Vikan


Vikan - 12.11.1992, Qupperneq 11

Vikan - 12.11.1992, Qupperneq 11
oo JARN ELDINUM VIÐTAL VIÐ ARNGUNNIÝR MYNDLISTARKONU í OAKIAND í BANDARÍKJUNUM Iheimi myndlistarinnar eru margir kallaðir en fáir útvaldir. Fjöldi fólks lýkur námi á hverju ári en einungis fáir láta eitthvað að sér kveða á vettvangi sýningarhalds. Ástæð- urnar eru margar en oftast eru þær líklega efnahagslegar. Það kostar tíma og peninga að skapa myndverk, listamaðurinn þarf að hafa vinnustofu og geymsluhúsnæði fyrir verkin og loks að leigja sal til að sýna þau. Flestir geta þakkað fyrir að sleppa á sléttu fyrstu árin að minnsta kosti og mörgum verður það mótlæti ofviða, þeir hrökklast til annarra starfa. Þá eru mörg nútíma listaverk þess eðlis að þau ganga ekki kaupum og sölum og verður listamaðurinn þá að reiða sig á naumt skammtaða styrki til að skrimta eða sinna listinni í hjáverkum en það geta fáir af nokkurri markvissu. Mestu listamennirnir eru oft á undan sinni samtíð og verk þeirra höfð að háði og spotti af hræddum samborgurunum. Það þarf sérstaka köllun til að leggja ekki árar í bát við þessar kringum- stæður en sem betur fer fyrir listunnendur eru alltaf nokkrir sem standast þrekraunina. Arngunnur Ýr Gylfadóttir er ung myndlistar- kona sem hefur bein í nefninu og búast má við að mikið eigi eftir að bera á henni í listalífi þjóðarinnar í framtíðinni. Þrátt fyrir að hún hafi nýverið lokið mastersnámi í myndlist í Banda- ríkjunum hefur hún þegar tekið þátt í mörgum samsýningum og haldið nokkuð af einkasýn- ingum, meðal annars í Nýlistasafninu og að Kjarvalsstöðum. Arngunnur er gift Larry Andrews, bandarískum vídeó-listamanni, og búa þau í borginni Oakland við austanverðan San Francisco-flóann. Þegar tíðindamaður Vikunnar í Vesturheimi grennslaðist fyrir um hagi Arngunnar fyrir stuttu var hún að gera veggmynd í félagi við hóp unglinga og ellilíf- eyrisþega í San Francisco. Þetta starf er á vegum borgarinnar og hafði hún umsjón með verkinu sem var að mestu byggt á hugmynd- um hennar. Arngunnur féllst á að deila verk- inu með þjóð sinni og bauðst til að hitta mig á heimili sínu til frekara skrafs. San Francisco er ekki góður staður til að vera á í bfl og ég þakka fyrir að sleppa yfir brúna yfir flóann án þess að lenda í umferðar- teppu eða öðrum skakkaföllum en þetta er sama brúin og hrundi í jarðskjálftanum 1989 þegar fjöldi manna lét lífið. Að ráðum Arn- gunnar krossa ég yfir sex akreinar til hægri og fer út af á fyrsta afleggjara af hraðbrautinni. Mér láðist að fá húsnúmerið hjá henni en hún sagði að húsið væri lítið og hvítt og á bak við gamlan hamborgarastað sem væri búinn að leggja upp laupana. Ég finn hamborgarastað- inn en það eru þrjú lítil hvít hús á bak við hann. Á meðan ég er að veita því fyrir mér hvert þeirra sé það rétta rennur fram hjá mér bflskrjóður með fjórum skuggalegum náungum sem gefa mér illt auga. Ég ber það utan á mér að ég er ferðamaður frá fjarlægum slóðum svo ég veðja á eitt húsanna í hvelli áður en bófarn- ir koma aftur. í dyrunum mæta mér Ijósir lokk- ar og íslenskt bros þannig að óttakastið hverf- ur og mér líður eins og í heimahögunum. Við göngum í gegnum húsið sem er kæru- leysislegt yfir að líta, slatti af pappakössum á miðju gólfi og alls konar elektrónískar græjur hér og þar. Við fáum okkur sæti og kaffi við eldhúsborðið en það snýr að bakgarðinum sem er næstum því horfinn undir tvær ný- byggingar. Arngunnur útskýrir að þetta séu vinnustofur þeirra hjóna en ástæðan fyrir að byggingarnar eru tvær en ekki ein er sú að hvor þeirra um sig mætir nákvæmlega því stærðarhámarki húsnæðis sem má byggja án þess að þurfa að greiða há gjöld og fá leyfi byggingarnefndar borgarinnar. Flún segir að mest orka sumarsins hafi farið í að hanna og smíða vinnustofurnar sem þau gerðu alfarið sjálf og ekki er annað að sjá en fagmannlega hafi verið staðið að verki. „Okkur fannst þetta vera svolítið kjánalegt fyrirkomulag fyrst - að vera sitt í hvoru lagi - en þegar upp er staðið þá hefur það reynst vel að vera ekki að þvæl- ast hvort fyrir öðru og hafa næði.“ Arngunnur er Reykvíkingur, dóttir Gylfa Baldurssonar heyrnarfræðings og Þuríðar Jó- hönnu Jónsdóttur sálfræðings. „Ég eyddi unglingsárunum í Kanada en kom heim eftir fimm ára dvöl þar og kláraði menntaskólann. Síðan var ég í tvö ár í mynd- listarnámi í Reykjavík og loks í Art Institute of San Francisco og lauk BA prófi þaðan 1986. Ég var búin að fá nóg af náminu í bili og tilbú- in að fara að sinna eigin hugðarefnum. Fjár- hagslega nægði mér að vinna við teikni- myndagerð tvo til þrjá daga í viku en við Larry leigðum þá hjá gamalli konu í mexíkanska „í fyrstu vann ég mest meö röntgenmyndir... seinna fékk ég ákuga á aö vinna meira meö eigin líkama." hverfinu í San Francisco. Hún var svo almenni- leg að veita mér afnot af háaloftinu fyrir stúdíó gegn því að ég hjálpaði henni aðeins við heim- ilisstörfin. Ég var hjá teiknimyndafyrirtækinu næstu þrjú árin en það voru að mestu auglýs- ingamyndir og verkefni fyrir Disney sem við vorum að vinna að. Þá langaði okkur að breyta til svo við fluttum til Amsterdam og bjuggum „Ég heillaöist af mystíkinni yfir þeim en þaö er mystík yfir okkur öllum...“ þar næsta árið og ég hagræddi tíma mínum þannig að ég gat einbeitt mér að málverkinu. Mér varð fljótt Ijóst að til að halda áfram að þróast sem myndlistarmaður væri gott að fara í framhaldsnám og ákvað að láta reyna á það 23. TBL. 1992 VIKAN 1 ] TEXTIOG UÓSM.: LOFTUR ATLIEIRÍKSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.