Vikan - 23.01.1992, Qupperneq 10
TEXTI: JÓHANN GUÐNI REYNISSON / LJÓSM.: BINNI OG BRAGI P. JÓSEFSSON
FORSÍÐUSTÚLKA VIKUNNAR OG SAMÚELS 1991 :
ÁKVEDINOG
STUNDUM FREK
- LAUFEY BJARNADÓTTIR í OPINSKÁU VIÐTALI
Igræskulausri æsku sinni
var Laufey Bjarnadóttir,
nýkrýnd forsiöustúlka Vik-
unnar og Samúels, ákaflega
mikil puntrófa, aö eigin sögn.
Henni þótti til aö mynda mjög
skemmtilegt að vasast í vara-
litum hvar sem hún fór. í þá tíö
mátti víst oft á tíöum sjá Lauf-
eyju litlu vel litaða í framan því
hún fór ekki varhluta af tilþrifa-
miklum sveiflum meö varalit-
ina, frekar en aðrar ungar
stúlkur fyrr og síðar.
Ef til vill má segja aö þar hafi
hún gefið tóninn aö því sem
tíminn hefur síðar leitt í Ijós. Á
grunnskólaárum sínum var
hún tvívegis valin ungfrú
Seljaskóli þannig að varla hef-
ur neinu samtíðarbarna henn-
ar í þeim skóla komiö sigur-
inn á óvart. Sjálf átti hún
þó engan veginn von á
þessum úrslitum forsíöu-
stúlkukeppninnar.
„Fram aö þessu hefur
þátttaka í slíkri
keppni aldrei verið
á dagskrá en ég er
komin af staö í
þessu og hef mjög
gaman af þvi,“ segir
Laufey og brosir sínu
fallega brosi sem nú er aö
minnsta kosti orðið lands-
frægt. „Petta held ég aö sé
draumur allra stelpna," bætir
hún síðan viö, nokkru
alvarlegri en meö drauma-
glampa í augum.
VIL VINNA MEÐ FÓLKI
Um þessar mundir er tiltölu-
lega rólegt í kringum Laufeyju
því að nú nýverið lauk hún
verslunarprófi frá Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. Hún
hefur ekki gert upp við sig
hvaö þaö er sem hún hyggst
helga sig í framtíðinni, nánast
allt kemur til greina. „Ég
myndi læra meira ef ég væri
búin að gera það upp við mig
en eitt er víst aö með fólki vil
ég vinna, ekki sitja einhvers
Forsíða Vikunnar 8. águst 1991. Forsíða Vikunnar 9. januar 1992.
hlær og skéllir sér á lær að
gömlum og góðum íslenskum
sið. „Það var aldrei gert. Aftur
á móti tók ég þátt í árshátíð
þar sem ég söng bakrödd I
einu atriðanna og í öðru lékum
við tvær stelpur í slagsmál-
um,“ segir hún en þvertekur
þó fyrir að leikur og söngur sé
hennar fag. „Ég myndi ekki
bjóða mig fram til þess,“ bætir
hún við, sposk á svip. Hún tók
hins vegar lítinn þátt í klúbba-
starfi og slíku því hún var
hrædd um að það tæki of mik-
inn tíma frá skólanum. „Ég
geri það sem mér ber í skóla
en finnst þó vanta aðeins meiri
metnað í mínu nárni."
Efiaust einn stoltasti unnusti i heimi með
forsíðustúlkuna sína í fanginu.
staðar ein,“ segir Laufey. Eitt-
hvað hafði hún minnst á versl-
unarrekstur? „Já, jafnvel. Ég
vil hafa eitthvað um málin að
segja ef ég hef tækifæri til
þess. Nú hef ég í það minnsta
verslunarpróf, það er þó eítt-
hvað og ég ætla að skoða
þessi mál alveg á næstunni."
Hvað um þátttöku i félagslífi
i fjölbrautinni, var hún til dæm-
is aldrei valin fegurðardrottn-
ing þar? „Nei,“ svarar hún,
MENNTUN AF
HINU GÓÐA
Uppáhaldsgreinin er enska en
stærðfræðin ekki hennardeild.
„Danskan er heldur ekki í
uppáhaldi. Ég hef gaman af
því sem mérgengur vel í enda
er þaö náttúrlega svo aö
manni gengur yfirleitt vel í því
skemmtilega," segir Laufey
um skólamálin og bætir við
þeirri skoðun sinni að rétt sé
10 VIKAN 2. TBI.1992