Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 35
KÓTILETTUR
Látið kótiletturnar liggja í
12-24 stundir í kryddlegi sem
búinn er til úr matarolíu,
timian, majoram, sítrónusafa
og svolitlu af salti og pipar
líka. Berið kryddlöginn vel á
báðar hliðar kótilettanna og
geymið þær á diski eða fati
sem þið setjið inn í plastpoka
áður en honum er stungið f
ísskápinn. Þegar komið er að
því að grilla er kryddlögurinn
einnig borinn á venjulegan
lauk sem gott er að grilla og
sömuleiðis grasker sem bætir
réttinn verulega. Grillsósu má
bera með, hvort heldur sem er
keypta í búð eða búna til
heima úr tómatsósu, mörðum
ananas eða apríkósum og
viðbótarkryddi, ef fólki finnst
eitthvað vanta upp á bragðið
ennþá.
gegn. Tómatana má grilla
léttilega og að sjálfsögðu er
mjög gott að strá graslauk í
kartöfluna þegar hún hefur
verið skorin í sundur.
Sósu má búa til eða kaupa
í búð. En hér kemur að auki
einföld uppskrift sem við
fengum hjá ungri húsmóður
sem sagði að sér hefði dottið
í hug að búa til sveppasósu
með þessum hætti einu sinni
þegar hún var í útilegu með
fjölskyldunni. Hún brúnaði
nýja sveppi, setti síðan pakka
af sveppasósu í pott og mjólk
að auki en í stað þess að
þynna sósuna með öllum
vökvanum, sem talað var um í
uppskriftinni, bætti hún út í
hana hálfum piparosti og lét
hann bráðna vel og blandast
saman við. Úr þessu varð
feiknalega góð piparsveppa-
sósa sem fer vel með
T-beinssteikinni okkar.
T-BEINSSTEIK
Hér kemur svo safarík
nautasteik með bökuðum
kartöflum, tómötum og
maísstöngli. Það verður að
byrja á því að vefja álpappír
um kartöflurnar og setja þær á
grillið þar sem þær eru
nokkuð lengur að bakast í
gegn en kjötið er að stikna, að
minnsta kosti ef þær eru
stórar. Margir flýta fyrir sér
með því að stinga kartöflunum
inn í örþylgjuofninn áður en
þeir vefja álpappírnum um
þær. Þá þurfa þær lítið annað
en að hitna þegar þær koma á
grillið.
Saltið, þiprið og olíuberið
kjötið. Penslið maísstöng-
ulinn með smjöri og
leggið hvort tveggja á
grillið. Snúið bæði
kjöti og maís við af
og til svo það
grillist vel í
13. TBL 1990 VIKAN 35