Vikan


Vikan - 31.05.1990, Page 38

Vikan - 31.05.1990, Page 38
TEXTI: ANNA TOHER CHRISDAN DIOR Isnyrtilínu Christian Dior hef- ur enn ein nýjungin bæst við, nokkurs konar fegrunarmold sem hlotið hefur nafnið Terra Bella. Þetta er létt púður sem endurheimtir sólargeislana og gefur fallegan litblæ á Ijósa húð eða bronslitan blæ á þegar úti- tekna húð. Það gefur mildan, eðlilegan blæ eins og við værum nýkomin úr sumarleyfi á sólar- strönd. Púðrið er auðvelt í meðförum og fljótlegt í notkun fyrir allar konur. Það þarf ekkert sérfræði- handbragð til aö húðin geti feng- iö á sig fallegan Ijóma. Aðeins nokkrar léttar strokur með stór- um bursta og húðin tekur stakka- skiptum. Terra Bella er ekkert líkt venjulegu föstu púðri. Náttúru- legt púður og steinefnaörður gefa púðrinu lit og léttleika, olíur gefa því mjúka, létta og jafna áferð. Árangurinn? Eðlileg mött áferð sem stafar af smáörðum sem endurkasta náttúrulegu Ijósi og gefa útitekið yfirbragð. Terra Bella kemur í tveimur litum, Light Tan fyrir Ijósa húð og Bronze fyrir drekkri húð eða úti- tekna. Ein algild regla gildir um hvemig á að bera púðrið á and- litið: með léttum strokum á kinnar, enni, undir augabrýr, nef og höku. Léttar strokur á axlir og bringu gefa fallegan glans á síðsumarkvöldi í flegnum kjól. Sumariitimir í förðunariínunni eru mjög fallegir og henta okkur íslensku konunum vel. Nefna má til dæmis augnskuggasett með fimm augnskuggum í bláum, hvítum og rauðum tónum. Naglalakk og varalitur í stíl er í kopariitum tónum og út f bleikt. □ 38 VIKAN ÍITBL. 1990

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.