Vikan - 12.11.1992, Síða 33
jarðarkringlunni, er japanskur og þau reynast
öll þaðan nema eitt. Hún segir að myndirnar,
sem hún leikstýrir, séu fyrst og fremst amer-
ískar en þær séu ætlaðar fyrir áhorfendur um
allan heim. Hún segir að það sé engin leið að
hlaupa frá uppruna sínum og myndirnar henn-
ar séu líka „myndir gerðar af konu“.
„Það er erfitt að segja hvað það var sem
var erfiðast við gerð myndarinnar en tíma-
pressan, sem ég var undir, var vissulega oft
stressandi. Það leið aðeins eitt ár frá því að ég
f sá handritið þangað til ég þurfti að skila mynd-
inni í dreifingu. Það er óvenju stuttur timi og
stundum var allt í járnum með að halda áætl-
un. Myndin er að mestu skotin að nóttu til og
það er ekkert grín fyrir leikstjóra, sem er að
leikstýra annarri mynd sinni, að stjórna fimm
mjög ólíkum aðalleikurum í einu. Það er ekki
hægt að hugsa sér óskyldari leikara en Paul
Reubens (Pee Wee Herman) og Rutger Hauer
(Blade Runner) eða gamla brýnið Donald
Sutherland og Luke Perry úr Beverly Hills
90210 þáttunum. Það sem ég er ánægðust
með er að leikurinn er frábær hjá þeim öllum,
svo ekki sé minnst á Kristy Swanson, þannig
að myndin smellur saman á sannfærandi hátt.“
- Kom það niður á myndinni hvað tíminn
við gerð hennar var takmarkaður?
„Ef myndin væri eitthvað annað en Buffy
blóðsugubani efast ég ekki um að hún hefði
goldið fyrir tímaleysið. Gerð myndarinnar var
hins vegar töluvert í líkingu við að semja lag.
Þetta er fjörug mynd, eins konar rokk. Ég
hefði aftur á móti þegið að hafa meira fé
Buffy ákveður hér örlög einnar blóósugunnar. Leikstjórinn segir að þetta sé gamansöm
ástarsaga með blóðsugum en ekki blóðsugumynd.
handa á milli til að eyða í „special effects“,
láta persónurnar fljúga og þar fram eftir göt-
unum en þeningaleysið er kross sem allir
kvikmyndagerðamenn verða að bera. Það er
aldrei of mikið af seðlum."
- Gamanmyndir og hrollvekjumyndir eru
andstæðir pólar. Hvernig gekk að blanda
þessu saman?
„Ég hef reynslu af gerð gamanmynda en
enga af hrollvekjum. Það sem ég gerði var að
gefa leikurunum nokkuð frjálsar hendur í tján-
ingunni á þessu atriði vegna þess að ég hef
meiri áhuga á poppmenningu en hryllingi sem
slíkum. í stað þess að gera hryllinginn eins
raunverulegan og hræðandi og ég gat kaus
ég að búa til „popphrylling“ en ég held að það
hafi verið eina leiðin til að láta hryllinginn
passa inn í myndina á sannfærandi hátt.“
- Endurspeglar leikaravalið að einhverju
leyti áhuga þinn á poppmenningu?
„Já, hundrað prósent. Hver kemur fyrst upp
í hugann þegar þú hugsar um vondan náunga
sem leikinn er af Evrópumanni? Rutger að
sjálfsögðu. Ég gleymi ekki þegar fundum okk-
ar bar fyrst saman. Ég hélt að hann mundi
drepa mig með ísköldu augnaráðinu en í
rauninni er hann mesta Ijúfmenni. Sem betur
fer leist honum vel á að Paul Reubens léki á
▲ Leikstjórinn t.v., Fran Rubel Kuzui, og
Kristy Swanson. Loftur Atii Eiríksson hitti
þær aö máli fyrir Vikuna.
móti sér og það kom mér á óvart hvað sú
hugmynd fékk góð viðbrögð víða. (Paul þessi
hefur séð um barnatíma í bandarísku sjón-
varpi um árabil. Innsk. blm.) Þeir báðir og
Luke Perry hafa allir ákveðna en mjög ólíka
táknmynd í huga fólks og að sjá þá alla sam-
an á tjaldinu er geggjað í sjálfu sér.“
- Þó að myndin hafi fengið mjög góða
dóma gagnrýnenda hefur hún ekki skilað
miklu af peningum. Ertþú vonsvikin yfir því?
„Þetta fer alveg eftir því við hvað er miðað.
Ég starfa líka við kvikmyndadreifingu og ég
get sagt þér að myndir sem kostuðu svipað í
framleiðslu og Buffy blóðsugubani, eins og
Wild at Heart og Barton Fink, gerðu það ekki
eins gott í miðasölunni fyrstu helgarnar. Þeg-
ar uþþ er staðið munu þessar myndir aðeins
hafa halað inn brot af því sem Buffy hefur
þénað. Það er engin sérstök stjarna sem virki-
lega trekkir áhorfendur að myndinni en það
hefði að sjálfsögðu verið æskilegt að fá inn
meiri peninga. Peningar eru völd og það hefði
komið sér vel fyrir næstu mynd sem ég geri
og einnig kynsystur mínar almennt í stétt leik-
stjóra.“
- Verður næsta mynd, sem þú gerir, líka
gamanmynd?
„Ég veit það ekki en ég á erfitt með að
hugsa til þess að gera kvikmynd án þess að
það sé nokkur húmor í henni. Það eru nokkrar
hugmyndir sem ég hef áhuga á að vinna úr.
Ég er í nokkurn tíma búin að vinna með hand-
rit sem er byggt á raunverulegri reynslu úr
mínu eigin lífi. Það er saga um mjög sterka og
sjálfstæða konu sem fær sér „eiginkonu" í
Frh. á bls. 90
21.TBL. 1992 VIKAN 29
TEXTI: LOFTUR ATLIEIRÍKSSON / UÓSM.: ALEX BERLINGER OG RON PHILIPS