Vikan - 31.05.1990, Side 58
TEXTI OG LJÓSM, RAGNAR LÁR
RÆTTVIÐ GUÐNÝJU
í BLÓMABÚÐINNI STÖR
í DOMUS MEDICA
IDomus Medica viö Egils-
götu er Blómabúðin Stör til
húsa. Þar ráöa ríkjum þær
Gerður Steinarrsdóttir og
Guðný S. Þorleifsdóttir.
Blómabúðin er lítil og snyrti-
leg, full af blómum og ýmsum
vörum tengdum þeim. Þar er
einnig að finna gjafavöru
hvers konar og er öllu þessu
komið fyrir af smekkvísi.
Þegar okkur ber að garði er
það Guðný sem stendur vakt-
ina og við spyrjum hana um til-
urð verslunarinnar.
- Við Gerður keyptum
/
„Þaö má segja að það sé eins með þessa listgrein og aðrar að enginn verði meistari af lærdómi
einum sarnan," segir Guðný, sem hér sést að störfum í blómaverslun þeirri sem hún rekur ásamt
Gerði Steinarsdóttur.
E R L I S T G R
E I N
þessa verslun 26. september
árið 1987 og gáfum henni
nafnið Blómabúðin Stör.
- Af hverju blómabúð?
- Við höfðum báðar unnið
hjá honum Ragnari Michelsen
í Hólagarði í Breiðholti og
langaði til að fara út í eigin
rekstur á þessu sviði. Okkur
bauðst þessi verslun til kaups
og urðum að taka ákvörðun á
stundinni. Við létum slag
standa og sjáum ekki eftir því.
Reksturinn hefur gengið vel
enda erum við bjartsýnar ung-
ar konur, segir Guðný og bros-
ir við.
- Hver er galdurinn við
svona rekstur?
- Við gætum þess að vera
alltaf með gott úrval af
blómum, bæði afskornum og
pottablómum. Rétt meðhöndl-
un hefur allt að segja, bæði af
okkar hálfu og viðskiptavinar-
ins. Við ráðleggjum kaupand-
anum um meðferö blómanna
en margs er að gæta í því
sambandi. Til dæmis má
nefna að sum blóm þurfa kalt
vatn, önnur volgt og enn önnur
þurfa heitt vatn.
- Þið hafið fleira en blóm á
boðstólum?
- Við reynum að eiga til
blómavasa og pottahlífar og
annað það sem tilheyrir
blómum. Við eigum líka alltaf
til þurrblómaskreytingar sem
við vinnum sjálfar.
- Er ekki mikill vandi að
búa til slíkar skreytingar?
- Ég vil nú leyfa mér að líta
á það sem listgrein. Við lærð-
um mikið af Ragnari en hann
er meistari á sviði blóma-
skreytinga. Það má segja að
það sé eins með þessa list-
grein og aðrar að enginn verði
meistari af lærdómnum einum
saman. Maöur verður að hafa
sköpunargáfu til að verkið telj-
ist gott. Litir og form verða að
vera í samræmi en skreyting-
arnar eru misjafnar eftir tilefn-
um. Það má segja að þærfylgi
ákveðnum formúlum. Þannig
er mikill munur á samúðar-
vendi og brúðarvendi, svo
dæmi sé tekið. Þegar gerður
er brúðarvöndur er nauðsyn-
legt að þekkja útlit brúðarinnar
og brúðarkjólsins.
- Stærri skreytingar?
- Já, það er spennandi að
fá stærri skreytingarverkefni.
Við höfum til dæmis skreytt
Háskólabíó og Laugardals-
höllina. Slíkum skreytingum
fylgja miklar tarnir, þar sem
verkið þarf að vinna á sem
skemmstum tíma til þess að
skreytingin sé sem ferskust.
- Hver er sérkennilegasta
skreytingin sem þið hafið gert?
- Ætli það sé ekki golfsettið
sem komið var með til okkar.
Þetta var fallegt golfsett í
glæsilegum golfpoka og átti að
gefa í afmælisgjöf. Það var
sem sagt komið meö settið til
okkar og við beðnar að
skreyta það. Svona verkefni
höfðum við aldrei fengið áöur
en ákváðum aö gera okkar
besta. Okkur datt í hug að
nota vasana sem eru á svona
pokum til að festa skreyting-
una í og veit ég ekki betur en
skreytingin hafi líkað vel.
- Áhugamálin, Guðný?
- Þau eru meðal annars
lestur góðra bóka, útivist og
ferðalög - innanlands.
- Innanlands?
- Ég hef ekki mikinn áhuga
á ferðalögum til útlanda, að
minnsta kosti enn sem komið
er. Ég á eftir að sjá svo mikið
af eigin landi. Það þarf ekki að
fara langt frá Reykjavík til að
komast út í ósnortna náttúru
og nægir að geta Heiðmerkur í
því sambandi. Annars er
Suðursveitin í sérstöku uppá-
haldi hjá mér. Þar er fallegt og
þar er líka eitthvað sem maður
ekki sér en finnur sterklega
fyrir. Hins vegar fer frítími
minn um þessar mundir í að
endurgera gamalt hús sem við
hjónin keyptum í vesturbæn-
um og ennfremur í að vinna í
garðinum sem húsinu fylgir.
Þar er verk aö vinna sem ekki
verður lokið í bráö. □
56 VIKAN ÍITBL. 1990