Vikan - 14.11.1991, Side 36
Ljósm. : Róbert Ágústsson
MOEIÐUR
Aö öllum öðrum söngvur-
um ólöstuöum ber
i Móeiöi Júníusdóttur
hæst á sýningunni Aftur til for-
tíðar á Hótel íslandi.
Fullt nafn: Móeiöur Júníus-
dóttir.
Aldur: 19 ár.
Foreldrar: Guörún Guðlaugs-
dóttir blaðamaður og Júníus
Kristinsson.
Systkini: Fimm systkini, ég er
í miðjunni, ef svo má segja.
Þjóðfélagsstaða: Aumur
nemi í MR.
Uppáhaldsnámsgrein: Saga.
Kærasti: Eyþór Arnalds,
sellóleikari í Todmobile.
Stundarðu íþróttir? Nei, ég
er löngu hætt svoleiðis.
Áhugamál: Tónlist.
Hlustarðu á þungarokk? Já,
þegar ég er pínd til þess. Ann-
ars var ég aö hlusta á Metallic
um daginn og mér fannst þeir
mjög góðir.
Áttu bíl skoðaðan ’92? Ég á
engan bíl, bara fætur.
Hvernig iíst þér á ár
söngsins? Mjög vel.
Söngkonur sem eru í upp-
áhaldi hjá þér: Billy Holiday,
Aretha Franklin, Marlene Di-
etrich.
Hefurðu hug á því að verða
söngkona að atvinnu? Nei,
ekkert endilega.
Ef þú fengir að ráða landinu
i eina viku, hvað myndir þú
gera? Láta byggja tónlistar-
hús.
Pælirðu eitthvað í pólitík?
Nei, afskaplega lítiö. Samt er
maöur stundum pínulítið æst-
ur yfir henni.
Hvað líður þínum sparnaði?
Mínum sparnaöi! Ég er mjög
sparsöm, óskaplega sparsöm.
Ertu góður kokkur? Ég kann
að elda pasta, það er mjög
auðvelt.
Uppáhaldsmatur: Pasta! Ég
borða ekki kjöt, er eiginlega á
grænmetislínunni.
Reynirðu að tolla í tískunni?
Nei, ég er nostalgíumann-
eskja í klæðaburðu, dái hrein-
lega gömul föt. Ég reyni líka
að hafa nýtt með, blanda sam-
an gömlu og nýju.
Gætirðu hugsað þér að vera
módel? Nei. Aldrei.
Uppáhaldshljómsveit er-
lend/íslensk: Lenny Kravitz
og Todmobile (hlær óskap-
lega).
Besta lag sem þú hefur
heyrt: l’m Gonna Stand by My
Woman, með Lenny Kravitz.
Áttu þér einhvern draum
eða einlæga ósk? Að lifa líf-
inu lifandi!
OGRÓL
Mötley Crue:
A Decade of Decadence
Frá Los Angeles kemur hljóm-
sveitin Mötley Crue og hér er
komið samansafn bestu/
vinsælustu laga hennar á rúm-
lega klukkutíma diski. Hljóm-
sveitin er að fagna áratugar
samstarfi og er platan þver-
skurður af því tímabili. Á henni
eru einnig ný lög og svo endar
hún á útgáfu Mötley Crue á
lagi Sex Pistols, Anarchy in
the UK.
Þetta eru kraftmiklir drengir
og villtir og sum lögin bera það
með sér, svo sem Dr. Feel-
good af samnefndri plötu frá
1989 og Primal Scream, eitt
nýju laganna. Einnig er að
finna á plötunni lag sem mark-
Þeir eru rækilega tattóveraðir,
félagarnir í þungarokkshljóm-
sveitinni Mötley Crue.
aði viss tímamót í ballöðugerð
hjá þungarokkshljómsveitum,
lagið Home Sweet Home sem
talin er fyrsta „kraftballaöan".
Fyrir þungarokksfíkla og að-
dáendur Mötley Crue er þetta
nauðsynleg þlata, fyrir hina
hljómar hún kannski eins og
hvert annað þungarokksband.
EINKUNN: ★★★