Vikan - 19.09.1991, Page 60
EAUv&EnnE
wíMBWii
DUNE
- NVTTILMVATN FRÁ CHRISTIAN DIOR
Christian Dior er eitt
mest leiðandi snyrti-
vörumerki í heimin-
um. Fyrirtækið framleiðir bæði
tískuföt í hæsta gæðaflokki og
síðan hvers konar snyrtivörur.
Stór hluti starfseminnar er
fólginn í framleiðslu og sölu á
sex vinsælustu ilmvötnum í
heimi, Poison, Miss Dior, Eau
Fraiche, Diorissimo, Diorella
og Dioressence. Um þessar
mundir, rúmlega fjörutíu árum
eftir að fyrsta ilmvatnið frá
Christian Dior kom á markað-
inn, kynnir fyrirtækið nýtt
ilmvatn, DUNE, sem þýðir
sandalda og á að undirstrika
kvenleika og mýkt. Fram-
leiðendur lýsa þessu nýja ilm-
vatni meðal annars með eftir-
farandi orðum í lauslegri þýð-
ingu:
DUNE - þar sem þögnin er
hljómur tilfinninganna.
DUNE - dularfullur keimur
sterkrar en viðkvæmrar þrár.
Ilmvatn hugans ríkt af ham-
ingju, ilmvatn hjartans fullt af
blíðu.
Ilmvatn sem kallar fram
minningar um sumar bernsk-
unnar.
Hárfín töfrablanda mjúkrar
anganar fágætra blóma. Hún
bráðnar af hita sólar og kólnar
í hafgolunni.
Fjölbreytni og vöruvöndun
eru kjörorð Christian Dior. Það
er því erfitt verkefni sem
starfsmenn fyrirtækisins þurfa
að leysa við hönnun nýrra ilm-
vatna. Markaðurinn verður þar
að auki kröfuharðari með
hverju árinu. Christian Dior
hefur svaraö þessu með því
að margefla rannsóknarstofur
sínar, sem hver starfar á sínu
sérsviði. Talsmenn fyrirtækis-
ins lýsa framleiðslu sinni og
markmiðum á þann veg að
hún sé fólgin í mörgum þáttum
sem sumir hverjir séu mjög
andstæðir - „svo sem list og
iðnaður, vísindi og aðdráttar-
afl, tilfinning sem blandast
framtíð og fortíð og leitin að
fullkomnun efnis og gæða“.
HEFUR ÞÚ ÁHYGGJUR AF
BÓLUNÍ OG FÍLAPENSLUM?
• ÞÚ GETUR PRÓF-
AÐ MARBERT PURA
CUT-LÍNUNA • ÞÉR
AÐ KOSTNAÐAR-
LAUSU? • SÍÐUSTU
FORVÖÐ • FREST-
URINN RENNUR ÚT
26. SEPTEMBER
Nú hefur MARBERT
snyrtivöruframleiðand-
inn í Þýskalandi, sem
þekktur er fyrir heilnæmar
snyrtivörur, komið með nýja
„línu“ á markaðinn, PURA
CUT. Um er aö ræða krem
sem inniheldur lifræna efnið
BIO VICIL. Það mýkir húðina
og eyðir bólgum og bólum.
Viltu prófa? Þú getur það ef
þú ert á aldrinum 14-25.
Þá fyllirðu út meðfylgjandi
seðil og sendir okkur. Ef þú
gerir það fyrir 26. september
færðu senda túbu af PURA
CUT - BALANCING GEL og
bækling um PURA CUT-lín-
una. Við munum síðan draga
út 30 seðla og bjóða hinum
heppnu að taka þátt í prufu-
meðferð. Viðkomandi Viku-
lesendur fá þá senda alla „lín-
una“ frá MARBERT og verður
boðið að taka þátt í 30 daga
meðferð. □
K
Já, ég vil prófa PURA CUT
Allir sem senda inn þennan seðil
fá sent sýnishorn af
PURA CUT
NAFN .
HEIMILISFANG.
PÓSTFANG __
ALDUR______
Þessi miði þarf að hafa borist SAM-útgáfunni fyrir 26. september.
Heimilisfangið okkar er: VIKAN, Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík.
K
60 VIKAN 19. TBL1991