Vikan - 19.09.1991, Page 33
ss
'Q
o
co
co
E2
LU
Q
CD
co
q;
Bófinn við hinn bófann: Eig-
um við að taka saman leigu-
bíl?
Hinn: Já, endilega!
Upphaflegi bófinn: Ókei, þú
tekur dekkin, ég tek útvarp-
ið, þú tekur geyminn...
Leikstjórinn var að reyna að
sannfæra fjármálastjóra kvik-
myndarinnar um að myndin yrði
mesta stríðsmynd allra tíma.
- Þetta verður það stórkost-
legasta sem nokkru sinni hefur
sést á hvíta tjaldinu. Ég verð
með raunverulega hermenn,
9000 manns í öðrum hernum og
12000 í hinum!
- 21000 statistar í einni
kvikmynd! Hvernig eigum við að
geta borgað þeim öllum? sagði
fjármálastjórinn áhyggjufullur.
- Borgað? Ekkert mál. Við
notum bara alvörukúlur!
Cecil B. DeMille auglýsti eina
af stórmyndum sínum úr
Biblíunni með viðlíka orða-
flaumi og aðrar myndir sínar:
Stórbrotin og mikilfengleg
mynd í aliri sinni dýrð. Mesta
mynd allra tima. 100.000
leikendur. Óhemju spenn-
andi. Technicoior, o.s.frv.,
o.s.frv.
John Steinbeck skrifaði um
myndina og var dómurinn á
þessa leið: Sá myndina,
finnst bókin betri.
Vitur maður sagði eitt sinn: Það
er betra að hafa munninn lokað-
an og vera talinn heimskur en
að opna hann og taka af öll tví-
mæli.
„Róleg kona, ég er aöeins að skola aí bílnum!"
Vinnuveitendur athugið: Látið
latasta starfsmanninn ávallt
fá vandasömustu verkefnin.
Hann er vís til að finna ein-
földustu og fljótlegustu leið-
ina tii að leysa þau.
- Þegar ég vil fara í bæinn er
ég alltaf of lítill og þegar ég á að
taka lýsið er ég alltaf svo stór
strákur. Má ég ekki skipta?
Svo er það einn enn af borg-
arbarninu sem sá hest á leið-
inni á Þingvöll: „Mamma,
mamma, þarna er dýr sem
labbar bæði að aftan og
framan!“
Hvað meinarðu að allt hafi farið
vel? Hann giftist henni!
hann er dáldið dýr, en það er alveg þess virði að fá
eitthvað sem ekki allir eru í.
- Eitt orð frá þér í viðbót og
ég lem þig í kjötkássu, sagði
Kalli kjaftfori við Dúdda digra.
- Þegiðu.
- Eh ... Þetta var ekki rétta
orðið.
- Datt maðurinn þinn í það í
gær?
- Já, heldur betur. Hann
var svo fullur að hann fór að
leita að eggjum í gauks-
klukkunni.
„Hún stækkar fljótt í þá!"
- Vertu nú góður strákur,
Doddi minn, og segðu Aaah
svo að læknirinn geti tekið
fingurinn á sér út úr munninum
á þér.
Síamstvíburarnir höfðu
unnið eftirvinnu alla nóttina.
Þeir voru svo þreyttir að þeir
héngu varla saman ...
- Húsbóndinn var svo nísk-
ur að hann hitaði alltaf brauð-
hnifinn til þess að konan hans
notaði ekki of mikið smjör.
Tveir strákar stæra sig af
feðrum sínum.
- Pabbi er svo ríkur að
hann á heilt dagblað.
- Hvað er svona merki-
legt við það? Dagblað kost-
ar ekki nema hundraðkall.
- Ég er milljónamæringur,
lagsi. Ég gæti keypt þig og selt
ef mér sýndist.
- Puh! Ég er margmilljóna-
mæringur. Ég gæti keypt þig
og þyrfti aldrei að selja þig
aftur.
19. TBL 1991 VIKAN 33