Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 5
Þjóðminjasafnið fékk ekki
fjárveitingu og umræða um
byggingu handboltahallar fjar-
aði út. - Hvort tveggja spá
völvunnar.
„Greiðslukort verða tekin í
notkun á bensfnsölum hjá
einu olíufélaganna næsta
vor,“ sagði völvan. Gekk það
ekki eftir?
„Byggðastofnun verður ekki
svipur hjá sjón miðað við fyrri
umsvif og þar verður um
fækkun starfsfólks að ræða.“
Þetta hefur ræst.
„Landsbankinn tekur við
mun stærra hlutverki í fjár-
málaheiminum en nokkur
önnur bankastofnun hér.“
Hvað er ekki orðið?
„Rekstur ÁTVR verður end-
urskoðaður frá grunni og
starfsemi hennar skipt upp.“
Rættist heldur betur.
„...sumargisting við eða á
bændabýlum framlengist í
vetrargistingu ... vinsæl ný-
breytni." Þetta er orðið að
veruleika allvíða í hinni
svokölluðu bændagistingu.
„Upp kemst um stórfellt
smygl fíkniefna hingað og er
um að ræða mesta magn sem
hingað hefur verið flutt til
landsins svo vitað sé.“ Það
rættist.
„Kristján Jóhannsson óp-
erusöngvari vekur athygli
heimspressunnar vegna stór-
sigurs á sviði í Bandaríkjun-
um,“ sagði völvan. Það var þó
ekki fyrr en nú í síðasta mán-
uði að fréttir bárust af því að
Kristjáni hefði boðist nýr
samningur við Metropolitan-
óperuna í New York og verður
það í fyrsta sinn sem hann
syngur í þessu fræga óperu-
húsi.
Þá má líka rifja upp það
sem völvan sagði um heiðurs-
hjónin Pál Pétursson alþingis-
mann og Sigrúnu konu hans.
En völvan sagði: „Páll Péturs-
son alþingismaður og Sigrún
kona hans munu leggja í
ferðalag á árinu og koma
heim með fréttir eða kynna
tillögu sem raskar viðhorfi
margra til breyttra samgöngu-
mála hér á landi.” Hvort sem
þau hjónin hafa látið sam-
göngumál raska huganum á
ferð erlendis eða ekki þá urðu
þau sannarlega til þess að
raska ró fjölmiðla og fleiri sem
hafa fullyrt að Páll hafi reynst
einn dýrasti makinn í ferð á
vegum borgarinnar. - Við
bíðum svo hins vegar frétta af
samgöngumálum frá þeim
hjónum.
Af erlendum atburðum má
meðal annars minnast orða
völvunnar um Arne Treholt,
sem hún sagði að látinn yrði
laus á árinu - og gekk eftir öll-
um að óvörum. Vaxandi at-
vinnuleysi í Þýskalandi og
minnkandi hagnaður þýskra
fyrirtækja vegna dvínandi sölu
á framleiðslu þeirra til Austur-
Evrópuríkja. - Þetta er komið
fram.
„Stærsta mál ársins í er-
lendum fréttum verður hins
vegar óleyst vandamál vegna
flóttamanna og fólksflutninga
milli landa ... til ríkja sem eru
þess umkomin að taka við
innflytjendum.“ Þetta hefur
heldur betur ræst.
í vísindaheiminum spáði
vöivan miklum og örum breyt-
ingum. Mikið af því hefur
komið fram nú þegar, svo
sem: mun hraðvirkari tölvur,
ný krabbameinslyf, framfarir á
sviði flutningatækni, til dæmis
tilraunir með lóðrétt flugtak
stærri flugvéla en hingað til,
frekari rannsóknir á sólkerfinu
eru í bígerð og fleira og fleira.
Auðvitað kom ekki allt fram
í spá völvu Vikunnar fyrir árið
1992. Það hefðu líka verið
mikil firn og draumórar að
gera kröfu til þess. Hins vegar
má sjá ýmis merki þess að
margt af því sem stóð í
spánni fyrir árið sem er að
líða en ekki hefur verið minnst
á hér sé nú í „burðarliðnum'1
og virðist munu sjá dagsins
Ijós fyrr en varir. Því er til
dæmis þannig varið um kafl-
ann yfir „Önnur lönd“, svo
sem Rússland, Svíþjóð (en yf-
irskrift þess kafla var einmitt
„Syngur og hvín í Svíþjóð"),
England og önnur Evrópu-
lönd.
Margt af því sem þar er
sagt hefur einmitt verið til um-
fjöllunar á árinu í þarlendum
blöðum og öðrum fjölmiðlum
en of langt að rekja hér í
þessu yfirliti um það sem
rættist í spá völvunnar.
í þessu blaði birtist svo ný
spá völvu Vikunnar sem er -
þrátt fyrir allt - ein áreiðanleg-
asta og jafnframt þekktasta
nýársspá hér á landi - og eft-
irsótt í mörgum nærliggjandi
löndum, svo ótrúlega sem
það hljómar.
Ritstjóri.
REPECHAGEN
HÚÐSNYRTIVÖRURNAR
sem fariö hafa sigurför um Bandaríkin.
Frábærar stofumeöferðir ásamt vörum fyrir
allar húögeröir til heimanotkunar.
ATH! Þessar frábæru húösnyrtivörur eru
aðeins seldar hjá snyrtifræöingum.
Hringið og fáið nánari
upplýsingar
Borgarkringlunni
Sími 685535
26.TBL. 1992 VIKAN 5