Vikan - 14.11.1991, Síða 49
„Magga mín, ætlarðu ekki að fara
að gifta þig,“ spurði faðirinn 25 ára
gamla dóttur sína.
„Já, en pabbi, þú veist hvað ég
hef litla löngun til að fara frá
mömmu."
„Hmm, geturðu ekki bara tekið
hana með þér?“
- Einhver var að segja mér
að kærastinn þinn væri
nískur. Er það ekki einhver
vitieysa?
- Ja, hann gekk lengi með
fimm hundruð króna seðil á
sér en tímdi ekki að eyða hon-
um fyrr en myndin á honum af
Jóni Sigurðssyni var orðin
fúlskeggjuð.
Síminn hringdi á fæðingar-
heimilinu og æst rödd á hinum
enda línunnar sagði: „Sendið mér
sjúkrabíl strax. Konan mín er að
fara aö eignast barn.“
„Vertu rólegur," sagði hjúkrun-
arkonan. „Er þetta fyrsta barnið
hennar?“
„Nei, þetta er eiginmaðurinn."
Vinur okkar kom heldur seint
heim eina nóttina. Hann var
vel við skál og kaus að kom-
ast í rúmið án þess að frúin
vaknaði og yrði vör ástands-
ins, sem á honum var.
Eftir talsverðar vangaveltur
fékk hann snjalla hugmynd.
Hann fór inn í eldhúsið, sem
var á neðri hæðinni, safnaði
saman pottum og pönnum,
batt allt saman í langa snúru
og dró á eftir sér upp stigann
og inn í svefnherbergi -sann-
færður um að frúin mundi
ekki heyra fótatak hans fyrir
skarkalanum í búsáhöldun-
um.
- Afsakið ónæðið, herra minn,
en getur verið að ég hafi séð þig
einhvern tíma á Egilsstöðum?
- Nei, útilokað. Þangað hef
ég aldrei komið.
- Ekki ég heldur. Þetta hljóta
bara að vera einhverjir tveir
aðrir.
- Mikið rosalega ertu með
falleg og kynæsandi brjóst.
- Þetta segirðu bara af því
að þú ert örugglega kynferð-
islegt viðrini.
- Ég? Nei, ég meina þetta,
Kalli.
FINNDU 6 VILLUR
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
! jbiuba aji ‘Qe>(uu!uj jni9L| jeuunuo>( e>(ser ‘uuewej) esof| e jbuujo>i
nja jn|Q) ‘tsAajq jnjaij jBBniB 'jBQau ja suueujnios puoi) ‘ejjæis ja Q|i||>is
STIÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Samningar geta tekið á
sig tilfinningablæ um helgina
(eftir 15. nóv) svo að þú skalt
beita skynseminni. Þú þarft að
leita upplýsinga um langan veg
en græðir lítið á þeim. Reyndu
að útkljá deilumál 28. nóvember
og koma málum á hreint.
n, NAUTIÐ
20. apríl - 20. maí
Tilfinningar þínar eru
sterkar núna og geta annað-
hvort leitt til aðskilnaðar eða
treyst bönd, jafnvel hvort
tveggja. Reyndu að Iáta ó-
ákveðni einhvers ekki fara í
taugarnar á þér. Notaðu tímann
frekar til skapandi verkefna.
TVÍBURARNIR
21, maí - 21. júní
Tilfinningar þínar krefj-
ast úrlausnar sem allra fyrst. Ef
þér tekst ekki að losa um þær
gera þær það sjálfar. Reyndu
að losa um spennuna því að
annars gætirðu lent í sjálfheldu
um stundarsakir. Varaðu þig á
freistingunum.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Tilfinningar þínar eru í
hámarki. Þú getur kannski ekki
stjórnað þeim en þú gætir reynt
að slaka á. Heimilið þitt heldur
áfram að vera griðastaður í erli
hversdagslífsins. Snúðu til kast-
ala þíns þegar þú þarft að
endurnæra þig.
UÓNIÐ
23. júlf - 23. ágúst
Nýjar hugmyndir halda
áfram að skjóta upp kollinum og
þótt þær séu ef til vill á undan
tímanum vinnur sköpunarhæfni
þín ennþá yfirvinnu. Félags-
skapur, sem hefur átt erfitt upp-
dráttar, kemst loksins í höfn.
Treystu samt ekki ókunnugum
um of.
MEYJAN
24, ágúst - 23. sept.
Fjármálin virðast traust
en láttu eyðsluna samt haldast í
hendur við forgangsverkefnin.
Þér er óhætt að slaka á því það
er annatími framundan. Þú ert
farin(n) að eyða fullmiklum tíma
utan heimilisins. Láttu það ekki
bitna á fjölskyldunni.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Nú eru góðir dagar fram
undan. Besta fjárfestingin núna
varðar sjálfa(n) þig eða ímynd
þína. Með frumorku þinni hef-
urðu nefnilega ákjósanleg áhrif
á aðra og opnar áður lokaðar
dyr. Reyndu bara að gera ó-
skýrar hugmyndir aðgengilegar.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
Áhrifa frá Mars og Plútó
gætir sterklega í merki þínu eftir
15. nóv. Þau gætu fengið þig til
að segja eitthvað vanhugsað og
sjá eftir því. Á hinn bóginn eykst
mannþekking þín og þú sérð
nýjar hliðar á fólki með því að
rannsaka viðbrögð þess.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Óvissa um framtíðar-
stefnu þína gæti aukið þér
kvíða en þú verður að taka af
skarið. Þú getur svo sem rætt
málið og hlustað á álit annarra
en þú þarft sjálf(ur) að meta á-
standið út frá eigin eðlisávísun.
Hafðu augun opin.
STEINGEITIN
22. des. - 19. janúar
Hugsanir þínar fara að
beinast inn á við þegar líður á
mánuðinn og tengjast framtíð-
aráformum. Þótt ekki sé tími til
mikilla breytinga núna geturðu
farið að undirbúa jarðveginn fyr-
ir framtíðina. Farðu samt spar-
lega með bjartsýnina.
VATNSBERINN
20. janúar -18. febrúar
Samskiptamálin verða
með allra besta móti á næstunni
og kalla það besta fram í fari
þínu. Reyndu því að láta gott af
þér leiða. Láttu göfugustu hug-
sjónir þínar vera leiðarljós þitt
án nokkurrar sérplægni. Það
skilar sér fljótt til baka.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Hugleiðingar þínar núna
snúast um að styrkja bönd þín
við ákveðna manneskju. Ein-
beittu þér samt að aðkallandi
viðfangsefnum. Seint í mánuð-
inum taka athafnir þínar nei-
kvæða stefnu, sennilega vegna
rangrar stefnu. Það leiðréttist þó
von bráðar.
23. TBL. 1991 VIKAN 49