Vikan


Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 20

Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 20
 mjög erfitt aö læra á þá. Svo þurfti að taka all- ar pillur úr spjöldunum og pakka þeim inn í plast og siöan í strigapoka og sauma utan um. Þetta var gert vegna þess aö viö þurftum aö fara yfir margar óbrúaöar ár og oft var sundriðið þannig aö lyfin uröu aö vera í vatns- heldum umbúðum. Þegar þjálfuninni var lokið var okkur smyglaö upp aö landamærum Afganistans og Pakistans. Þaö var vegna þess aö viö unnum ólöglega og vorum skæruliöamegin. Spítalinn, sem ég var á, er alveg við landamærin aö Sovétríkjunum fyrrverandi og heitir þar Ba- dagsjan. Þangað var þriggja vikna gangur. Viö vorum meö fimmtíu hesta og okkur var smyglað að landamærunum íklæddum „chadduri". Þetta er eins og poki yfir höfuðiö með götum klipptum fyrir augun og götin eru eins og bródering á koddaveri. Flestar konur þarna ganga með svona höfuðbúnaö. Mér fannst í raun mjög gaman aö fara um hverja landamærastöðina eftir aðra án þess að verö- irnir gætu kannaö hvaö væri undir þessari múnderingu. Smávöxnum karlmönnum er smyglað á þennan hátt líka en aörir fara aö næturlagi eftir skuröum og slíku upp aö landa- mærunum." ERFIÐ FERÐ YFIR FJÖLUN „Síöan biöum viö færis við landamærin í tjaldi í tvo daga. Þaö var afar erfitt vegna þess aö viö máttum ekki vera úti á daginn og nær allir voru þá þegar orönir veikir af niöurgangi. Þetta var því frekar ömurleg vist. Hestarnir fóru ákveöna leið en viö fórum aöra leiö sem átti aö vera styttri. Enginn þekkti þó þessa leið og þegar til kom reyndist hún vera nær algjör- lega ófær. Viö þurftum að fara yfir tvö fjalla- skörö, yfir 5000 metra há. Viö bárum þaö sem viö þurftum á þessari leið. Margir gáfust upp og öll urðum við mjög fjallaveik. Fjallaveiki iýsir sér í mæöi, svima, máttleysi, uppköstum og höfuöverk. Þarna var engan mat að fá í þrjá daga, nema smávegis af rúsínum og hnetum sem viö vorum meö í poka, og ekkert vatn í tvo daga. Þaö var því ekki upplitsdjarft fólk sem kom niöur af fjallinu hinum megin. Feröin öll var mjög erfið. Viö gengum sautján tíma í einni lotu og á nóttunni mátti iðulega ekki nota vasaljós vegna þess aö viö fórum mjög nálægt rússneskum landamæra- stöövum. Viö þurftum líka aö fara yfir stór svæöi þar sem jarðsprengjur voru og þá þurfti aö gæta sín á að stíga aðeins á jarðfasta steina, ekki lausa. Þegar maður er oröinn þreyttur endar þetta yfirleitt meö því aö maður sýnir ekki fyllstu varkárni. Sem betur fer kom ekkert fyrir okkur en einn hestur lenti á jarösprengju og drapst. Þarna mátti sjá mikið af dýrum sem höföu gengið á jarösprengjur og drepist. Viö misst- um líka einn asna sem hrapaði í straumþunga á. Aö ööru leyti uröu engin stórslys á leiöinni." TVEIR LÆKNAR FYRIR 400 ÞÚSUND MANNS „Á þessum slóöum búa um fjögur hundruð þúsund manns. Þarna vorum viö tveir læknar og tveir hjúkrunarfræðingar. Á milli spítalanna var þriggja daga gangur. Viö höföum nóg af öllu, lyfjum og tækjum til aö gera stórar aö- gerðir, en litla kunnáttu. Þaö fylgir því geysi- legt álag að fá mjög slasað fólk en kunna lítiö fyrir sér. Viö gátum heldur ekki sótthreinsaö tækin almennilega. Viö fengum oft mjög mikið slasað fólk, fólk sem hafði til dæmis misst út- limi eða augu og við höföum aðeins eins kon- ar uppskriftabækur til aö gera að þessum slysum. í fyrsta skipti sem maður gerir svona aðgerð eru vinnubrögöin hroðaleg. Þetta er eini staðurinn sem ég get sagt um að ég hafi beinlínis bjargað mannslífum en, eftir á fór maður aö hugsa: Hvað skildum við eftir? Viö skildum nefnilega ekki neitt eftir. Þarna var vannæring og þarna haföi oröiö uppskerubrestur. Fæðuskorturinn var svo mikill aö viö áttum erfitt með að fá keyptan mat. Viö vorum sex útlendingar saman þarna og á ferðinni yfir fjallasköröin, sem ég sagöi frá áöan, kom þaö upp eitt sinn aö viö gátum fengið keypt fjögur egg. Og þaö er ótrúleg spenna sem kemur upp þegar allir eru svang- ir. Það var virkilega rifist þegar kom að því að skipta þessum fjórum eggjum. Mér fannst að við gerðum lítiö gagn í Afganistan til langframa. Þarna var vannæring og mislingafaraldur í uppsiglingu en viö höfð- um engin bóluefni. Ég kom beint heim frá Afganistan um jólin og þá varð mér mjög um aö sjá allsnægtirnar hér og eins aö ekkert skyldi vera talað um Afganistan. Á þessum stað sem ég var á er næstum jafnmargt fólk og hér á landi og þetta fólk dreifist um svæöi sem samsvarar rúmlega helmingnum af íslandi. Þarna vorum viö tveir læknar og tveir hjúkrunarfræðingar til aö sinna öllu þessu fólki. Og mér fannst bruðlið hérna heima alveg ótrúlegt; bruöl í heilsu- gæslunni, bruöl meö jólin og svo framvegis. Þetta eru svo miklar andstæöur. Núna eru fréttir frá Sarajevo á hverjum degi í blöðunum en á þessum tíma var aldrei talaö um Afganistan. Þó var þaö sem þar var að gerast aö minnsta kosti alveg eins hræðilegt og þaö sem nú er aö gerast í Sarajevo. En fólkið þar er hvítt og þaö er nær okkur. Þess vegna nær neyð þess betur eyrum okkar. Síöustu nóttina mína í Afganistan, á leiöinni til baka, sváfum viö úti í tuttugu stiga frosti. Viö vorum meö góða svefnpoka en Afganirnir höföu ekki neitt. Þeir eru ótrúlega þrautseigir. Þeir kveiktu bara eld og sátu kringum hann meö eitt lítiö teppi.“ ÍSLAM HAMLAR HJÁLPARSTARFINU - Er ekki erfitt aö starfa í íslömsku ríki, sér- stakiega fyrirkonu? „Jú, það er erfitt. Maður verður aö klæöa sig á sérstakan hátt, veröur til dæmis að vera meö skuplu á höföinu því aö þaö þykir ósiö- samlegt aö konur hylji ekki hár sitt. Maður veröur líka að vera í víðum fötum og kjól eða skikkju utan yfir, sem nær niöur aö hnjám. Ég var eina konan í karlasamfélagi og hitti raun- verulega aldrei konu, hvorki í Afganistan né Pakistan. Þaö er erfitt aö reka prógrömm fyrir konur því aö þær mega ekki fara út úr húsi nema í fylgd karlmanns, bróður, föður eða eiginmanns, og þær veröa að vera huldar. Þegar ég reyndi til dæmis að reka bólusetn- ingaráætlun fyrir ófrískar konur vegna stíf- Þaö er miklu meiri lífs- fylling í þessu heldur en að vinna þar sem allir vilja vera. Þróunarhjálp er bisniss og þaö er mikið af „þotu- fólki“ í þessu, fólki sem flýgur á fyrsta farrými og býr á Hilton. Það fer í taugarnar á mér hvernig fjölmiðlar nota myndina af vannærða barninu meö flugurnar í augunum. krampa, sem börn deyja þarna unnvörpum úr, reyndist þaö ekki hægt.“ - Segöu mér nánar frá þessu. „Já, ég haföi fundiö konu í Pakistan sem kunni aö lesa og skrifa, reyndar bara pers- nesku. Sjálf kunni ég þá mjög lítið í persnesku og ekki nóg til þess aö geta útskýrt fyrir henni. Túlkurinn minn var þá settur bak viö skerm og maðurinn hennar var viöstaddur til að tryggja aö enginn annar karlmaöur myndi sjá hana. Frh. á bls. 22 Stórverslun í rúst eftir aó kveikt hafói veriö i henni. Þetta er í þorpinu á Sri Lanka sem ind- versku „frióargæslulióarnir” lögöu í rúst og stráfelldu sjötíu þorpsbúa. 20 VIKAN 26. TBL.1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.