Vikan - 19.09.1991, Síða 26
Umsjón: Esther Finnbogadóttir
Ljósmyndun: Bragi Þór Jósefsson
Förðun: Kristín Stefánsdóttir
með No Name Cosmetics
Hárgreiðsla: Helga og Eyrún, Carmen
Módel: Ágústa og Helena,
Módelsamtökunum.
Snigill: Gunnar Jonsson.
Inga Valborg Ólafsdóttir lauk námi í
fatahönnun síðastliöiö vor frá Mar-
grétarskólanum í Kaupmannahöfn.
Þessi ungi hönnuöur hefur strax vakið
mikla athygli fyrir hönnun sína enda er
hún sérstök og ákaflega lífleg. Inga Val-
borg var við nám í tvö ár og lærði grunn-
inn að öllu sem tengist fatahönnun, eins
og saumaskap, sníðagerð og teikningu.
Inga velur efnin oftast út frá hverri ein-
stakri flík og er hrifnust af bómull, ull og
silki. Þótt hún telji skemmtilegast að vinna
með ekta efni notar hún gerviefni að jöfnu
með. í raun er efnisvalið jafnfjölbreytt og
hönnun hennar. Hér á síðunum sjáum við
til dæmis ullarkápur, plastjakka, skyrtur
úr polyester og bómullarkjóla.
Inga Valborg er opin fyrir öllum litum og
fer litavalið nokkuð eftir árstíðum. Hún
vinnur töluvert með pastelliti og má segja
að flíkurnar séu í fremur dempuðum litum
nú í haustlínunni.
Hugmyndir þessa unga hönnuðar
koma úr öllum áttum, það er ekkert eitt
sem ræður hönnun hennar. í haustlín-
unni, sem hér sést, má þó augljóslega
greina áhrif frá sjöunda áratugnum ásamt
svolítilli framtíðarsýn. Inga leyfir hug-
myndunum að þróast í höfði sér í nokk-
urn tíma og ef hún telur hugmyndina
nægilega góða teiknar hún hana upp á
blað og saumar flíkina.
Inga leitast við að gera nothæfan
fatnað, hún ætlast ekki til að fatnaður
26 VIKAN 19. TBL 1991