Vikan - 31.05.1990, Side 56
Stöð 2 er aftur að hefja
sýningar á einni mest
spennandi þáttaröð sem
sýnd hefur veriö hér á landi,
Aftur til Eden. Þessir áströlsku
þættir fjalla um peninga, völd
og ástir Stephanie Harper. Við
munum eftir henni úr fyrstu
þáttunum þar sem eiginmaður
hennar, Greg Marsden, og
besta vinkonan, Jilly Stewart,
reyna að koma henni fyrir katt-
arnef með því að varpa henni
fyrir krókódíla. En henni var
bjargað og gert að sárum
hennar. Þar kom við sögu fær
lýtalæknir, Dan Marshall, sem
síðar varð eiginmaður hennar.
Þegar Stephanie haföi endur-
heimt fyrri fegurð sína sneri
Jilly Stewart og Jake Sanders.
AFTUR TIL EDEN
hún aftur til Sydney í leit að
hefnd.
í næstu tuttugu og tveim
þáttum verður snúið aftur til
valdsins, til ástríðunnar, til
glæsileikans...Snúið aftur til
rómantíkurinnar, ævintýranna,
spenningsins ... Snúið aftur
til ástarsögunnar, svika og
hefnda.
Þáttaröðin Aftur til Eden er
eitt eftirsóttasta sjónvarpsefni
sem Ástralir hafa nokkurn tím-
ann gert. Hún hefur hlotið frá-
bæra dóma í Evrópu, Banda-
ríkjunum og víðar um heim. í
gervallri Ástralíu njóta þættirn-
ir aö sjálfsögðu ómældra vin-
sælda og umfjöllun blaða þar
á sér enga hliðstæðu. Aftur til
Eden fær undantekningarlaust
háa einkunn gagnrýnenda og
aðdáendur leikaranna senda
þeim bréf í stríðum straumum.
Framleiðandi þáttanna, Hal
McElroy, segir að þessi þátta-
röð komi til með að auka mjög
veg sjónvarpsefnis frá Ástralíu
enda gefi það bandarísku og
bresku sjónvarpsefni ekkert
eftir. Ekkert hefur verið til spar-
að við gerð þessara þátta.
Milljónir dollara hafa nú þegar
farið í uppsetningu leikmyndar
í Five Dock í Sydney. Til gam-
ans má geta þess að bílaflot-
inn fyrir þessa þáttaröð Aftur til
Eden er ekki af verri endanum.
Þar má finna rauðan Merced-
es Benz með blæju, enn
íburðarmeiri fölgrænan Mer-
cedes Saloon, hneykslanlega
kanarígulan Porsche, BMW
SAGAN HELDURÁFRAM
Cabriolet, Range Rover og
auðvitað er Rolls Royce við
höndina. Bifreiðaflotinn er upp
á 1,4 milljónir dollara.
Allt starfsfólk er það besta
sem völ er á. Þrír leikstjórar
skipta með sér leikstjórninni,
þeir Tim Burstall, John Power
og Kevin Dobson. Kvikmynda-
tökumaðurinn er af rússnesk-
um ættum. Hann heitir Yuri
Sokol og hefur búið í Ástralíu
síðustu sjö árin og getið sér
gott orð þar í landi. Meðal ann-
ars starfaði hann við myndina
Lonely Hearts sem hlaut titil-
inn besta myndin 1982.
Vel þekktir fatahönnuðir í
Ástralíu hafa lagt þáttunum lið
við að skapa glæsilegt yfir-
bragð og ástralskan stíl. Þetta
eru þau George Gross og
Jenny Kee.
Töfraformúla valds, pen-
inga, öfundar, glæsimeyja og
þess sem missir allt - aðeins
til að geta byrjað upp á nýtt og
náð á toppinn - heldur spenn-
unni stöðugri frá upphafi til
enda hvers þáttar.
Og sagan heldur áfram ...
í Aftur til Eden er rakin saga
Stephanie Harper sem á allt til
alls; ástúðlegan eiginmann,
tvö börn, viðskiptaveldi, fegurð
og vini. En þegar fyrrum besta
vinkona hennar, Jilly Stewart,
er leyst úr fangelsi fer að halla
undan fæti hjá Stephanie því
Jilly er staðráðin í að hefna
sín.
Jake Sanders birtist og ógn-
ar stöðu hennar sem forstjóra
stærsta og ríkasta námafyrir-
tækis Ástralíu, Harper Mining.
Þrátt fyrir umleitanir um vin-
arsátt notar Jilly fegurð sína
og ástríður til að knésetja
Stephanie. Þetta er saga konu
sem hefur allt en missir það
síöan. Ekki bara fyrirtæki sitt
heldur líka eiginmann og börn-
in tvö sem hún dáir. Örugg
veröld hennar hrynur og hún
verður að byggja hana upp aft-
ur og ná á toppinn - því þar á
hún heima.
Til að koma okkur betur inn i
söguna aftur höfum við tekið
saman lýsingu á aðalsögu-
persónunum.
STEPHANIE HARPER
Núverandi höfuð Harper-
námaveldisins og annarra
fyrirtækja sem hún erfði eftir
föður sinn. Hún er Ijóti andar-
unginn sem breyttist í svan.
Núna er hún sjálfsörugg, 45
ára en lítur út fyrir að vera tíu
árum yngri, þökk sé lýtalækn-
ingu þeirri sem gerð var á
henni nokkrum árum áður.
Hún er hamingjusamlega gift
Dan Marshall, lýtalækninum
sem gaf lífi hennar nýjan til-
gang og stefnu auk þess að
gefa henni færi á að leyfa
kvenlegum eiginleikum sínum
að njóta sín.
Þrátt fyrir ríkidæmið og
stöðuna er Stephanie ósköp
venjuleg kona - hispurslaus,
áströlsk sveitastúlka sem tek-
ur bjór fram yfir kampavín.
Hún býr yfir kímni, hlýju og er
vel liðin.
Stephanie á ennþá hlut í
tískufyrirtækinu Tara þótt hún
láti lítið á sér bera á þeim vett-
vangi. Hin nýja Stephanie
dregur sig ekki út úr sviðsljós-
inu, hún á heima mitt í hringið-
unni, öruggari með sig en
nokkru sinni fyrr. Hins vegar
getur hún alltaf gripið til þess
að verða Tara Welles aftur ef
allt skyldi fara á versta veg.
Hún er tilbúin aö skjótast upp
á stjörnuhimininn hvenær sem
þurfa þykir.
Þegar Stephanie svo sér á
eftir manni sfnum, sonur
hennar snýst gegn henni og
fyrirtækiö verður fyrir áföllum
snýr hún við blaðinu, að
minnsta kosti á yfirborðinu.
Hún gerist harðsnúin og
ósveigjanleg - fullkomin
ímynd framakonunnar sem
fyrst og fremst einbeitir sér að
áframhaldandi velgengni og
54 VIKAN 11 TBL. 1990