Vikan - 23.01.1992, Síða 46
TEXTl: HJALTI JÓN SVEINSSON
Gömlu góöu réttirnir,
sem allir þekkja en
sífellt færri kunna að
matreiða, eru efni bókar sem
heitir Maturinn hennar
mömmu og kom út hjá Iðunni
fyrir skömmu. Matreiðslubókin
skiptist í fjóra meginkafla - um
fisk, kjöt, eftirrétti og bakstur.
í formála segir ritstjóri
verksins, Áslaug Ragnars, að
bókinni sé ætlað að sporna við
þeirri þróun að í sívaxandi
mæli sé neytt fæðu sem að
miklu leyti sé skyndibiti af færi-
bandi í stað þess að nýta það
fágæta úrvalshráefni sem við
íslendingar eigum kost á. Til-
gangur bókarinnar sé jafn-
framt sá að „hafa í heiðri
gamlar og góðar íslenskar
hefðir í matargerð og árétta að
„maturinn hennar mömmu",
sem hún lærði vísast af móður
sinni að búa til og svo koll af
kolli, er enn í fullu gildi".
í þessari ágætu bók er aö
finna fjölda rétta sem búnir eru
til úr íslensku hráefni og hafa
verið á borðum hjá mæðrum
vorum í áratugi. Hér er á ferð-
inni matreiðslubók sem kennir
okkur að búa til venjulegan
mat, hollan og góðan, án mik-
ils umbúnaðar - ýmist hvers-
dags eða til hátíðarbrigða.
Það er Brynjólfur Jónsson
sem hefur tekið hinar fjöl-
mörgu litmyndir sem prýða
bókina en Andrea Haraldsson
MATURINN HENNAR MÖMMU
46 VIKAN 2. TBL. 1992