Vikan


Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 18

Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 18
tökin. Þetta starfsfólk hafði vinnu og byggði afkomu sína á að vinna fyrir okkur. Þegar stríðinu síðan lauk og við bjuggumst til brott- farar vildi úganska stjórnin ekki taka við þessu starfsfólki vegna þess að hún viðurkenndi ekki þá menntun sem við höfðum veitt því. Ég held að svona samtök eins og LÁL gæti sín ekki alltaf nógu vel á þessu. Innfædda starfs- fólkið stendur uppi atvinnulaust og réttinda- laust við brottför hjálparliðsins." LÆKNAR ÁN LANDAMÆRA - Hvernig eru samlökin LAL skipulögð og hvern- ig starfa þau? „Oft kemur beiðni eða viðvörun frá einhverj- Þetta var svokölluð þverlega. Mjög fær Ijós- móðir var með mér og hún fór að reyna að snúa barninu en gat það ekki með nokkru móti. Loks náði ég barninu út en það var reyndar dáið áður. En svona deyja konur unn- vörpum þarna. Það var tilviljun að þessi kona lifði, af því að ég var stödd þarna. í heiminum öllum deyja að meðaltali 500 þúsund konur á ári af völdum meðgöngu. Þetta er eins og ein júmbóþota á dag, full af ófrískum konum, myndi fljúga á fjall og farast. En um þetta er ekki talað í fjölmiðlum vegna þess að þetta er ekki júmbóþota. Á stríðstímanum í Úganda var þjálfað mikið af innfæddu starfsfólki til að vinna fyrir sam- Eftir bardaga mílli tveggja skæruliöahópa á Sri Lanka var komið meö um hundraö lík á sjúkrahúsiö til krufningar. Líkin lágu þarna um öll gólf og læknunum tókst aóeins aö sinna fáeinum á dag. „Lyktin á barnadeildinni, sem var þarna vió hliöina, var orðin hroóaleg," sagöi Jóhanna. Okkur var smyglað að landamærunum í „chadd- uri“ sem er eins og poki yfir höfuðið með götum fyrir augun. Við fengum oft mjög slasað fólk en höfðum aðeins eins konar upp- skriftabækur til að gera að þessum slysum. Það var virkilega rifist þegar þurfti að skipta þessum fjórum eggjum. Við vorum þarna tveir læknar og tveir hjúkrun- arfræðingar til að sinna öllu þessu fólki sem er jafnmargt og allir íslend- ingar. um sem er í „missjón“ (hjálparstarfi) í landinu eða nærliggjandi landi. Oftast held ég reyndar að fréttir í fjölmiðlum ráði því einfaldlega hvert farið er. Læknarnir í samtökunum þurfa ekki samþykki stjórnvalda. Þeir fara oft sem ferða- menn eða smygla sér ólöglega inn í landið. Það sem einkennir þessi samtök fyrst og fremst er að þau eru alltaf reiðubúin þegar kallið kemur. Allt undirbúningsstarf er frá- gengið og birgðir tilbúnar og búnar að fara gegnum tollskoðun. Nálægt flugvelli í Suður- Frakklandi eru tilbúin hjálpargögn sem hægt er að flytja á staðinn fyrin/aralaust. Til dæmis er þarna heill kóleruspítali og ef upp kemur kólerufaraldur er hægt að reisa hann í einum grænum. Sterka hliðin hjá LÁL er að þeir fara inn á svæði sem aðrir vilja ekki fara inn á, annað- hvort vegna þess að stjórnvöld leyfa það ekki eða að það er talið of hættulegt. Skipulag samtakanna er einfalt, þeir peningar sem til eru geta farið fljótt af stað og slíkar beiðnir þurfa ekki að fara í gegnum margar skrifstofur áður en peningarnir fara af stað. Ef hægt er þá eru einn eða tveir sendir á undan til að meta stöðuna og þá er oft sent fólk sem er í nálægum löndum. Samtökin eru mjög fær í skyndihjálp og neyðaraðstoð og hafa yfir að ráða mörgum sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir að fara hvenær sem er. En stundum, þegar neyðará- standið er afstaðið, hafa þau séð þörfina í 18VIKAN 26. TBL. 1992 landinu fyrir að þróa betra heilbrigðiskerfi og svo framvegis. Þegar kemur að því held ég að þessi samtök séu ekki eins góð. Þau eru ekki með nógu menntað starfsfólk, það er of ungt, og þau vinna ekki nóg með stjórnvöld- um eða innfæddum. Samtökin eru fjármögnuð nær eingöngu með frjálsum framlögum. Þau taka að sér ýmis verkefni fyrir Flóttamannahjálp SÞ og Evrópubandalagið. í stuttu máli má segja að samtökin séu fljót á staðinn og hafi laust fjár- magn strax.“ - Eru starfsmenn LÁL ef til vill í meiri hættu en aðrir hjálparliðar? „Ég veit það ekki, ég held að þeir séu ekki í meiri hættu en starfsmenn Alþjóða Rauða krossins. Þeir vinna á jafnmiklum hættusvæð- um en þeir gera það hins vegar með sam- þykki stjórnvalda.“ - Hvað finnst þér um þessa sjónvarpsþætti sem gerðir hafa verið um „Lækna án landamæra"? „Ég hef ekki séð þá, eða að minnsta kosti ekki þessa þætti sem fólk talar mest um. En þessi samtök eru mjög fær í að markaðssetja sig og koma sér á framfæri. Milli tíu og tólf prósent af öllum tekjum þeirra fara eingöngu í að auglýsa samtökin. Franska þjóðin hefur mikið álit á „Læknum án landamæra". Það var til dæmis gerð könnun meðal foreldra fyrir um tveimur árum og spurt hvað menn vildu að börnin yrðu þegar þau yrðu fullorðin. Fjörutíu prósent svöruðu: Læknar án landamæra. Þetta sýnir hvað samtökin eru vel metin og það er ekki síst þessum auglýsingaherferðum að þakka. Margar þeirra mynda sem ég hef séð um starfsemi LÁL hafa farið í taugarnar á mér vegna þess að það eru bara sýndar góðu hliðarnar en allt sem miður fer er ekki sýnt og vandamálin eru heldur ekki sýnd eða skýrð.“ - Eru þessi samtök kannski að sumu leyti glæfralegri en önnur eldri og ráðsettari samtök? Mæöur meö börn sem bíöa bólusetningar í Úganda. „Já, það má kannski segja það. Þetta er ungt fólk og ef hópurinn hefur ekki harðan stjórnanda, sem heldur þvf í skefjum, þá vill ýmislegt fara úr böndunum. Og það er mjög erfitt að halda fólki á mottunni, gera því grein fyrir að það er þarna til að vinna og ekki til neins annars. Menn þurfa auðvitað að hvíla sig öðru hverju en þeir eru ekki þarna til að leggja af stað i safarí á föstudagskvöldum og koma til baka á mánudagsmorgnum. Slæma pressan, sem samtökin hafa fengið á sig, er vegna þessa, það er að segja þar sem þetta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.