Vikan - 23.01.1992, Page 51
TEXTI: JÓHANN GUÐNI REYNISSON
EINSOG
HLUTISK
VERKSINS
NÝ KYNSLÓÐ FRÁ BUGATTI
réttinni til að knýja áfram þetta
eina og hálfa tonn í hundrað
kílómetra hraða á þremur
komma sjö sekúndum! Þess
má síðan geta að hámarks-
hraðinn er áætlaður eitthvað
rétt rúmlega 330 kílómetrar á
klukkustund.
Gírskiptingin er samhæfð
við bensíngjöf þannig að hægt
er að skipta um gír með fullri
inngjöf og þetta gildir um alla
sex gírana. Varla þarf að taka
fram að Bugatti EB 110 liggur
ágætlega í beygjum og slíku
og kunnugir segja að nánast
sé eins og bíllinn sé límdur við
yfirborð jarðar; að hann sé
eins og hreyfanlegur en þó
óaðskiljanlegur hluti sköpun-
arverks almættisins. Ætli sé
þá ekki erfitt að „tjakk’ann"
upp? □
Iminningu Ettores Bugatti
hefur nýtt afkvæmi við
hann kennt litið dagsins
Ijós eftir fjörutíu og tveggja ára
hlé. Bugatti sjálfur lést árið
1947 og var það ásamt eftir-
köstum síðari heimsstyrjaldar-
innar meginorsök þess að
bílaverksmiðjur hans gáfu upp
öndina. Nú hefur veldi Bugatt-
is verið endurreist í minningu
hans, Bugatti EB 110 þeysir
nú um hraðbrautir heimsins.
VARLA
FEGURÐARKÓNGUR
Það var i september nýliðið ár
að Bugatti-verksmiðjurnar í
Campogalliano á Ítalíu sýndu
fyrstu framleiðslutýpuna i
París. Mikið fjölmenni var við
afhjúpunina og í mannfjöldan-
um mátti þekkja nær alla fræg-
ustu bílahönnuði í Evrópu, vel
þekkta bílasafnara og meðlimi
í klúbbi Bugatti-eigenda hvað-
anæva úr heiminum. Mikil
eftirvænting ríkti meðal gesta
og undan hulunni kom trylli-
tækið, voldugt og ógnandi, þó
hinn nýi Bugatti geti varla talist
líklegur til að hreppa titilinn
fegurst allra sjálfrennireiða.
Það sem upp á fegurðar-
skyn vantar er óhætt að segja
að Bugatti bæti upp með því
að uppfylla flestar aðrar kröfur.
Þó er hann enn undir smásjá
framleiðenda sinna og margar
endurbætur væntanlegar.
Hugum nú að eintakinu. Mað-
ur prílar án þess að hafa mjög
mikið fyrir því ofan í rúmgóðan
„stjórnklefann". Eins og venja
er sitja menn neðarlega í slík-
um bílum með drifskaftið við
hliðina á sér, vel hulið og ein-
angrað þó. Yfirbyggingin gerir
ökumanni og farþegum síðan
kleift að sjá nánast óhindrað
360 gráður - eða allan
hringinn, likt og tíðkast í gróð-
urhúsum.
SEXTÍU VENTLAR
Aðalsmerkið er vélin; fjórar
japanskar túrbínur og tólf
strokkar, samtals 3,5 lítrar
með fimm ventla hver, samtals
sextíu ventlar! mynda hinn un-
aðslega kórsöng sem hver
áhugamaður um vélar og bila
heillast af. Þróun Bugatti-verk-
smiðjanna á útlínum tannhjóla
og fleiru hefur þó gert það að
verkum að hávaðinn inni í
bílnum er alls ekki ærandi
þegar hrossunum fimm hundr-
uð og fimmtíu er hleypt út úr
2.TBL.1992 VIKAN 51