Vikan - 14.11.1991, Page 55
fara í stærri brekkur svona í
fyrsta skiptið.
Nokkrum dögum síðar á-
kváðum við að skella okkur
aftur á skíði. Ég fór nokkrar
ferðir í barnabrekkunni til að
hita mig upp fyrir stóru brekk-
una sem var nokkuð ógnvæn-
leg aö sjá. Ég taldi mig þó fær-
an í flestan „snjó“ og að sjálf-
sagt yrði ég ekki í vandræðum
með að fara hana þessa. í
þessari brekku var diskalyfta
eins og í barnabrekkunni
nema hvað hún var mun
stærri.
Það var tilkomumikið útsýni
úr lyftunni í allar áttir en mikið
voðalega fór hún hátt. Þegar í
brekkuna kom sá ég að hún
var allmiklu brattari og lengri
en barnabrekkan. Konan fór á
undan mér niður brekkuna
sem áöur, svo ætlaði ég að
fylgja á eftir í fallegu svigi. Hún
kallaði til mín: „Ekki fara
þar...“ Þá heyrði ég ekki
meira því að þegar ég ætlaði
að fara svigið á eftir henni
vildu skíðin fara beint niður
brekkuna og að sjálfsögðu þar
sem hún var bröttust.
Ég er ekki frá því að það
hefði tekist ef ekki hefði komið
til hóll sem þurfti endilega að
verða á leið minni niður. Af
hólnum flaug ég í stórum en
fráleitt fallegum boga og fór
svo nokkrar veltur i lendingu.
Það get ég sagt þér, lesandi
góður, að skíðastökk er ekki
eins auðvelt og það lítur út fyrir
að vera í sjónvarpinu. Mar og
skrámur fékk ég til minja um
stökkið og má sjálfsagt teljast
nokkuð heppinn að ekki fór
verr. Skíðamaður einn, sem
átti leið fram hjá þar sem ég lá
í brekkunni í einni flækju, á-
minnti mig og sagði aö brun
væri stranglega bannað í
brekkunni. Ekki vissi ég hvort
ég átti að hlæja eða gráta en
lofaði hátíðlega að hafa það í
huga. Eftir þetta fór ég nokkrar
ferðir í sömu brekku og gekk
allsæmilega.
Einhverju siðar vorum við
enn í Bláfjöllum. Þá átti ég
bara eftir að reyna eina brekku
eða öllu heldur fjall, þvílík var
stærðin á þeirri brekku sem ég
var nú ákveðinn í að prófa. í
þessari brekku er sætalyfta
sem rúmar tvo í hvert sæti.
Með mér i lyftunni var vinur
minn sem var litlu reyndari en
ég á skíðum. Veður var fremur
leiðinlegt þennan dag, hvasst
og snjókoma. Meðan á ferð
okkar upp fjallið stóð versnaði
veðrið um allan helming. Þeg-
ar við komum upp var kominn
blindbylur svo ekki sá úr aug-
um og var þá lyftan stoppuð
vegna veðurs.
Er við lögðum af stað niður
brekkuna ákváðum við að
reyna að fara hægt f svigi svo
við villtumst ekki út fyrir af-
markaða braut sem skíðuö
var. Skíðafæri var lélegt,
snjórinn haröur, sérstaklega
utan brautar, þar var glerhart
hjarn. Fljótlega skildu leiðir hjá
okkur félögum, skyggni var lít-
ið og mér reyndist erfitt að
halda hraðanum í skefjum.
Hann jókst sífellt og erfiðara
varð að fara svigið, vindurinn
var líka hjálpsamur við að
koma manni áfram.
Skyndilega missti ég fót-
anna og rann með ógnarhraða
út fyrir brautina, þar sem
hjarnið var harðast og brekkan
bröttust. Ég var íklæddur fis-
galla sem gaf svipaða mót-
stöðu og snjóþota, ég efast
stórlega um að ég hefði komist
hraðar þó að ég hefði staðið á
skíðunum. Þqg notaði ég nú til
að reyna að stoppa mig af,
stakk þeim og stöfunum í
hjarnið, en það var ekki viðlit.
Eftir að hafa runnið nokkur
hundruð metra, ýmist með
hendur eða fætur á undan,
fann ég að snjórinn gerðist
aðeins mýkri. Ég náði að kýla
skíðin niður í snjóinn og
stoppa mig af. Ég reyndi að
standa á fætur til að renna mér
inn á skíðabrautina en þá rann
ég aftur af stað á þessum líka
ógnarhraða. Neðarlega (
brekkunni náði ég að stoppa
mig aftur, komst á fætur og
renndi mér inn á skíðabraut-
ina. Þegar ég var kominn niður
brekkuna áttaði ég mig fyrst á
því að skíðastafirnir voru
horfnir, ég var með brunasár á
höndum og baki og allur lurk-
um laminn. Sá fyrsti sem ég
sá, þegar ég kom niður, var
félagi minn sem hafði fengið
svipaða útreið og ég í þessari
ferð.
Eftir þessa reynslu mína af
flestum greinum skíðaíþróttar-
innar verð ég að segja að ég
fer ekki ofan af þeirri skoðun
minni að byrjendanámskeið
séu aðeins fyrir börn og þá
sem telja sig þurfa á þeim að
halda. Sjálfur hef ég lagt svig-
skiðin á hilluna í bili - eða því
sem eftir er af þeim. Núna er
ég búinn að fá mér þessi líka
fínu gönguskíði sem ég
hlakka mikið til að prófa og ég
efast ekki um að ég verð fljótur
að ná tökum á þeirri grein
skíðaíþróttarinnar sem öðrum.
PARFUM
pour
FEMMES