Vikan - 31.05.1990, Page 10
TEXTi: LINDA S. GUÐMUNDSDÓTTIR
SVIÐINU##
„FYRSTI
KOSSINN
UNDIR
María og Rúnar eru bæöi ættuö
úr Keflavík. Eins og fleiri
„popphjón" kynntust þau í
gegnum tónlistina. „Fyrsti
kossinn var undir sviðinu," seg-
ir Rúnar hlæjandi.
María segist hafa verið búin að fylgjast með
Rúnari í þónokkurn tíma. „Hann var hljóm-
sveitartöffari og fótboltagæi. Við vissum alltaf
hvort af öðru enda frá sama stað. Samband
okkar þróaðist svo smám saman. Við Rúnar
vorum ekki mikið saman fyrstu árin. Við vorum
alltaf sitt í hvorri hljómsveitinni. Það var ekki
fyrr en 1977 sem við stofnuðum sameiginlega
hljómsveit. Sú hljómsveit hét Geimsteinn. Við
komum fyrst fram i Stapa og lékum fyrir fullu
húsi. Okkur var strax mjög vel tekið. Við létum
aldrei verða af því að trúlofa okkur. Við erum
ekki einu sinni gift í dag. Rúnar hefur aldrei
Frh. á bls. 13
Svanhildur Jakobsdóttir
og Ólafur Gaukur Þórhallsson:
„Á pallinum
vorum við
elcki hjón"
Ellen og Eyþór kynntust árið 1977 í æfingaplássi hljómsveitarinnar Tívolí, sem var við Túngötu.
Hér sjást þau hress í bragði bíða úrslita í keppninni um Landslagið 1990.
UÓSM.: GUNNLAUGUR RÖGNVALDSSON
ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG EYÞÓR GUNNARSSON:
„Það var allt saman mjög
leynilegt hjá okkur fyrst"
Ifyrsta skipti sem ég sá Ellen Kristjáns-
dóttur syngja opinberlega var hún að
syngja í hófi sem haldið var í tilefni fimm
ára afmælis Félags íslenskra hljómlist-
armanna. Þar söng hún gamalt lag Ellu
Fitzgerald. Síðan hef ég verið leyndur aðdá-
andi Ellenar. Það var því óvænt ánægja að fá
að taka viðtal við hana og mann hennar, Eyþór
Gunnarsson.
Eins og flestum er kunnugt er Eyþór hljóm-
borðsleikari i bræðingsgrúppunni Mezzoforte.
Hann er einnig höfundur lagsins Garden Party
sem kom hljómsveitinni á toppinn á sínum
tíma. Meðlimir Mezzoforte hafa oftsinnis sýnt
og sannað að þeir skipa sæti einnar vinsæl-
ustu og bestu „instrumental“ hljómsveitar í
heimi. Það gera þeir ekki síst með nýjustu plöt-
unni sinni, PlayingforTime. Hljóðfæraleikurinn
er ótrúlega fágaður, poppaður og góður. Þegar
einn meðlimur hljómsveitarinnar Pink Floyd
var spurður að því 1983 hvað honum fyndist
markverðast af því sem fram hefði komið á ár-
inu svaraði hann: „Mezzoforte."
Það er einkennandi fyrir Ellen og Eyþór
hversu hógvær og blátt áfram þau eru i fram-
komu. Þau koma til dyranna eins og þau eru
klædd. Þegar blaðamaður hitti þau á heimili
þeirra á Baldursgötunni voru þau nýkomin
heim af æfingu. „Það eru Norrænu útvarps-
djassdagarnir sem við erum að æfa fyrir núna.
Við erum fulltrúar Islands," sögðu þau. „Hljóm-
sveitina köllum við Ellen Kristjánsdóttur og
flokk mannsins hennar," bætti Eyþór við bros-
andi. „Við stofnuðum hljómsveitina í október
og höfum spilað öðru hverju á öldurhúsum
borgarinnar."
Lítil, rauðhærð stelpa hefur setið álengdar
og virt fyrir sér þessa óvæntu gesti. Nú finnst
henni augljóslega tími til kominn að láta við-
stadda finna fyrir nærveru sinni. Hún byrjar að
syngja hástöfum: „Dúllaladúllala... “ Hún
Frh. á bls. 16
Það er býsna algengt að pör hafi starfað saman í
íslenskum hljómsveitum. Má þar m.a. minna á
Ragnhildi Gísladóttur og Jakob Magnússon í Strax,
Ellý Vilhjálmsdóttur og Svavar Gests, Andreu Gylfa-
dóttur og Þorvald í Todmobile, Herdísi Hallvarðsdóttur
og Gísla Helgason, Eddu Borg og Bjarna Sveinbjörns-
son, Margréti og Þór í Sykurmolunum og loks Ernu
Þórarinsdóttur og Gunnlaug Briem. Og svo auðvitað
þau fjögur pör sem Vikan ræðir við hér á næstu síðum.
Olafur Gaukur og Svanhildur
kynntust í Þjóðleikhúskjallaran-
um. Hún söng með Leiktríóinu
sem spilaði þar árið 1961.
Hann spiiaði með hljómsveit-
inni. Var það ást við fyrstu sýn? Svanhildur
verður fyrri til svars.
„Nei, nei, langt frá því. í byrjun vorum við
bara starfsfélagar. Við kynntumst og það fór
strax vel á með okkur. í upphafi voru nokkrar
hindranir í veginum sem síðan smám saman
greiddist úr.“
„Síðan eru liðin mörg ár,“ bætir Ólafur
10 VIKAN 11 7BL 1990