Vikan - 31.05.1990, Qupperneq 19
En nú er komin önnur kona á skerminn. Hún
er minnst 27 ára en kemst upp meö þaö. Það
er af því að hún notar Chanel 5. Þegar hún fer
í Óperuna kemur hún alltaf of seint. Þaö er
vegna þess aö samkvæmisveskið er svo lítið
að hún verður að halda á ilmvatnsglasinu í
hendinni. Glasið er víst voða hált því hún gerir
ekki annað en missa það. Þá treður hún við-
skiptafræðinga og forstjóra undir og menn
velta niður stigann í Óperunni og smókingur-
inn þeirra krumpast, en þeir krafla sig bara upp
á þrepin og tísta af gleði. Af því að hún notar
Chanel 5.
Aldrei kemur það fyrir mig. Maðurinn sem ég
steig óvart á í bankanum, hann settist ekki á
gólfið og iðaði af kátínu. Hann sagði: Ættirðu
ekki að fara í megrun, flóðhesturinn þinn? Og
svo iðaði hann af löngun til að stappa á mér.
En það var bara af því að ég nota ekki
Chanel 5.
Hann bauð mér heldur ekki San-Bittér. Með
frönskum framburði. Ég hef tekið eftir að sum-
ar konur; þær geta þrætt ókunnuga menn upp
á reiðhjólin sín, velt þeim yfir innréttingarnar
þannig að mublurnar molna niður, lamið þá í
bakið og brotið gleraugun þeirra. Og mennirnir
snúa sér bara við og bjóða þeim San-Bittér.
Að vísu biðja þær alltaf mennina afsökunar
á bjagaðri ítölsku en það get ég nú líka. Og
samt...
Ég kynnist heldur ekki ungum, fagursköpuð-
um skipstjórum á skemmtiferðaskipum. Það er
sjálfri mér að kenna, ég vafra aldrei um hafnar-
bakkana með Harmony-róman í hendinni. Ég
les bara í strætó og þar sér tvítugi skipstjórinn
á Titanic mig ekki. Jafnvel þótt hann standi allt-
af í brúnni með sjónaukann að leita að konu
sem les.
Aldrei hefur neinn stolið blómum handa mér.
Líka mér að kenna, ég nota ekki Impuls svita-
úða. Ef ég úða mig með Impuls lenda þúsundir
eftir fimm mínútur til að ganga frá milljónavið-
skiptum. Svona Dim sokkabuxur hafa karl-
menn algerlega á valdi sínu.
Treysti ég mér ekki í þetta ofbeldi gegn karl-
mönnum eru samt ekki öll ráð úti.
Nægir að láta Tuborgflösku standa upp úr
veskinu.
Fyrst ætla ég að hugsa út hvernig ég kaupi
í matinn fyrir fjögurra manna fjölskyldu oní
veski, án þess að eitthvað annað og meira en
Tuborg standi upp úr. Til dæmis 5 kg af kartöfl-
um. Það gerist nefnilega aidrei að verkfræð-
upp sportbílar með milljónerum fyrir framan
mig.
Og ef ég verð þreytt á að æða um grundirnar
í opnum sportbílum með mönnum sem hafa
ekki einu sinni það hugmyndaflug að kaupa
sér sjálfir Kit-Kat, heldur borða alltaf mitt, þá
fæ ég mér Raider. Raider dregur að sér snyrti-
legar hvítflibbatýpur sem mikilvægir menn eru
alltaf aö hringja í. Þau eru lýjandi, þessi símtöl,
svo þeir þurfa aukaorku á milli mála. Hana fá
þeir úr Raiderinu mínu.
En ég verð að gæta þess að draga mörkin
INGJAÉG
karlmanna í fangelsi fyrir blómastuld og ég
gæti heimsótt þá alia og oröið ný tegund af
móður Teresu. Það væri ofsalega göfugt.
Eiginlega hef ég svikið sjálfa mig en ég get
enn bjargað miklu með því að ganga í Dim
sokkabuxum. Ef ég geri það leyfist mér að
hlaupa upp stigana í fjölbýlishúsum og sjái ég
karlmann í lyftunni styð ég á neyðarhnappinn
og stöðva lyftuna á milli hæða. Svo hlæ ég
bara að honum. Þá hnígur hann utan í lyftu-
vegginn, máttvana af gleði, þó bíllinn standi
ólöglega fyrir utan og hann eigi að vera mættur
ingar eða viðskiptajöfrar kasti sér yfir konur
með kartöfiur. Þeir hafa blátt áfram engan
áhuga á konum með kartöflur.
Ég redda þessu bara með því að maula
sælgæti á almannafæri.
Velji ég Dúpló kemur strax einhver laglegur
piltur og biður mig að útskýra af hverju ég
borða það. Þá segi ég eins og kennslukona:
Það er af því að þegar ég þarf þrek vil ég eitt-
hvað sem íþyngir mér ekki. Og hérna ofan á
eru þrjárhnetur-ein.tvær, þrjár (bendi)-hver
annarri betri.
Þá verður hann stjarfur af hrifningu. Svo
býður hann mér út að borða. Hann fær sér
steik og rekur eitt salatblað upp í mig því ég vil
aldrei neitt sem iþyngir mér.
Ætli ég hafi það ekki frekar Kit-Kat. Nægir að
setjast á vegarbrún og veifa því. Þá hrannast
viö Milka og Fiesta. Ef ég verð uppvís að
birgðum af þeim gera ekki aðeins fram-
kvæmdastjórar og auðkýfingar aðsúg að mér
heldur fólk af báðum kynjum á öllum aldri. En
þau eru auðvitað pottþétt aðferð til að kynnast
fólki sem betlar af öðrum.
EF OG ÞEGAR .. .
Ég hef látið mér segjast. Mánuðum saman hef
ég farið allra minna ferða í eigin lofthjúp úr
Chanel 5 eins og vera utan úr geimnum, með
Tuborgflöskuna i hálfa stöng og í Dim sokka-
buxum. Ég er orðin slæm í maga af öllum
þessum San-Bittér en takmarkinu er náð. Ég
hef komist yfir karlmann sem gerir mig að heið-
virðri konu: Giftist mér.
Þá er komið að því að halda hjónabandinu
Framhald á bls. 22.
11 TBL. 1990 VIKAN 19