Vikan


Vikan - 12.11.1992, Page 94

Vikan - 12.11.1992, Page 94
HAFLIÐI Frh. af bls. 86 Leikararnir eru aöeins sjö talsins, auk ungr- ar telpu sem fer með lítið hlutverk. Persónurn- ar í verkinu eru aftur á móti hátt á þriðja tug. Hver leikari verður því að leika þrjú til fimm hlutverk sem er afar erfitt af ýmsum ástæðum og krefst mikilla hæfileika. Við vorum svo hepþnir að fá að vinna þetta verk með afar færum leikurum sem fara beinlínis á kostum. Þetta er fyrst og fremst þeirra sýning og leik- stjórans - og svo höfundarins auðvitað.1' SKÝJABORGIR FRÚ EMILÍU Aö lokum var Hafliði beðinn um að segja frá á- formum sínum - til dæmis á vettvangi Frú Emilíu. „Þaö er nú svo margt og sumt skýjaborgir. Óskandi væri að geta starfað samfleytt í lengri tíma, ekki bara í nokkrar vikur eða mánuði í senn. Til þess þarf töluverl fjármagn og að- stöðu ef þetta á að vera af einhverju viti. Þetta hefur verið óttalegt basl að ýmsu leyti en ó- stjórnlega skemmtilegt og sömuleiðis nauðsyn- legt okkur - ómetanlegur skóli. Draumurinn er að geta starfað með föstum kjarna leikara í að minnsta kosti tvö, þrjú eða fjögur ár samfleytt. Það er slæmt að þurfa ætíð að byrja á byrjun- inni og hoppa fram og aftur, afla fjár, finna hús- næði og svo framvegis. Þannig fer mikil orka til spillis. Eflaust á þessi draumur eftir að rætast, hvort sem það verður í náinni framtíð eða síðar og hvort sem það verður undir hatti Frú Emilíu eða annars staðar. Við höfum reyndar sóst eftir því og jafnvel sótt um leikhússtjórastöður þegar þær hafa losnað en ekki haft erindi sem erfiði. Um þessar mundir er ég að undirbúa leik- lestrana á verkum Moliéres núna f nóvember og einnig að undirbúa sýningu á einu þekktasta verki hans, Tartuffe, sem Þór Tulini- us mun leikstýra á vegum Leikfélags Reykja- víkur í Borgarleikhúsinu. Svo erum við Guðjón að vinna að sýningu á íslensku verki á vegum Frú Emilíu og það verður sýnt hér heima og er- lendis í vor og sumar.“ □ BUFFY BLÓÐSUGUBANI FRH. AF BLS. 29 Fran Rubel viö töku myndarinnar. hálfan mánuð. Hugmyndin er sótt í ferð sem ég fór með japanskri rokkhljómsveit til Eng- lands fyrir nokkrum árum til að gera tónlistar- myndband. Það var enginn sem gat farið með okkur frá umboösskrifstofu hljómsveitarinnar svo að forstjóri umboðsskrifstofunnar sendi eiginkonu sína með mér og fimm tuttugu og fimm ára japönskum rokk-töffurum. Þetta var mjög athyglisverö reynsla því starf hennar fólst í rauninni í því að vera eiginkona. Ég kom kannski heim eftir langan vinnudag og hún spurði mig hvað ég vildi í matinn. Hún sá síðan um matinn og sagöi að ég hlyti að vera þreytt og hvort ég vildi ekki fara í bað og slappa af á meðan hún legði á borðið. Ég kunni að sjálfsögöu vel að meta svona með- ferð þannig að mig langar aö gera mynd um hlutverk kvenna og hvernig við sjáum okkur í þeim hlutverkum." Nú skipta þær um sæti, Fran Rubel Kuzui leikstjóri og Kristy Swanson sem leikur Buffy. Hún er Ijóshærð í myndinni en hefur látið lita hár sitt svart og það er engin leiö að þekkja hana fyrir sömu manneskjuna. Hún segir aö það hafi verið vel ígrunduð ákvörðun hjá sér að breyta um útlit því það sé svo auðvelt að festast í ákveðnum hlutverkum í Hollywood og hún vilji sýna að hún geti leikið fleira en Ijóshærða unglingsstúlku í gaggó. Hún þarf í rauninni ekki að sanna neitt því hún er alin upp við leik í sjónvarpsþáttum og auglýsing- um, auk þess sem hún hefur leikið minni hlut- verk í kvikmyndum. Þetta er fyrsta stóra tæki- færið hennar og leikur hennar í myndinni er frábær. Það er sérstaklega auðvelt fyrir mig að sjá það þegar ég sit á móti henni við hring- borðið því Buffy er úr öðrum heimi. - Hvaö var það I handriti myndarinnar sem þú varst spenntust fyrir? „í fyrsta lagi fannst mér titilinn athyglisverð- ur og þegar ég byrjaði að lesa handritið sá ég hvað hann passaöi vel víð og mér fannst sag- an mjög fyndin. Ég gerði mér strax grein fyrir að Buffy væri persóna sem ég gæti leikið vel en um leið yrði það erfitt því hún verður fyrir stökkbreytingu, ef svo má aö orði komast, í myndinni. í upphafi er hún manneskja sem veit hvað allt kostar en ekki hvers virði nokkuð er. Hún sættir sig við þaö ótrúlega hlutverk sem henni er ætlað og tekst að framkvæma þaö betur en nokkur getur hugsað sér. And- stæðurnar í sögunni buðu upp á marga ó- venjulega möguleika en ég heillaðist einnig af því hve handritið segir frá því á „kúl“ máta hvernig ung og óráðin stúlka þróast f kven- hetju og foringja." - Var árangurinn alveg eins og þú haföir hugsaö þér aö myndin yröi? „Já og nei. Húmorinn er sá sami í handrit- inu og í myndinni en við höfum öll ólíkt ímynd- unarafl og sjáum hlutina fyrir okkur í mismun- andi Ijósi. Þaö er leikstjórinn sem sér um að færa hugmyndina frá einum miðli yfir í annan og mér finnst hún hafa gert það vel þó ég hafi ímyndaö mér sumt allt öðruvísi en hún gerði." - Hvernig bjóst þú þig undir hlutverkiö? „Ég byggði persónu Buffy á tveimur vinkon- um mínum. Onnur þeirra er mjög efnislega þenkjandi og talar ekki um annað en alls kon- ar neysluvörur. Hún blaðrar og blaðrar og fer alveg í kerfi ef BMW-inn hennar bilar og þá stoppa ég hana af og segi henni að mér sé skftsama því pabbi hennar hafi hvort eð er splæst honum á hana og hann beri kostnað- inn af viðgerðinni en hann veit ekki aura sinna tal. Hin er mágkona mín og hún talar alveg sérstakt tungumál þegar hún tjáir sig. Ég sagði þeim báðum aö ég hefði haft þær í huga þegar ég mótaði hlutverkið en ég held að þær eigi erfitt meö aö sjá þaö sjálfar." - Þú varst aldrei í venjulegum skóla á ung- lingsárunum út af leiknum. Hvernig gekk þér aö setja þig inn í þann heim? „Það má segja að ég hafi kynnst þeim heimi þegar ég var yngri, áður en ég byrjaði að leika á fullu. Ég man eftir stelpuklíkum sem hópuðu sig saman í skólanum en ég hélt mig sér á báti. Mig langaði til aö vera vinkona sumra þeirra en þaö var ekki möguleiki án þess að taka að fullu þátt í klíkunum og ég hafði ekki áhuga á því. Það var gaman að hlutverkinu því það gaf okkur tækifæri til að gera grín að þessum klíkuskap." - Hvernig var aö vinna meö Donald Suther- iand? „Hann var alveg frábær. Við hittumst í fyrsta skipti þegar viö fengum okkur árbft saman klukkan hálfsjö um morgunn, daginn áður en tökurnar á myndinni hófust. Hann mætti í hlutverkinu - í frakkanum og með hattinn eins og hann væri aftan úr fornöld - af því að hann vildi prófa mig. Mér leið eins og Buffy að hitta hann svo það var auðvelt fyrir mig að fara f hlutverkið. Meöan á tökunum stóð var hann eins og draumur. Áður en myndavélinni var beint aö mér kallaöi hann stundum á mig og hvíslaði í eyrað á mér „I love you“. Þaö var að sjálfsögöu mjög sætt og hvetjandi og gerði samstarf okkar léttara því hann er svo frábær leikari að það liggur við að maður kikni í hnjáliðunum að leika á móti hon- um. Mikið af húmornum í myndinni stendur og fellur með okkar sambandi en Buffy er sífellt að hneyksla hann með dúkkulísulffinu sem hún lifir og hann er fastur í gotneskum hryll- ingi miðaldanna. Ég hefði ekki getað hugsað mér betri mótleikara fyrir þetta hlutverk en Donald og ég er þakklát fyrir að hafa fengiö að leika á móti honum." Manneskjan sem sér um almenningstengsl- in gefur mér og kollegum mínum merki um að tími okkar sé úti og ég vona að þeir íslending- ar sem fara fyrst og fremst í bíó sér til skemmtunar missi ekki af myndinni um Ijós- hæröa blóðsugubanann hana Buffy. □ HAFNARSTRÆTI 15 REYKJAVÍK ■ SÍMI 13340 90 VIKAN 23. TBL. 1992
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.