Vikan - 19.09.1991, Side 54
að mestu undir berum himni og lýsir á ein-
stæðan hátt daglegu lífi á Englandi um síðustu
aldamót. Þar má finna heimili tannlæknis,
kennara og lögfræðings. Á hverju þeirra er fólk
klætt samkvæmt aldamótatísku og í allri hegð-
un eins og búast má við af fólki þess tíma.
Verslanir, blaðaútgáfu, járnbrautarstöð og
kolanámu má einnig finna og þar gegnir fólk
störfum sínum af mikilli innlifun í takt við anda
safnsins.
MANNLEGIR VARNARSKILDIR
í nágrenni Newcastle má síðan finna einstæð
mannvirki reist á heimsvaldatímum Rómverja
enda markaði borgin nyrstu mörk rómverska
heimsveldisins að austanverðu. Þar er meðal
annars veggur sem Rómverjar reistu til varnar
yfirráðasvæöi sínu þvert yfir England. í mið-
borginni stendur dómkirkja sem kennd er við
heilagan Nikulás. Kirkjan er frá 14. öld að
megninu til og skartar mikilli turnspíru sem
bætt var ofan á hana 1470. Turnspíra þessi á
sér nokkuð sérstaka sögu sem endurtók sig nú
nýverið í Persaflóastríðinu. Þannig var að árið
1644 sat skoski herinn um borgina og hótaði
að sprengja turninn af með fallbyssum. Þeirra
tíma kollegi Saddams Hussein, enskur, greip
þá til ráðs nokkurs sem Saddam hafði að fyrir-
mynd til aö vernda helstu byggingar sínar.
Setti hann skoska stríðsfanga sína í turninn og
bjargaði honum þar með frá tortímingu.
PASSAÐU ÞIG Á BÍLUNUM - ÞEIR
KOMA HINUM MEGIN FRÁ
Þannig státar Newcastle bæði af sögu og sjón
auk hinna miklu verslunarmöguleika. Þetta er
hrein og falleg borg þar sem glæpir eru fátíðir
miðað við margar aðrar enskar borgir, að sögn
fulltrúa borgarinnar. Hótel og veitingastaöir af
öllum stærðum og gerðum eru á hverju strái í
miðborginni, næturklúbbar og enskir „pöbbar“
þar sem hálfur lítri af bjór kostar um 120 krónur
(slenskar, nokkuð sem mörlandinn á ekki að
venjast. Þá er vinstri umferð ökutækja á götum
borgarinnar eitthvað sem „hægrisinnaöur"
(slendingur áttar sig illa á í fyrstu. Eina gullna
reglu fann óg þó við fyrstu kynni mín af þessu
fyrirbæri; horfðu fyrst til hægri, síðan til vinstri,
áður en þú gengur yfir enska götu. Bílarnir
koma nefnilega hinum megin frá! □
RISASAFN í ANDA SÍÐUSTU
ALDAMÓTA
Skammt fyrir utan borgina er Beamish-safnið
sem meðal annars hefur fengið viðurkenningu
sem athyglisverðasta safn Evrópu. Safnið er
Byggingasaga frá A-Ö. Newcastle státar af mörgum fallegum byggingum frá fornöld til nýaldar.
Þeir eru vinaiegir „elsku kaliarnir" við kolanámuna sína.
múr. Eiginlega má segja að maður fái bygg-
ingarsögu borgarinnar beint í æð þar sem mað-
ur stendur á götuhorni og horfir á þrjár bygg-
ingar hlið við hlið, hverja frá sínu tímabilinu.
Eftir gangstéttunum hlaupa síöan riddarar nú-
tímans vopnaöir greiðslukortum, ferðatékkum
og enskum pundum enda er Newcastle að
verða ein helsta verslunarborg Englands.
STÆRSTA VERSLUNARMIÐSTÖÐ
EVRÓPU
Lega borgarinnar meðfram ánni gerir þaö að
verkum að ef gist er í miöbænum er stutt [
helstu verslunargötur og verslunarmiðstöðvar.
Það sem kom einna mest á óvart við borgina
var að hún státar nú af stærstu verslunarmið-
stöð Evrópu, Metro Center. Miðstöðin er um
það bil fimm kílómetra utan við miðbæinn og
þar má finna flest þaö sem hugurinn girnist í
yfir þrjú hundruð og fimmtíu verslunum undir
einu þaki. Óhætt ætti að vera að mæta á
svæðið á bíl þar sem tólf þúsund bílastæöi eru
til taks en auk þess ganga sérstakar járnbraut-
arlestir og almenningsvagnar til verslunarmið-
stöðvarinnar. Dæmi eru þess að á sérstökum
rútustæðum hafi á einum degi verið þar þrjú
hundruð og fimmtíu rútur og þá voru þar
hundrað og fimmtíu þúsund manns að versla.
Það mun vera um fimm kílómetra labb að fara
í gegnum alla keðjuna og á leiðinni er hægt að
tylla sér á einhvern af þeim fimmtíu veitinga-
stöðum sem þar eru. Auk verslana er í mið-
stöðinni skemmtigarður með hringekju og fleiri
leiktækjum, tíu sala kvikmyndahús og keilusal-
ur.
( miðbænum er síðan önnur risastór versl-
unarmiðstöð, Eldon Square. Úr henni er geng-
ið út á mestu verslunargötu Newcastle borgar,
Northumberland street. Verð í verslunum mun
vera fyllilega sambærilegt við aðrar borgir
bæði á Englandi og í Skotlandi og stöðugt
færist í vöxt að fólk fari þangað í verslunarferð-
ir. En Newcastle og nánasta umhverfi borgar-
innar státar af fleiru en verslunum.
Þessl aldurhnigni „erni“ strætisvagn flutti gesti
milli áfangastaða í Beamish-safninu.
54 VIKAN 19. TBL. 1991