Vikan - 28.06.1990, Síða 26
DALAILAMAXIV OG TÍBET
SVÍVIRÐILEG ÍHLUTUN
í INNANRÍKISMÁL KÍNA MEÐ SÉRSTAKRISKÍR-
SKOTUN TIL TILVERURÉTTAR TÍBET SEM ÞJÓÐAR
STÆRSTA AFREK TÍBETSKRA
KAMPA-SKÆRULIÐA VAR AÐ
STÚTAÁ EINU BRETTI HERFORINGJA
í KÍNVERSKA ALÞÝÐUHERNUM OG
HELSTU SAMSTARFSMÖNNUM
HANS SEM VORU Á FERÐ SAMAN
UM YFIRRÁÐASVÆÐI SITT í
VESTURHLUTA LANDSINS. í
FARANGRI ÞEIRRA FUNDU TÍBETSKU
SKÆRULIÐARNIR NÁKVÆMAR
HERNAÐARÁÆTLAvNIR ALÞÝÐU-
HERSINS SEM STAÐFESTU YFIRLÝSTA
ÚTRENSLUSTEFNU KÍNVERSKRA
KOMMÚNISTA ÞETTA ÁTTI SÉR
STAÐ 1966 ÞEGAR KÍNVERJAR
HÖFÐU VAÐIÐ YFIR OG LAGT
UNDIR SIG TURKISTAN, MONGÓLÍU
OG TÍBET. ÓLÖGLEG VALDATAKA
KÍNVERSKRA KOMMÚNISTA í
ÞESSUM LÖNDUM VAR RÉTTLÆTT
MEÐ SAMBLANDI AF SLAGORÐA-
KENNDRI INNRÆTINGU UM
ANDLEGA OG VITSMUNALEGA
YFIRBURÐI KÍNVERJA OG ÞVÍ
HLUTVERKI SEM FORSJÓNIN HEFÐI
ÆTLAÐ ÞEIM SEM BOÐBERUM
ALHEIMSBRÆÐRALAGS SAMEIN-
AÐRA ÖREIGA ALLRA LANDA.
Kreddufastir kínverskir
fræðimenn á mála al-
þýðulýðveldisins halda
þeirri nýstárlegu hugmynd á
lofti að öll siðmenning heims-
ins sé frá þeim komin, og því
sé ekki óeðlilegt að þeir flæöi
yfir Norður-lndland, Pakistan,
Nepal, Bhutan, Bangla Desh,
Tailand, Malasíu, Kóreu, Víet-
nam, Kambódíu og Búrma til
að rétta hlut alþýðunnar í
þessum löndum sem enn býr
við kúgun og ok, sem á að
vera rökrétt afleiðing af „eitr-
uðum“ trúarbrögðum, eignum
Chime Dorjé, núverandi leiðtogi
tíbetskra Kampa skæruliða.
Myndin fyrir aftan hann er af
stofnanda Kampa skæruliða-
hreyfingarinnar, herforingjanum
Gompo Tashi Angdrugtsang.
Ljósmynd: Gísli Þór Gunnarsson
i einkaeign og heimsvalda-
stefnu stórveldanna.
Hugmyndafræði sósíalism-
ans gerir því skóna að „fólkið"
í hvaða landi sem er sé hlynnt
sósíalisma því mannkynssag-
an hafi margsinnis sannað að
alþýðan eigi sér ekki viöreisn-
ar von nema komið sé á al-
heimskommúnisma eftir blóð-
ugt uppgjör valdhafa kapítal-
ískra ríkja og kommúnista.
Þar af leiðandi þykir Kínverj-
um sjálfsagt að Tíbetar fagni
þeim forréttindum að fá hjálp
við að kasta fornfálegri menn-
ingu sinni fyrir róða og taka
upp trú á kommúnismann,
Maó og kínverska alþýðulýð-
veldið. Þetta skilgreina Kín-
verjar ekki sem heimsvalda-
stefnu því það liggur í hlutar-
ins eðli að einungis smáborg-
aralegir fjármagnseigendur
geta hugsanlega verið heims-
valdasinnar.
Útþenslustefna kínverskra
kommúnista byggist meðal
annars á gjöreyðingarmætti
120 kjarnorkueldflauga sem
stillt er upp á ellefu stöðum f
Tíbet, þannig að ýmis ríki í
Miðaustur-Asíu eiga ef til vill
eftir að súpa seyðiö af hersetu
500.000 Kínverja í Tíbet,
FIMMUÐA FRIÐARÁÆTIANIR
DALAILAMAXIV
Frh af bls. 24
fyrir hvernig þeir gengu frá
frumbyggjum þeirra land-
svæða Ameríku þar sem ætt-
bræður Tíbeta af mongólsk-
um upþruna höfðu hreiðrað
um sig í hæfilegri sátt og sam-
lyndi og trú á alheimsandann.
Það þóttu jafnmikil gleðitíð-
indi og útnefning Dalai Lama
XIV til friðarverðlauna Nóbels
þegar þjóðþing Bandaríkja-
manna setti þau skilyrði fyrir
fjárhagsstuðningi Bandaríkj-
anna við Kína að herlögum
yrði aflétt í Lhasa, að fulltrúar
fjölmiðla og mannréttindasam-
taka fengju landvistarleyfi í
Tíbet, pólitískir fangar í Tíbet
yröu látnir lausir og að hafnar
yrðu samningaviðræður við
Dalai Lama XIV.
Þann 1. maí 1990 gáfu Kín-
verjar út fréttatilkynningu um
▲ Ganden klaustrið í Tibet var þriðja stærsta klaustur
veraldarinnar áður en hinir rauðu varðliðar Maós gerðu
hugmyndafræðilega andúð hans á trúarbrögðum að veruleika.
Myndin hér að ofan var tekin 1920 meðan allt lék í lyndi.
26 VIKAN 13. TBL. 1990