Vikan - 14.11.1991, Page 16
VIÐTAL: VALGERÐUR JONSDOKIR / MYNDIR: BINNI
- í HEIMSÓKN HJÁ SÉRA HÖNNU MARÍU PÉTURSDÓTTUR,
SÓKNARPRESTI OG ÞJÓÐGARÐSVERÐI
Grösin eru farin að
grána meðfram veg-
inum og það stirnir á
ísi lagða pollana þegar ekið er
inn í þjóðgarðinn Þingvelli,
náttúruperlu landsins. Þetta er
einn af ægifögru haustdögun-
um á þessum slóðum, haust-
laufin í brekkunum skipta litum
eins og feimin ungmenni,
sumar brekkurnar eru gulli
lagðar en aðrar eins og log-
andi eldhaf. Birtan kveikir í
þessu öllu saman og úr verður
eitt allsherjar fegurðarflóð.
Fegurðin er yfirþyrmandi og
verður til þess að bíllinn fer í
hægðum sínum að prestssetr-
inu að Þingvöllum þar sem nýr
sóknarprestur Þingvalla og
þjóðgarðsvörður er nýbúinn
að koma sér fyrir og pakka
▲ Hönnu
Maríu hefur
verið trúað
fyrir miklu,
- þjóðgarð-
inum á
þessum
fornhelga
stað og
Þingvalla-
kirkju.
upp búslóðinni frá Skálholti.
Hanna María Pétursdóttir
kemur til dyra, svartklædd frá
hvirfli til ilja. Hún býður til stofu
og það fyrsta sem augað nem-
ur er stórt málverk af Þingvöll-
um á veggnum andspænis.
„Þetta er mynd eftir Kjarval,"
segir Hanna Maria. „Ég var
fyrst ekki sátt við hana og ætl-
aði að taka hana niður því mér
fannst hún svo dimm. En ég
held ég sé búin að sætta mig
við hana, meira að segja búin
að finna út á hvaða tíma sólar-
hringsins hún er fallegust og
hvenær hún er að öllum líkind-
um máluð. Ég held hún sé
máluð eldsnemma að morgni
því sólin er að koma upp og
því víða skuggar í myndinni.
Ég kann betur og betur við
1 6 VIKAN 23. TBL. 1991