Vikan


Vikan - 12.11.1992, Blaðsíða 98

Vikan - 12.11.1992, Blaðsíða 98
Frh. af bls. 31 „Neeeee-ei, þaö er ekki rétt,“ segir Luke en hljómar ekki mjög sannfærandi. „Eigum viö ekki að segja aö ég fái borgað og mæti því í vinnuna," bætir hann viö. - Hvað hefur þú lært af því aö vera geröur aö táknmynd og stjörnu? Varst þú undir þaö búinn? „Nei, þeir kenna ekkert svoleiðis í leikskól- um og ef einhver færi að bera sig eftir því væri litið á þann hinn sama sem hrokafullan grobbhana. Mér hefur lærst aö láta frama minn ekki stíga mér til höfuðs, að ég er leikari frekar en táknmynd og manneskja meira en leikari. Ég legg áherslu á að koma fram við alla á jafnræöisgrundvelli og þó að ég sé í þeirri aðstöðu núna að geta gefið skipanir á báða bóga og látið stjana við mig eru hlut- verkin fljót að snúast í þessum bæ. Þótt vel gangi í dag er það engin trygging fyrir því að það sama verði upp á teningnum á morgun. Það er mér eölilegt að koma vel fram viö fólk þannig að ég hef ekki sérstakar áhyggjur af þessu. Það er mín trú að sá sem kemur illa fram við fólk fái það aftur í hnakkann en ef maöur er heiðarlegur og opinn í samskiptum við aðra - eða eins og hægt er án þess að líta út eins og fáviti - þá kemur fólk yfirleitt vel fram við mann. Það er miklu einfaldara að muna ef maður segir satt heldur en ef maður lýgur, þess vegna segir ég sannleikann. Ef maður er ekki alltaf að þykjast vera eitthvað annað en maður er þá er ekki hægt að kippa teppinu undan fótunum á manni. Þess vegna hafa allir verið að hamast á teppinu hjá mér undanfarið," bætir Luke við og hlær. - Þú hefur aldrei gefiö neinum Dylan-dúkku í gríni. „Nei, en Paul Reubens gaf mér eina til að stríða mér. Mig langaði til að gefa honum Pee Wee Herman-dúkku á móti en „einhverra hluta vegna“ sjást þær dúkkur ekki lengur á hillum verslana." (Paul Reubens hrökklaðist nýverið úr hlutverki sínu sem Pee Wee Herm- an í barnatímanum i sjónvarpinu eftir að sást til hans þar sem hann var að fróa sér í klám- kvikmyndahúsi. Innsk. blm.) - Fran Kuzui, leikstjóri Buffy the Vampire Slayer, sagöi á blaöamannafundi um daginn aö þú værir í svo góöu jafnvægi út af stuðn- ingshópnum sem þú hefur í kringum þig. Hvaö átti hún viö meö því? „Þaö eru náttúrlega svínin sem hún var að tala um. Nei, nei, ég er bara að grínast. Ég held mjög góðu sambandi við foreldra mína og systkini og ég hef átt sömu góðu vinina frá því að ég var tólf ára. Þó að skipt sé um vinnu og breyting verði á tekjum þarf það ekki að þýða að maður sjálfur eða fólkið í kringum mann og sambandið við það þurfi að breytast. Þessi sambönd eru mér meira virði en nokkuð annað svo ég held utan um þau eins vel og ég get. Stundum á fólk erfitt með að skilja hvað það getur verið mikið að gera hjá mér og þau tímatakmörk sem ég þarf að lifa við. Ég á stundum erfitt með að skilja það sjálfur og tímaleysið er mitt stærsta vandamál." - Hvaö átt þú von á aö vera aö gera eftir tíu ár? „Ég vona að ég veröi í virkilega góðum kvikmyndum og hvert verkefni á þeirri leið er mikilvægt skref í þá átt. Það er mikiö atriði fyr- ir mig að gera alltaf betur næst, mér finnst sú hafa verið raunin hingað til og ég vona að þaö haldi áfram svoleiðis. Næsta mynd, sem ég verð í, er framleidd af New Line Cinema og hún er um Lane Frost, heimsmeistara í naut- gripareið. Hvaö síðan tekur við er engin leið að segja. Ég gæti verið gleymdur, þess vegna. Ég hef haft gaman af því sem hefur verið að gerast í lífi mínu og mér hefur tekist að upplifa það á jákvæðan hátt í stað þess að verða fangi frægðarinnar og ég sé ekki að þaö þurfi að breytast." - Það hefur veriö orörómur í gangi um samband ykkur Madonnu... „Viö erum bara vinir. Ég kann mjög vel viö hana. Hún er greind og stórkostleg kona. Samband okkar er ekki mjög náið, við tölumst ekki viö í síma tvo tíma á kvöldi eða stöndum í bréfaskiptum eða neitt þess háttar." - Er satt aö þú hafi neitaö aö vera í bókinni hennar með erótísku Ijósmyndunum? „Ég hafði aldrei heyrt á bókina minnst fyrr en hún kom út.“ - Hvaö var erfiöast fyrir þig við aö leika í myndinni um Buffy blóðsugubana? „Að halda kjafti oft á tíöum, held ég. Ég vildi gera háskaatriðin stórkostlegri. „Ég vil að það kvikni í mér um leiö og ég þeytist í gegnum gluggann og það sé fullt af blóði og ég drepi tvær blóðsugur í einu höggi, bla, bla, bla.“ Ég lék öll hættuatriðin sjálfur nema eitt sem gerist á mótorhjóli. Þaö var klippt inn í eftir á." Það er augljóst að Luke hefur gaman af háskaleik og hann segir mér aö hann hafi sjálfur látið Triumph 750 hjólið fara í götuna og snúast í hringi. „Ég var í öllum slagsmálaatriðunum, ég hef gaman af þessu og ef ég gæti unnið sem háskaleikari mundi ég gera það. Það hefur sennilega verið það skemmtilegasta við að leika í Buffy. Maður er vafinn alls konar um- búðum og drasli svo maður meiðir sig ekki og fær síðan að fljúga í gegnum það sem á veg- inum verður, það er meiri háttar fjör.“ - Þú ert fastagestur á síöum slúðurblaö- anna. Hvaö finnst þér um það sem er sagt um þig þar? „Það vill enginn vera kallaður hommi sem er það ekki en hver sá sem getur sýnt Ijós- mynd sem sannar aö svo sé má kalla mig homma. Þetta hljómar kannski ekki alveg eins og það á að gera en það eru margar konur sem geta sagt þér hið gagnstæða. Það hefur enginn gerst svo grófur að segja berum orð- um að ég sé hommi en margir hafa sagt að þá gruni að svo sé. Ég mun stefna fyrsta manni sem leyfir sér að segja það. Það yrði eins og í máli Toms Selleck. Þeir yrðu dæmd- ir til fangelsisvistar og hárra fjársekta því það er ekki satt og það er ekki forsvaranlegt að segja svona um nokkurn rnann," segir Luke og er orðinn hinn heitasti. „Ég hef verið opinskár í viðtölum og ein- hverju sinni sagðist ég vera í sambandi við kvenlegu hliöina í mér. Þá ruku allir upp til handa og fóta og því var snúiö upp í að ég væri að koma út úr skápnum. Vinum mínum finnst þetta tal allt svo fáránlegt að þeir hlæja bara. Með því að tala um kvenlegu hliðina átti ég við það að sýna þörfum kvenna skilning og setja ekki alltaf mínar eigin á oddinn eins og karlmenn vilja stundum gera. Karlar hafa kveneiginleika og konur karleiginleika. Að vera góður hlustandi er kvenlegur eiginleiki því að í gegnum aldirnar hafa konur þroskað þann eiginleika meira með sér en ræöu- mennsku sem hefur frekar tilheyrt karlhlut- verkinu. Það hefur verið mér mikils virði að vera góður hlustandi og þess vegna hef ég lagt mig fram við að þroska þann eiginleika með mér.“ - Hvað hefur þú aö segja viö ungt fólk sem hyggst spreyta sig á kvikmyndaleik? „Vertu viss um aö þetta sé það sem þú vilt gera og þú getur verið þess fullviss að það er erfiðara en þú hefur nokkurn tíma gert þér i hugarlund. Stærðfræðilega séð eru líkurnar á móti þér því hlutverkin eru fá og margir um þau. Það sem við erum að gera núna er ekki að leika en þetta er hluti af mínu starfi. Eins og þú sérð er ég ekki ófús viðmælandi og ef ég veit að ég þarf að vera hér þá mæti ég. Ef ég mætti ráða væri ég heima að gera eitthvað allt annaö en þú mátt ekki skilja þaö þannig að ég sé að kvarta. Ég elska að leika en ég geri mér fyllilega Ijóst að með því jákvæða kemur margt neikvætt og maður verður bara að sætta sig við það.“ Ég fæ hálfgerðan móral yfir aö hafa verið að halda Luke uppi á svona löngu spjalli því ég veit aö hann var að fá sér nýjan búgarð og annan hest. Mér sýnist blaðafulltrúi hans líka vera orðinn hálfóþolinmóður svo ég bið hana bara um að smella einni mynd af okkur að lokum. Luke samþykkir að veifa til íslenskra áhorfenda á myndinni og ég kenni honum að segja „halló, stelpur". Við óskum hvor öörum alls hins besta og þökkum spjallið. □ 94 VIKAN 23.TBL. 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.