Vikan


Vikan - 12.11.1992, Síða 27

Vikan - 12.11.1992, Síða 27
velja og hafna og sagt af eða á eftir því hvern- ig mér hefur litist á lögin og flutninginn. Stund- um langar mig ekkert til að gera texta og læt það alveg eiga sig.“ TEXTARNIR FARNIR AÐ VEGA ÞYNGRA „Það er skortur á textahöfundum, það er mjög greinilegt, ég finn það af eftirspurninni. Text- arnir eru farnir að vega þyngra en þeir gerðu. Ef á heildina er litið er óhætt að fullyrða að dægurlagatextar séu orðnir betri en þeir voru áður - og nú nær lag varla vinsældum nema textinn sé líka góður og höfði til áheyrenda. Fólk hlustar meira eftir textanum núna en það gerði fyrir 10-20 árum. Ég er oft beðinn um að semja texta með litl- um fyrirvara og er mér þá ekki gefinn lengri frestur en einn eða tveir dagar. Fyrir hefur komið að einhver hefur hringt í mig að morgni og gefið mér frest til kvölds en bætt þv( síðan við að það væri í lagi ef ég skilaði ekki textan- um fyrr en á hádegi næsta dag. Slíku hafna ég alfarið. Ég vil hafa nógan tíma, helst allan þann tíma sem ég þarf og þá held ég að skástu textarnir verði til. Ég hef jafnvel fengið að hafa lag í eitt eða tvö ár. Það er engu að síður mjög misjafnt hvernig lög virka á mann, við sum er unnt að semja texta strax en önnur þurfa meiri umhugsun. Lögin verða líka að vera við mitt hæfi og því hef ég til dæmis ekki samið marga rokktexta. Flestir textarnir mínir hafa verið samdir við ró- leg lög og fjalla gjarnan um ástina, þess vegna hæfa hinar svokölluðu „ballöður" mér prýðilega. Mér finnst gaman að yrkja um ást- ina og stór hluti af dægurlagatónlistinni er til- einkaður henni. Oft er talað um dægurlaga- texta með lítilsvirðingu og þeir sagðir ástarvæl og merkingarlaust rugl. Mér finnst eðlilegt að mikið sé fjallað um ástina enda er hún stór þáttur í tilverunni. Dægurlagatextar lúta öðrum lögmálum og eru annars eðlis en annar kveðskapur og maður lítur þá öðrum augum. Þeir eru bundnir við lagið og því er höfundurinn ekki eins frjáls og ella. Það má jafnframt segja að hið bundna Ijóðform lifi að vissu leyti í textunum en það hefur aftur á móti verið að hverfa eða sofna í Ijóðinu, um sinn að minnsta kosti. í textum við lög nota ég oftast hefðbundna bragarhætti, mér finnst þeir henta vel þessu formi. í Ijóðum mínum hef ég meira gaman af því að fást við hið frjálsa form.“ AÐ MARKAÐSSETJA SJÁLFAN SIG Hverju spáir þú um gengi geisladisksins ykk- ar, Á einu máli, þú ert ekkert smeykur um að hann hverfi í tónaflóðinu síðustu vikurnar fyrir jólin? „Ég efast um að út komi margar plötur með jafnfjölbreyttri tónlist og þessi. Því ætti hún að höfða til allra aldurshópa. Ég veit að bæði ungir og aldnir hafa gaman af því sem við erum að gera. Þess vegna held ég að við eig- um erindi á markaðinn. Það verður síðan að koma í Ijós hvort við höfum haft rétt fyrir okk- ur.“ Á þessu ári hafa komið út tvær Ijóðabækur eftir Aðalstein Ásberg, önnur með frumsömd- um Ijóðum og hin með þýðingum. Auk þess kemur á jólamarkaðinn þriðja barnabókin hans, Glerfjallið, sem Almenna bókafélagið gefur út. Ljóðabækurnar gaf hann út sjálfur - eins og reyndar geisladiskinn og nefnist út- gáfufyrirtækið þeirra Önnu Pálínu Dimma. „Maður verður að hafa allar klær úti ef mað- ur á að geta lifað af þessu. Ef maður annast útgáfuna sjálfur gerir maður sér betri grein fyr- ir því hvernig markaðurinn er og lögmálum hans.“ Er ekki erfitt að selja sjálfan sig - bera sjálf- an sig á torg markaðshyggjunnar? „Það er alltaf svolítið óþægilegt, en verður maður ekki að geta gert það? Þetta er kannski eitt af því sem íslenskir listamenn, margir hverjir, þurfa að læra - að koma verk- um sínum alla leið til neytandans. í markaðs- þjóðfélagi nútímans verða menn að taka þátt í þessari baráttu. Lengi var sú skoðun viðtekin um listamenn og jafnvel á meðal þeirra að þeir ættu að hafa sig sem minnst í frammi og halda sig heima við, þar sem enginn sæi þá eða vissi af þeim. Góð listaverk áttu síðan á einhvern hátt að síast út til þjóðarinnar. Nú er öldin önnur.“ □ ARIMNAR ER: COMPETENCE Eftir 30 þarfnast húð þín meira en fagurra fyrirheita; ORKU + NÆRINGAR LANCASTER COMPETENCE FORTIFYING COMPLEX 5 2 COMPETENCE ^ F0RTIFYIN6 *sJ COMPtEX
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.