Vikan - 31.05.1990, Side 57
þenslu veldis síns. Þrátt fyrir
þetta tekst henni aö varðveita
sinn innri mann og þá eigin-
leika sem gera hana að heil-
steyptri konu.
Leikin af Rebeccu Gilling.
DAN MARSHALL
Lýtalæknirinn Dan Marshall
er nokkrum árum eldri en
Stephanie. Þettaergeðþekkur
hugsjónamaður úr verka-
mannastétt, nú giftur auðug-
ustu konu Ástralíu. Hann
viðurkennir veraldlegt ríki-
dæmi konu sinnar á heiðarleg-
an hátt með því að viðhalda
sjálfstæði sínu.
Hann rekur sína eigin
læknastofu og nýtur virðingar í
Sydney. Uppruni hans gefur
yfirstéttarfjölskyldunni kjöl-
festu og eykur víðsýni hennar.
Þau Stephanie glata ekki hlýj-
unni eða glettninni þrátt fyrir
peningavöldin. Dan Marshall
fylgir ferskur gustur inn í fágað
andrúmsloft yfirstéttarinnar.
Erfiðleikarnir verða Dan um
megn. Þegar hótanir fara að
berast um að líf Stephanie sé í
hættu og fyrirtækið líka flýr
hann. Hann verður að hverfa í
friðsælt og rólegt eyjalífið til að
halda sönsum. En afleiðingar
þess að hann yfirgefur Step-
hanie eru gífurlegar fyrir hana.
Leikinn af James Smillie.
DENNIS HARPER
„Svarti sauðurinn", tuttugu og
eins árs gamall sonur Stepha-
nie. Hann er myndarlegur,
hrífandi kvennamaður með
litla ábyrgðartilfinningu. Denn-
is er krónprinsin og Stephanie
ætlar honum að taka við
stjórninni á Harper-námunum.
Kannski. Ekki eru allir á eitt
sáttir hvað það varðar. Hann
ákveður að gerast umboðs-
maður hnefaleikamanns, ungs
ítala, til að afla fjár upp í eitt-
hvað af fjárhættuspilaskuldun-
um. Þá rennur upp fyrir honum
að með því tengist hann undir-
heimastarfsemi Sydney. Það
skref stefnir ekki aðeins hon-
um í hættu heldur einnig öllum
sem í kringum hann eru.
Leikinn af Peter Cousens.
JAKE SANDERS
Jake Sanders er kominn á
fertugsaldurinn. Myndarlegur
og grimmur samsteypusjó-
ræningi. Rómantískur á yfir-
borðinu og kynferðislegur afl-
raunamaður.
Hann kemur frá vestur-
strönd Ástralíu í þeim tilgangi
að reyna að yfirtaka eitt af
fyrirtækjum Stephanie. Það
tekst honum með fjárhagsleg-
um yfirburðum. Þetta gerir
hann að aðalpersónu og
keppinaut um mikil völd en
setur strik í reikninginn hjá
þeim sem þegar hafa í hótun-
um við Stephanie og fjölskyldu
hennar. Hann gengur í lið með
Jilly og saman vinna þau að
því að grafa undan öllu sem
Stephanie er dýrmætast.
Sanders er einnig valdur að
því að sonur Stephanie hefur
snúið við henni bakinu og not-
færir sér hann til að koma ár
sinni betur fyrir borð. Persónu-
legir töfrar hans og aðdráttar-
afl leyna sér ekki, jafnvel
Stephanie laðast að honum
gegn vilja sínum.
Leikinn af Daniel Abineri.
JILLY STEWART
Fyrrum besta vinkona Stepha-
nie - þar til hún varð ástfangin
af Greg Marsden. Nú komin á
fimmtugsaldur, rétt sloppin úr
fangelsi þar sem hún varð að
dúsa í sjö ár fyrir aðild að
morðtilræði við Stephanie.
Árin í fangelsinu hafa tekið
sinn toll.
Hún er ákveðin í að ná fram
hefndum á Stephanie, konunni
sem hún kennir um fangavist-
ina. Jilly finnur fullkominn fé-
laga í sjónarspil sitt til að kné-
setja Stephanie þegar hún
hittir hinn volduga Jake
Sanders. Þau eiga sér sam-
eiginlegt markmið - að eyði-
leggja Stephanie Harper.
Jilly endurnýjar kynnin við
fyrrum eiginmann sinn, Phillip
Stewart, mann sem er undir
álögum þessarar fallegu og
dularfullu konu.
Jilly notar fegurð sína og
skarpar gáfur sem verkfæri
gegn Stephanie Harper og
hefur áhrif á þá sem umgang-
ast hana. Augljóst kynferðis-
legt aðdráttarafl hennar gerir
þaö að verkum að hún getur
ráðskast með fólk og með
kænskubrögðum hefur hún
ómæld áhrif á örlög margra
sem við sögu koma.
Leikin af Peta Toppano.
Fyrsti þátturinn verður
sýndur 31. maí og ætti eng-
inn að láta hann fram hjá sér
fara. Þegar í upphafi kemur
margt óvænt á daginn og
þar er að finna undiröldu
framhaldsins.
Án efa eiga þættirnir Aftur
til Eden eftir að veita banda-
rísku þáttunum harða sam-
keppni hvað varðar hraða
og spennu. Þá er bara að
gera sig kláran með poppið
fyrir framan sjónvarpið
þetta kvöld og næsti þáttur
verðu viku síðar.
Góða skemmtun!
11 TBL. 1990 VIKAN 55