Vikan - 31.05.1990, Qupperneq 20
TEXTI: ADOLF ERUNGSSON
FORSIÐUSTÚLKA VIKUNNAR AÐ ÞESSU SINNI
HEFUR KOMIÐ VÍÐA VIÐ. HÚN ER FRÖNSK
EN ALIN UPP í LÖNDUM EINS OG LAOS OG
MADAGASKAR, ER TÖLVUVERKFR/tÐINGUR MEÐ
SÉRÞEKKINGU Á VIÐSKIPTASVIÐINU OG
VINNUR LÍKA SEM FYRIRSÆTA. HÚN
HEFUR KEPPT í SUNDI OG HESTAÍÞRÓTT-
UM OG SPILAR Á PÍANÓ. ÞAÐ MERKI-
LEGASTA VIÐ FJÖLH/ÍFNI OG FRAM-
GÖNGU ÞESSARAR MYNDAR-
LEGU STÚLKU ER EF TIL VILL
AÐ HÚN HEFUR FRÁ
FÆÐINGU
VERIÐ
EINHENT.
D'0fc: \v
O; OfAS'G ■ ,
.
Enn hefur Arielle Mabilat,
en svo heitlr hún, kastaö
sér út í ævintýrin því
hún lét heillast af bifvélavirkja
frá Hvammstanga og flutti
meö honum á klakann, alls
óhrædd viö aö prófa nýja hluti.
Skúli Sigurðsson heitir sá ungi
sveinn sem náöi aö lokka dís-
ina á þessar norölægu slóðir
og þau eru nú aö byrja búskap
sinn í leiguíbúð í Breiðholtinu.
Þangað sótti undirritaöur þau
heim í stutt spjall.
Það fyrsta sem maður tekur
eftir viö aö hitta þau er hversu
indæl og óþvinguð þau eru
bæöi. Manni liður strax vel
meö þeim og þau virðast eiga
mjög vel saman. Því liggur
beinast við aö spyrja aö því
hvernig þau náöu saman.
„Þaö byrjaði nú fyrir fimm
árum,“ segir Skúli. „Ég hef
alltaf veriö ótrúlega heppinn
en aldrei eins og í þetta sinn.
Ég fór í ferðalag með tveimur
vinum mínum til Evrópu. Viö
flugum til Lúxemborgar og
flökkuðum síðan um í þrjár
vikur en vorum búnir aö
ákveöa aö eyða einni viku á
frönsku Rivierunni. Þar vorum
viö svo á diskóteki eitt kvöldiö
og ég var orðinn hálfleiður á
því aö engin af stelpunum,
sem ég bauö upp, gat talað
ensku. Þá kom ég auga á
hana þar sem hún sat viö
borö. Þaö var ást viö fyrstu sýn
hjá mér og ég var meira aö
segja svo heppinn aö hún tal-
aöi ensku reiprennandi svo aö
við gátum talað saman. Ekki
varö nein rómantík aö þessu
sinni en eftir aö ég kom heim
héldum viö sambandi meö
bréfaskriftum næstu fjögur
árin. Svo vildi svo heppilega til
aö þegar hún kom heim til
Frakklands síðasta haust eftir
nám i Bandaríkjunum átti ég
eiginlega leiö til Parísar. Þá
loksins virtist hún vera tilbúin
eftir allan þennan tíma og
rómantíkin fór aö blómstra."
FYRSTI KOSSINN
f KIRKJUGARÐI
„Þetta var mjög rómantískt og
gaman að ná saman eftir allan
þennan tíma, rúmum fjórum
árum eftir aö viö hittumst fyrst.
Þaö má kannski frekar segja
aö þetta hafi verið ást viö aöra
sýn hjá mér en þá fyrstu," seg-
ir Arielle og brosir. „Fyrsta
skipti sem Skúli kyssti mig var
í kirkjugarði í Paris.“ Þegar
hún sér undrunarsvipinn á
undirrituðum flýtir hún sér aö
bæta viö: „Þetta er gamall
kirkjugarður þar sem margt I
LJÓSM.: RÓBERT ÁGÚSTSSON