Vikan - 14.11.1991, Side 29
GALENCO
MOISTUUISING
Ck'1'..MU FOAMBATH
UoOmlC
SÍMAR 32010 OG 36462
ERCO sf.
GENTLE CARE LINAN
GBvTLt CARt
SHAMPOO
GALENCO
galenco
FOAMING
•BATH OIL-
awcoNwö^siK
£ 03
Húðsérfræðingar
Galenco-fyrirtækis-
ins hafa hannað
framleiðslu sína
sérstaklega fyrir
viðkvæma og
þurra húð.
Aðeins eru notuð
mild náttúruleg efni.
SJAMPÓ • FREYÐIBAÐ
• FREYÐIBAÐOLÍUR •
BARNASJAMPÓ O.FL.
og ströndinni. Þannig er lista-
maður. Þannig er vitur maður.
Óskarsverðlaun og auðæfi
skipta ekki máli. Það sem
skiptir máli eru vonbrigðin sem
maður hefur gengið í gegnum.
Mér finnst ég kannast við það í
honum; að harmleikurinn sem
umlykur hann hefur uppfrætt
hann.“
FIMM ÁRA FYRIRVINNA
Þegar Jodie talar um að hún
komi frá „harmleikjum" er
maður ekki alveg viss um
hvað hún á við. Að alast upp
föðurlaus? Að sjá fyrir fjöl-
skyldu sinni fjárhagslega sem
barn? Martröðina vegna
Johns Hinckley?
Hún fæddist í Los Angeles
árið 1962, yngst fjögurra
barna. Foreldrar hennar skildu
þegar hún var nokkurra mán-
aða gömul og hún hefur að-
eins séð föður sinn fjórum
sinnum á ævinni. Þegar
Buddy, bróðir Jodie, fór að
leika í auglýsingum níu ára
gamall gerðist Brandy móðir
þeirra „sviðsmóðir" og tók
Jodie litlu með sér í upptökur
Buddys. Þegar Jodie var
þriggja ára reyndi bróðir henn-
ar að fá starf í Coppertone-
auglýsingu. Þá vakti Jodie at-
hygli og hún fékk hlutverk litlu
stúlkunnar sem hvolpurinn
tekur buxurnar niður um.
Jodie lék einungis í auglýs-
ingum þar til hún var fimm ára.
Næstu fjögur árin kom hún
fram í fimmtíu sjónvarpsþátt-
um. Átta ára gömul lék hún f
sinni fyrstu kvikmynd og kvik-
myndaferill hennar var kominn
á fulla ferð þegar hún var tíu
ára. Hún gekk [ Lycée Franca-
is-skólann ( Los Angeles og
flutti þar kveðjuávarp á
frönsku þegar hún útskrifaðist
1980.
Þegar Jodie hóf nám við
Yale haustið 1980 var það lík-
lega fyrsta tilraun hennar til að
lifa eðlilegu lífi. En sú tilraun
varð að engu 30. mars 1981
þegar John Hinckley, sem
reyndi að myrða Reagan
Bandaríkjaforseta þann dag,
kvaðst hafa drýgt ódæðið til
þess að ganga í augun á Jod-
ie Foster. Hún var átján ára
gömul og þjáðist af þunglyndi
lengi eftir atvikið.
Þegar Jodie tók við óskars-
verðlaununum fyrir hlutverk
sitt í Accused flutti hún ræðu
sem komin er í annála í kvik-
myndaborginni. „Þetta er svo
mikið mál,“ byrjaði hún, „og
mitt líf er svo einfalt. Það rúm-
ast ekki margt í því - annað
en ást og starfið og fjölskyld-
_ _ ii
an...
Að Jodie skuli álíta líf sitt
einfalt - eða óska þess að það
væri það - er hugsanlega það
við hana sem er í senn mest
hrífandi og fer mest í taugarn-
ar á fólki. Enginn lifir einföldu
lífi, sérstaklega ekki kvik-
myndastjarna sem lék mellu
tólf ára gömul. En þessar
stöðugu þreifingar hennar í átt
að „eðlilegheitum" eru hluti af
því sjálfsafneitandi píslar-
vættiskerfi sem hún hefur
komið sér upp. „Hluti af mér er
haldinn ofsóknarkennd sem
gerir það að verkum að mér
finnst ég alltaf bera ábyrgð á
öllu sem gerist í kringum mig,“
viðurkennir hún.
Jodie Foster er orðin leik-
stjóri og enginn sem kannast
við hana er vitund hissa á því.
En það sem kemur á óvart er
að þó hún þyrfti að verða „full-
orðin“ tólf ára, stjórna frama-
ferli sínum, sjá fyrir fjölskyldu
sinni og svo að takast á við
ástand sem stofnaði öryggi
þjóðarinnar I hættu átján ára,
þá er hún á margan hátt enn
barn. Hún er góða stúlkan
sem veit að það er slæmt að
reykja.
Judie Foster áttl stórkostlegan leik á móti
Anthony Hopklns I myndinni Lömbin þagna, sem
sýnd var I Háskólablói í sumar.
Komin f hlutverk leikstjórans aó veita aðalleikar-
anum tilsögn fyrlr upptöku.
23.1BL. 1991 VIKAN 29