Vikan


Vikan - 14.11.1991, Page 29

Vikan - 14.11.1991, Page 29
GALENCO MOISTUUISING Ck'1'..MU FOAMBATH UoOmlC SÍMAR 32010 OG 36462 ERCO sf. GENTLE CARE LINAN GBvTLt CARt SHAMPOO GALENCO galenco FOAMING •BATH OIL- awcoNwö^siK £ 03 Húðsérfræðingar Galenco-fyrirtækis- ins hafa hannað framleiðslu sína sérstaklega fyrir viðkvæma og þurra húð. Aðeins eru notuð mild náttúruleg efni. SJAMPÓ • FREYÐIBAÐ • FREYÐIBAÐOLÍUR • BARNASJAMPÓ O.FL. og ströndinni. Þannig er lista- maður. Þannig er vitur maður. Óskarsverðlaun og auðæfi skipta ekki máli. Það sem skiptir máli eru vonbrigðin sem maður hefur gengið í gegnum. Mér finnst ég kannast við það í honum; að harmleikurinn sem umlykur hann hefur uppfrætt hann.“ FIMM ÁRA FYRIRVINNA Þegar Jodie talar um að hún komi frá „harmleikjum" er maður ekki alveg viss um hvað hún á við. Að alast upp föðurlaus? Að sjá fyrir fjöl- skyldu sinni fjárhagslega sem barn? Martröðina vegna Johns Hinckley? Hún fæddist í Los Angeles árið 1962, yngst fjögurra barna. Foreldrar hennar skildu þegar hún var nokkurra mán- aða gömul og hún hefur að- eins séð föður sinn fjórum sinnum á ævinni. Þegar Buddy, bróðir Jodie, fór að leika í auglýsingum níu ára gamall gerðist Brandy móðir þeirra „sviðsmóðir" og tók Jodie litlu með sér í upptökur Buddys. Þegar Jodie var þriggja ára reyndi bróðir henn- ar að fá starf í Coppertone- auglýsingu. Þá vakti Jodie at- hygli og hún fékk hlutverk litlu stúlkunnar sem hvolpurinn tekur buxurnar niður um. Jodie lék einungis í auglýs- ingum þar til hún var fimm ára. Næstu fjögur árin kom hún fram í fimmtíu sjónvarpsþátt- um. Átta ára gömul lék hún f sinni fyrstu kvikmynd og kvik- myndaferill hennar var kominn á fulla ferð þegar hún var tíu ára. Hún gekk [ Lycée Franca- is-skólann ( Los Angeles og flutti þar kveðjuávarp á frönsku þegar hún útskrifaðist 1980. Þegar Jodie hóf nám við Yale haustið 1980 var það lík- lega fyrsta tilraun hennar til að lifa eðlilegu lífi. En sú tilraun varð að engu 30. mars 1981 þegar John Hinckley, sem reyndi að myrða Reagan Bandaríkjaforseta þann dag, kvaðst hafa drýgt ódæðið til þess að ganga í augun á Jod- ie Foster. Hún var átján ára gömul og þjáðist af þunglyndi lengi eftir atvikið. Þegar Jodie tók við óskars- verðlaununum fyrir hlutverk sitt í Accused flutti hún ræðu sem komin er í annála í kvik- myndaborginni. „Þetta er svo mikið mál,“ byrjaði hún, „og mitt líf er svo einfalt. Það rúm- ast ekki margt í því - annað en ást og starfið og fjölskyld- _ _ ii an... Að Jodie skuli álíta líf sitt einfalt - eða óska þess að það væri það - er hugsanlega það við hana sem er í senn mest hrífandi og fer mest í taugarn- ar á fólki. Enginn lifir einföldu lífi, sérstaklega ekki kvik- myndastjarna sem lék mellu tólf ára gömul. En þessar stöðugu þreifingar hennar í átt að „eðlilegheitum" eru hluti af því sjálfsafneitandi píslar- vættiskerfi sem hún hefur komið sér upp. „Hluti af mér er haldinn ofsóknarkennd sem gerir það að verkum að mér finnst ég alltaf bera ábyrgð á öllu sem gerist í kringum mig,“ viðurkennir hún. Jodie Foster er orðin leik- stjóri og enginn sem kannast við hana er vitund hissa á því. En það sem kemur á óvart er að þó hún þyrfti að verða „full- orðin“ tólf ára, stjórna frama- ferli sínum, sjá fyrir fjölskyldu sinni og svo að takast á við ástand sem stofnaði öryggi þjóðarinnar I hættu átján ára, þá er hún á margan hátt enn barn. Hún er góða stúlkan sem veit að það er slæmt að reykja. Judie Foster áttl stórkostlegan leik á móti Anthony Hopklns I myndinni Lömbin þagna, sem sýnd var I Háskólablói í sumar. Komin f hlutverk leikstjórans aó veita aðalleikar- anum tilsögn fyrlr upptöku. 23.1BL. 1991 VIKAN 29
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.