Vikan - 23.01.1992, Page 54
I gamla bænum
hafa heilu göturnar
fengið að halda sér
í upprunalegri
mynd og hús færð
til fyrra horfs.
um frumþörfum sálar og lík-
ama allan sólarhringinn ef því
er að skipta.
KOSTIR OG GALLAR
Það eru því margar ástæður
fyrir þeim vinsældum sem
Amsterdam hefur hlotið á
meðal Islendinga. Ýmsar hlið-
ar hefur borgin einnig, sem
sumir hafa fundið aö og líkar
miður vel. Nefna má til dæmis
að á fáum stöðum í Evrópu er
meira um eiturlyfjaneyslu á
götum úti og vandamál sem
henni tengjast. Þegar gengið
er um miðborgina kemur það
gestum hennar í fyrstu ein-
kennilega fyrir sjónir hversu
marga útlendinga er þar að
finna - frá öllum heimshornum
að því er virðist. Sumum finnst
bar að auki hreinlæti talsvert
um þeim ógleymanlegur sem
þar kemur inn einu sinni. Það
er annars vegar vegna hins
fornlega umhverfis sem hefur
allt að því dulúðug áhrif á
gestinn. Hins vegar hefur
staðurinn að geyma örlaga-
þrungna sögu sem blasir við
hvert sem litið er. Það fer ekki
hjá því að hver sá sem gengur
inn brakandi trégólfið í „Rest-
aurant De Silveren Spiegel"
verði snortinn af þessum áhrif-
um - og enginn verður svikinn
af matnum og þjónustunni.
Þeim sem ætla að fara út á
lífið og skemmta sér í Amster-
dam má benda á að fáar borg-
ir í Evróþu bjóða upp á ríku-
legra úrval af gleðigefandi
húsum og stöðum af öllu tagi,
þar sem gestir geta sinnt ýms-
▲ Restaurant De Silveren
Spiegel er elsti veitingastaður
borgarinnar. Eigandi hans, Ben
van den Nieuwboer, er af
gömlum kokkaættum.
◄ Holland er flatlent mjög og
því er Amsterdam vinsamleg
hjólreiðafólki. Hjólhestar skipta
tugum þúsunda í borgarumferð-
inni.
þegar ýmiss konar óþefjan
berst jafnvel upp úr síkjunum.
Þetta eru vissulega aðfinnslur
sem bera má upp á ýmsar aðr-
ar borgir sé grannt skoðað en
margir ferðamenn líta fram hjá
slíkum hlutum. Amsterdam er
engu að síður borg sem tekur
vel á móti gestum sínum og
sést það best á alúðlegu við-
móti borgarbúa og góðri þjón-
ustu sem þeir veita í hvívetna.
54 VIKAN 2. TBL. 1992