Vikan - 28.12.1992, Page 4
VOLVAN 1992:
REYNDIST
ÓTRÚLEGA
SANNSPÁ
að er eflaust vandfund-
in sú spá sem stenst að
fullu. Það væri þá Ifka
óþarfi fyrir hagfræðinga,
stjórnmálafræðinga og jafnvei
stjórnmálamenn að vera að
velta vöngum yfir málum líð-
andi stundar ef einhver einn
maður eða forvitur stjörnu-
spekingur gæ.ti sagt til um
hvaðeina sem leitað væri
svara við. En það er einmitt
þess vegna sem menn gefast
ekki upp á að leita svara og
spá í spilin, hvernig svo sem
málin líta út þegar upp er
staðið. Það hefur alltaf verið
erfitt að spá - sérstaklega um
framtíðina. Og það á við um
allar spár. Sumar hafa þó
reynst óbrigðulli en aðrar. Um
það eru menn sammála.
En hvað sagði völva Vik-
unnar um síðustu áramót?
„Satt að segja er umtals-
verð vá fyrir dyrum í Evrópu
allri og samþjöppun fólks er
þar í augsýn. Það verður mikil
hreyfing á þegnunum, jafnvel
þjóðflokkum, allt komandi ár,“
sagði völvan.
Varla er hægt að vefengja
þessi orð hennar. Það hefur
verið meiri vá í mörgum Evr-
ópulöndum þetta ár en mörg
önnur undangengin. Nægir
þar að líta til Júgóslavíu svo
og annarra landa í Austur-
Evrópu, þar sem heilu þjóð-
flokkarnir hafa flust á milli
ríkja, bæði í Júgóslavíu og í
hinum nýfrjálsu ríkjum fyrrum
Sovétríkjanna.
...fast verður lagt að okkur
að setja nýjar og rýmkaðar
reglur um innflutning fólks til
búsetu.1' Var ekki áskorunum
beint til íslendinga um að taka
við flóttafólki frá Austur-Evr-
ópu, þar á meðal Júgóslavíu,
þótt enn hafi ekki verið orðið
við þeim þrýstingi?
„...heilbrigðismálin einnig á-
fram í sviðsljósinu en sú um-
ræða mun snögglega fjara út
þegar annað umfangsmeira
og áhrifaríkara mál rekur á
fjörurnar. Ófarnaður í efna-
hagslífinu ásamt áður óþekktu
atvinnuleysi mun nefnilega
skella á okkur af fullum þunga
og ráðagerðir verða uppi um
að leita eftir náinni samvinnu
og aðstoð.... Þetta verður að-
alviðfangsefni stjórnvalda og
einstakra stórfyrirtækja eða
atvinnugreina sem verða köll-
uð til samstarfs um vandann."
Allt hefur þetta ræst illilega
og þarf ekki frekar að fara í
grafgötur um sannleiksgildi
þessara orða völvunnar. Eng-
in önnur spá annarra ís-
lenskra tímarita eða blaða ýj-
aði að þessu atriði jafnsterkt
og völva Vikunnar gerði. Einn
alþingismaður (nú í stjórnar-
andstöðu) orðaði það svo fyrr
á árinu við þann er þetta ritar
að hann sæi sér nú varla ann-
að fært en að kanna vel um-
mæli völvu Vikunnar í byrjun
hvers árs - til að hafa „sam-
anburð í árslok“ eins og hann
orðaði það.
„Það verður ekki mikil ró í
þjóðfélagi okkar,“ sagði völv-
an einnig. Hún talaði um van-
rækslu í ríkari mæli en hjá
mörgum öðrum þjóðum.
Flestir geta nú verið sammála
henni um óróann. Er ekki
einmitt núna rætt um „van-
rækslusyndir“ sem við séum
nú að súpa seyðið af?
„Gengisbreyting verður í
umræðunni þar sem erfiðlega
mun ganga að sætta vissar
atvinnugreinar við tilhugsun-
ina um að fá ekkert í sinn hlut
áður en tekin verður lokaá-
kvörðun um sameiningu ís-
lensku krónunnar við Evrópu-
myntina ECU.“
Gengisfelling var áreiðan-
lega ekki efst í huga fólks í
byrjun þessa árs, þegar verð-
bólgan var að færast niður í
eins stafs tölu. En hvað hefur
ekki gerst? Var gengisfelling-
arhugtakið ekki orðið ofarlega
í huga margra forystumanna í
atvinnulífinu þegar fyrir fáum
mánuðum? - Og hefur nú
ræst að fullu. Völvan talaði
um nokkurt fylgistap beggja
stjórnarflokkanna í skoðana-
könnunum en kosningar yrðu
ekki á árinu. Hvort tveggja
gekk eftir.
Völvan ræddi tilraunir
stjórnarandstöðu til að fá ein-
staka þingmenn úr stjórnar-
flokkunum til liðs við sig og
kröfu áhrifamanna innan Sjálf-
stæðisflokks til liðsmanna
þess flokks að sýna flokks-
hollustu. Þetta kom fram er
tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins sýndu tilþrif til stjórn-
arandstöðu í EES-málinu.
Ónóg samstaða Kvennalist-
ans í því máli er nú alkunn og
yfirlýsing einnar þingkonu list-
ans um EES sannar þetta.
„Búnaðarbankinn verður
ekki seldur á næsta ári,“ sagði
völvan. Gagnstætt því sem
rætt var um - að Búnaðar-
bankinn yrði seldur á árinu -
varð ekki af því eins og völv-
an líka spáði.
Deilur um dagpeninga ráð-
herra urðu sannmæli og raun-
vextir lækkuðu eins og völvan
spáði, þótt sú lækkun yrði
ekki í samræmi við ýtrustu
óskir margra.
■ Ófarnaður í efnahagsmálum og atvinnuleysi
mun skella á okkur.
■ Það verður ekki mikil ró í þjóðfélagi okkar.
■ Gengisbreyting verður í umræðunni.
■ Búnaðarbankinn verður ekki seldur á næsta
ári.
■ Byggðastofnun verður ekki svipur hjá sjón.
■ Rekstur ÁTVR verður endurskoðaður frá
grunni.
■ Upp kemst um stórfellt smygl fíkniefna.
■ Kristján Jóhannsson óperusöngari vekur
heimsathygli.
4 VIKAN 26. TBL. 1992