Vikan - 12.11.1992, Blaðsíða 57
var handa gripunum og þeir
fengu þegar fór aö vora.
Á jóladag fóru stúlkur í
slavneskum löndum niöur aö
ám til þess að sækja vatn í
chernitza, sem er flatt,
kringlótt brauð með gati í
miðjunni, í laginu eins og hjól.
Á hádegi sker húsbóndinn á
heimilinu brauðið eða því er
smeygt upp á horn elsta
nautsins á bænum. Brotni
brauðið við þetta boðar það
hamingju.
í sumum hlutum Frakklands
trúa menn því að jólakökur
geti læknað sjúkdóma eða
komið í veg fyrir að fólk veikist
á nýju ári.
Þjóðverjar héldu upp á
þrettándann með kökum. í
þrettándakökunum voru baun-
ir eða korn og var sá útnefnd-
ur konungur - vitringur - sem
það hlaut. Allir fengu sneið af
þrettándakökunni og venja
var að tileinka Maríu mey eða
guði almáttugum fyrstu sneið-
ina.
ENSKA JÓLAKAKAN
Jólabúðingur eða jólakaka full
af ávöxtum hefur lengi verið
vinsæl í Englandi. Venja var
að hefja tilbúnings þessa jóla-
búðings eða jólaköku löngu
fyrir jól og ekki síðar en síð-
asta sunnudaginn fyrir að-
ventu. Annars var ekki hægt
að reikna með að kakan væri
orðin eins og hún átti að vera
á jóladag en þá var venja að
borða hana. Þessi síðasti
sunnudagur fyrir aðventu er
auðvitað ekki alltaf á sama
mánaðardegi en er þó alltaf
síðustu dagana í nóvember.
Kakan gat því staðið og á-
vextirnir í henni blotnað og
meyrnað í heilan mánuð.
Sumir telja að því eldri sem
kakan verði þeim mun betri sé
hún.
Jólakakan enska með á-
vöxtunum er í raun aðeins
aldargamalt fyrirbrigði. Þar á
undan var aðeins um eins
konar plómubúðing að ræða
sem bætt hafði verið í heldur
meira mjöli en venja var um
slíkan búðing og þá var ekki
notað áfengi í búðinginn. Þeg-
ar fram liðu stundir fóru menn
að dreypa víni á kökuna og
nú er svo komið að helst
verður að hella örfáum drop-
um yfir hana á hverjum degi
frá því hún er bökuð og fram
að jólum og hún sögð hreint
sælgæti ef vel tekst til. Ekki
eru þó allir sammála um það,
sér í lagi ekki þeir sem eru á
móti rúsínum og öðru álika í
kökum. Þeim finnst kakan oft
nokkuð þung og saðsöm
enda mun ekki vera til þess
ætlast að fólk borði af henni
stórar eða margar sneiðar í
einu. Um og eftir 1870 var far-
ið að leggja mjög mikið upp úr
skreytingu þessarar jólaköku
og jafnvel farið að selja sér-
stakar skreytingar á hana.
Þjóðverjar voru býsna hug-
myndarfkir í því sambandi og
fluttu út alls konar jólasveina
úr postulíni og annað dót á
kökuna og þegar þessi furðu-
lega skreytilist náði hámarki
var jafnvel farið að skreyta
jólakökuna með jólasveinum
á mótorhjólum, fílsbaki eða
skríðandi út úr snjóhúsi. Slík-
ar skreytingar hafa ekki sést
hér á landi og látum við okkur
nægja að skreyta okkar jóla-
kökur með kremi, rjóma eða
marsipani. □
Dæmigerö
ensk jóla-
kaka meö
miklu af á-
vöxtum,
hnetum og
jafnvel
súkkulaöi.
Hún þykir
enn betri
ef hún hef-
ur verið
vætt með
áfengi á
meðan hún
bíöur jól-
anna og
helst þarf
hún aö
bíöa upp
undir mán-
uö.
Umboðsmenn um land allt.
B R Æ Ð U R N I R
DJ ORMSSON HF
Lágmúla 8. Sími 38820
Hafóu málin hárrétt!
Vogimar frá Tefal vigta upp á gratnm, hvort sem er í eldhúsinu eða baðherberginu.
í matargerð og bakstri eru þcer mesta þarfaþing, gera allar ágiskanir óþarfar
og vinnuna þcegilegri. Baðvogimar sýna þér ávallt nákvcema þyngd
og hjálpa til við að fylgjast vel með línunum.Vigtaðu nákvxmt
með hjálp Tefal voganna!