls átta hunda sem náð hafa frábærum árangri við leit að týndu fólki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.