Vikan - 31.05.1990, Blaðsíða 7
Gerður brá á leik með fiðluna sína við
listaverk á svölum listasafnsins í Köln og
brátt hljómaði „Hani, krummi, hundur, svín“ í
loftinu. Meira að segja vörðurinn, sem fylgdi
okkur upp til myndatökunnar, varð mjúkur í
framan undir spilverkinu. í baksýn er hin
fræga dómkirkja í Köln.
einhver biður mig um að gefa
sér A-tóninn til dæmis þá geri
ég það um leið - án þess að
þurfa að hafa tónkvfsl mér til
hjálpar eða hljóðfæri. Þetta er
einhvers konar tónaminni og
hef ég ekki ennþá gert mér
grein fyrir því hvernig á þess-
um hæfileikum stendur. Lík-
lega er það þó meðfætt hjá
mér og ég hef vitaö af þessu
síðan ég var sjö ára. Trúlegt er
aö ég hafi þetta frá móður
minni.
í flestum tilvikum kemur
þessi hæfileiki sér mjög vel.
Ég er til dæmis fljótari að vinna
ný verk, kannski vegna þess
að ég hef skýrari mynd af því
sem á að koma út á endanum.
Ég átti einstaka sinnum í svo-
litlum erfiðleikum á meðan ég
var í kórnum, þegar ég heyrði
að kórinn lækkaði eða hækk-
aði. Það getur komið fyrir þeg-
ar sungið er án hljóðfæris.
Sérstaklega fannst mér þetta
óþægilegt þegar við sungum
eftir nótum. Þá sá ég og heyrði
að við vorum hætt að syngja
eftir þeim.“
En hvað er nú framundan
hjá Gerði? Ætlar hún að halda
áfram að læra eða standa upp
af skólabekknum innan tíðar?
„Ég held aö ég láti beinu
námi lokið f bili að minnsta
kosti. Ég lauk lokaprófi héðan
frá Köln fyrir tveimur árum,
„Kunstlerische Reifeprufung"
með einkunnina 1 +. Þar eð ég
hlaut hæstu einkunn á ég kost
á því að þreyta svokallað
„Konsertexamen" eða einleik-
arapróf innan næstu tveggja
ára. Ég hefði í rauninni átt að
Ijúka þessu prófi núna í vor en
fékk frest vegna þess að ég
var að vinna með kennaranum
í Amsterdam á þessu tímabili.
Ég ætla því að reyna að Ijúka
þessu næsta vor hjá mínum
gamla kennar en ég reikna
samt ekki með að vera skráð í
skólanum þótt þetta standi til.
EKKI Á LEIÐINNI
HEIM í BILI. . .
Ég hef ekki einungis verið
viö nám því ég hef alltaf spilað
eitthvað samhliða skólanum til
þess að öðlast reynslu og svo-
litlar tekjur sem koma sér vel.
Ég hef líka stundað kennslu
síöustu tvö árin og hef verið
með þrjá nemendur í einka-
tímum. Tveir þeirra eru að búa
sig undir inntökupróf í tónlist-
arháskólann. Sá þriðji hefur
lokið námi, er að sækja um
vinnu og langar að reyna að
lífga aðeins upp á tæknina hjá
sér. Mig langar til þess að
hvíla mig á kennslunni en hún
11 TBL 1990 VIKAN 7
UÓSM.: HJALTl JÓN SVEINSSON