Vikan - 19.09.1991, Blaðsíða 68
Morðingi að hlusta á dóm sinn í
ítölsku réttarhaldsmyndinni
Open Doors.
syni sfnum í morgunverö og
játar á sig morðin af fúsum og
frjálsum vilja. Hann vill fá
dauðadóm en dómarinn, sem
dæmir í málinu, er á móti
dauðarefsingu. Hann vill fá
góða og gilda ástæðu fyrir
þessum illa verknaði. Morð-
inginn sleppur við dauðarefs-
ingu, öllum til mikillar furðu.
Mörgum árum síðar er málið
tekið fyrir aftur og þá kemur
margt upp á yfirbórðið sem
ekki var vitað um áður. Þetta
er ítölsk réttarhaldsmynd,
byggð á sannsögulegum at-
burðum.
Dicembre eða Desember
er líka dramatísk mynd sem
fjallar um hvernig kona nokkur
sigrast á sjálfri sér eftir að hafa
misst eiginmann sinn rétt fyrir
jólahátíðina. Þetta er sorgleg
mynd en mannleg.
Við skulum þessu næst
vinda okkur yfir í franskar kvik-
myndir. Ein frönsk kvikmynd
hefur fengið frábærar móttök-
ur f kvikmyndahúsum Evrópu.
Hún er í tveimur hlutum og
heitir La gloire de mon pére
(Dýrð föður míns) og Le chat-
eau de ma mére (Höll móður
minnar). Myndin fjallar um
æskuár Marcel Pagnol sem
er nafntogaður höfundur f
heimalandi sínu, Frakklandi.
Sögusviðið er Suður-Frakk-
land sem síðustu aldamót.
Fjallað er um strákapör, sam-
skipti barna og foreldra og síð-
ast en ekki síst ástina. Myndin
eða myndirnar verða sýndar f
Regnboganum f lok þessa
árs.
I Daddy Nostalgie leika
nafnkunnir leikarar sem ekki
hafa þó leikið lengi, Dirk Bog-
arde (The Night Porter) og
Jane Birkin. Myndin er undir
leikstjórn Bertrands Tavern-
ier sem leikstýrði djassmynd-
inni Round Midnight árið
1986 og hlaut lofsamlega
dóma á kvikmyndahátíðinni
í Cannes. Daddy Nostalgie
greinir frá dauðvona manni.
Hann á dóttur sem hann hefur
ekki hitt lengi. Hann langar að
kynnast henni aftur þar sem
djúp gjá hefur myndast milli
þeirra. Hann vill sem sagt
bæta fyrir öll árin sem hann
hefur ekki séð dóttur sína.
Dóttirin kemur og heimsækir
föður sinn. Hún ákveður síðan
Monsieur Hire eða Herra
Hire, sem gerö var árið 1989
og var undir leikstjórn Patric-
es Leconte, hlaut góðar við-
tökur bæði á meginlandi Evr-
ópu, Bretlandseyjum og viti
menn - f Bandaríkjunum.
Þetta er sakamálamynd í
„Film Noir“ stíl. Nú hefur sami
leikstjóri gert mynd sem heitir
á íslensku Maður hár-
greiðslukonunnar. Þar er
greint frá hjónum sem reka
hárgreiðslustofu. Þau elska
hvort annað svo mikið að þeim
er gersamlega sama hvað
gerist utan við þeirra líf. Ekkert
annað kemst að hjá þeim
nema .. .að njótast og lifa líf-
inu. Það er einmitt það.
Alain Delon, sem er álíka
þekktur leikari og Gerard
Depardieu og Jean Paul Bel-
mondo, leikur í nýrri franskri
hasar- og glæpamynd sem
Litli strákurinn úr Paradísarbíóinu og stórleikarinn ítalski
Marcello Mastroianni taka tal saman í myndinni Stanno tutti
bene eða Ölium líður vel.
◄ Domenico vinnur á lítilli
brautarstöð og skýrir út fyrir
dömunni hvenær von er á
næstu lest, hennar lest.
Svipmynd úr myndinni La
Stazione eða Brautarstöðinni.
að vera um kyrrt til að sinna
honum. Hún kveður hann síð-
an á ástríkan hátt þegar hann
lýkur jarðvistinni. Myndin er
mjög hjartnæm.
Nuit déte en ville eða
Sumarnótt í borg er mjög
óvenjuleg mynd. Þar leika ein-
ungis tvær persónur sem eru
þar aö auki naktar í gegnum
alla myndina. Um hvað ræða
svo þessar manneskjur. Nú
auðvitað ástina. Þessari mynd
hefur verið líkt við Betty Blue
sem Jean-Hugues Anglade
leikstýrði árið 1986. Sumar-
nótt í borg er djörf og gaman-
söm að auki.
heitir Dancing Machine. Leik-
ur hann glæpaforingja með
sítt svart hár og þriggja daga
skegg. Myndin hefur fengið
fádæma góða dóma á megin-
landi Evrópu. Auk þess hefur
Alain Delon fengið lofsamlega
dóma fyrir leik sinn í myndinni.
Franska leikkonan Sophie
Marceau leikur í mynd sem
heitir Pacific Palisades og
fjallar um unga franska stúlku
sem sér Bandaríkin í hilling-
um. Hún heldur til drauma-
landsins en gerir sér síðan
grein fyrir að ekki er allt gull
sem glóir. Það er mikill munur
á draumi og veruleika. Per-
sónan, sem Sophie Marceau
túlkar, gefst þó ekki upp því
hún veit það innst inni að
vandamál eru til þess eins að
sigrast á þeim. Ekki satt!
Kona sem sigrast á sjálfri sér
eftir að hafa misst eiginmann
sinn. Svipmynd úr kvikmyndinni
Dicembre eða Desember.
Eiturlyfjafíkill i einni smásög-
unni. Svipmynd úr kvikmynd-
inni Tarassachi.
Ástin blossar upp í Pacific
Palisades.
VIKAI'