Vikan - 31.05.1990, Page 49
/ SdhKP- UR. 5T/IF- ÍfiJ K) 5'R Zi þEó.fi-FL iÍLftUTT SUóL&i MÁimu8 Ffi EiS/diR STEFaJ- ufL SUA/D ÞÓfiiPfiR- SfiMTÖK
L
7EdUKjb þ. E.IAJ5 STÖ6UC.T KVE-tJ- PUC.UA/K1 —w 1 » >
i/ \ F&.ÐÍ filESÍ FR!dftí{ ÓTETT T ÓA/5 y i ’ >
þE£A<Z_ KAll s > p 'úRiM KEdR Vfi R Ð- Ffi/vDi 3 d. >
\1
AJÖÍL T 'PGj'ÓF bilELÍP z 5 > U
STjflKfl v— Ip i/flRÐ-. hnD i Ci(x 'fífiflLD > > u.
PfUtC tIma- MS-u'/is '/? kluiÐ
1 z 3 y 8 3 EifiJS
Lausnarorð í síðasta blaði 1-6: VAGNAR
að fara úr þínu lífi, en hluti af
þér vill halda í hann.
Skynsemin og samviskan
verða að ráða.
FJALLAFERÐ, SVARTIR
SKÓR OG LANDA-
BRÉFABÆKUR
Kœri draumráðandi!
Mig dreymdi nýverið tvo
drauma sem mér þœtti vœnt
um ef þú vildir ráða fyrir mig.
Fyrri draumurinn: Mig dreymir
að ég og tjðlskyldan mín, þ.e.
foreldrar, systkini og makar,
erum að fara í ferð og œtlum
að ganga upp fjall en þar uppi
átti að vera eitthvað
skemmtilegt. Þegar við erum
hálfnuð upp flallið verðu það
að háum vegg tyrir framan
okkur, grasi vöxnum. Við
ákveðum að ráðast til
uppgðngu þó það virðist ekki
árennilegt. En gangan verður
ekkert mál og fyrr en varir erum
við komin uppá topp. Þar blasa
við okkur Iftil hús, altt gróðri vaxið
og mér finnst við sjá út á haf.
Þetta var mjðg falleg sýn. Svo
fðrum við að labba þama um.
Þá sjáum við að þama er ailt
fullt af jarðarbeijum, stórum og
rauðum.
Seinni draumurinn: Mér finnst
ég vera að máta skó ásamt
systur minni. Þeir sem ég er að
máta eru svartir, uppreimaðir,
með loðskinnskanti. Til greina
koma aðrir sem eru eins nema
þeir eru lœgri, mig langaði
frekar í þá. Systir mín fœr mig til
að máta opna sumarsandala í
fallegum pastellit en hún var
sjálf í þannig skóm. Þar sem við
stðndum báðar í sandölunum
sé ég og finn að þeir eru of
stórir á okkur báðar en
þœgilegir og fallegir. Ég er
með hugann við svðrtu reimuðu
skóna.
Að íokum langar mig til að
láta einn stuttan draum fljóta
með. Mig dreymir að vinkona
mfn kemur til mín og réttir mér
tvœr landabréfabœkur. Þœr
eru gulllitaðar og saman í öskju.
Þetta er kannski orðið
fulllangt hjá mér en mér þœtti
vœnt um þó ég fengi ekki
nema birtingu á einum af
þessum þremur draumum.
Með fyrirfram þökk,
M.
RÁÐNING
Draumurinn bendir til þess
að þú sjáir framundan erfið-
leika sem fjölskyldan öll á þátt
í. En þið eruð hugdjörf og
yfirstígið alla erfiðleika. Fyrir
vikið erykkur launað með feg-
urð og grósku.
Jafnvel þótt manni sé boðið
eitthvað fallegt er ekki víst að
það passi manni. Hversu góð-
viljað sem fólk er þá getur það
ekki alveg vitað hvað manni
sjálfum/sjálfri er fyrir bestu.
Þetta er þriðji draumurinn og
mér sýnist ferðir eða fram-
kvæmdir eða breytingar vera í
nánd. Ef til vill getur þessi
draumur verið að benda þér á
að víkka sjóndeildarhring
þinn, andlega eða líkamlega.
NÖFNIN OKKAR
ÍRAMMA
Kœra Vika!
Mig langar mikið að biðja þig
að hjálpa mér. Ég þekki stták
sem ég er mjðg hrifin af. Hann
hefur hagað sér þannig að ég
tek því ekki ððruvísi en honum
lítistvel á mig. Hann hefur boðið
mér í bíó og m.fl. en síðan hef
ég ekkert rekist á hann. Ég hef
mikið reynt að hafa upp á
honum og komast að því hvar
hann býr, en ekkert gengið. En
snúum okkur að draumnum.
Mig dreymdi fyrir stuttu að ég
vœri í einhvers konar
félagsmiðstöð með vinkonu
minni. Við gðngum að borði og
þar sé ég spjald eða einhvers
konar ramma. í rammanum
stendur nafn hans og
heimilisfang og fyrir neðan er
nafnið mitt. Eitthvað fleira stóð
þar sem ég gat ekki greint.
Vonandi getur þú ráðið úr
þessu.
RÁÐNING
Draumurinn bendir á að löng-
un þín til þess að finna heim-
ilisfang stráksins sé mikil.
Draumurinn er óskhyggja. Þú
óskar þess að þið verðið
saman, þess vegna eru nöfn
ykkar beggja á spjaldinu. En
draumurinn gefur ekkert út á
það hvort af því verður eða
hvernig það muni fara, enda
getur þú ekki lesið annað sem
stendur á spjaldinu.
ÍITBL. 1990 VIKAN 49