Vikan


Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 25

Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 25
Skólaböll stóðu aðeins til tíu eða hálfellefu, „prom-ball- ið“ var að vísu aðeins lengur. Flestir krakkarnir voru búnir að hlakka til í mörg ár að fara á þetta ball en mér þótti það heldur hallærislegt. Það var allt mjög yfirborðskennt og strákarnir voru að eyða langt um efni fram í alls konar vit- leysu eins og að leigja eðal- vagna og smóking. „Prom- ballið" var auðvitað miklu kostnaðarsamara fyrir þá en stelpurnar því þeir buðu stelp- unum og þurftu að borga allt fyrir þær. Yfirleitt er mjög vel fylgst með AFS-skiptinemunum. Þeir hafa allir trúnaðarmann sem þeir geta leitað til ef vandamál koma upp með fjöl- skylduna eða annað. Trúnað- armaðurinn minn var mikill vinur fjölskyldunnar sem ég var hjá en það kom ekki að sök því engin vandamál varð- andi hana komu upp. Það getur þó verið mjög slæmt ef trúnaðarmaðurinn er tengdur fjölskyldunni. Norðurlandabú- ar eiga oft í miklum erfiðleik- um með að aðlagast fjölskyld- unni því þeir eru vanir miklu meira frelsi en tíðkast í öðrum löndum. í skólanum, sem ég var í, var stelpa frá Finnlandi sem var einnig AFS-skiptinemi. Hún var mjög óheppin með sína fjölskyldu og þröngvaði sér eiginlega upp á fjölskyld- una mína. Það var allt í lagi, þetta var ágæt stelpa, en fjöl- skyldan sem hún lenti hjá var mjög þröngsýn og hafði eigin- lega ekki áhuga á neinu nema Bandaríkjunum. Við AFS-skiptinemarnir höfðum ágætt samband okkar á milli og hittumst stundum yfir helgar. Einnig heimsóttum við hvert annað og ég eignað- ist til dæmis mjög góðan vin frá Finnlandi sem var skiptinemi í sama fylki og ég. Við fórum oft á seglbretti og skíði saman en þarna rétt hjá var eitt besta skíðasvæðið á austurströndinni." Þrátt fyrir misjafna reynslu af Bandaríkjunum virðist vera eitthvað við landið sem dregur Árna Pál til sín því hann er á- kveðinn í að fara þangað næsta sumar þegar hann hef- ur lokið prófi úr Verzlunarskól- anum og hefja nám í alþjóða- fræði og alþjóðaviðskiptum við háskólann í Colorado. „Það er rétt, ég hreifst af mörgu í Bandaríkjunum þó þar séu einnig margir þjóð- félagslegir gallar. Háskólar í Bandaríkjunum eru mjög góð- ir en þvf miður hafa ekki nærri því allir bandarískir krakkar efni á háskólanámi. Það er einn af slæmu göllunum við kerfið þarna úti. Ástæðan fyrir því að ég valdi háskólann í Colorado er fyrst og fremst sú að ég hef heyrt að mjög gott orð fari af honum. Það er einnig gífur- lega fallegt þarna og mjög gott skíðasvæði. Bandaríkin hafa upp á stórkostlega nátt- úru að bjóða. Því kynntist ég best á ógleymanlegu ferðalagi um landið sem ég fór í með fjölskyldunni og nokkrum vin- um. Við keyrðum í húsbíl í gegnum tuttugu og eitt fylki á hálfum mánuði. Þetta var sannkölluð ævintýraferð og þrátt fyrir gífurlega keyrslu var þetta rosalega skemmtilegt. Þrátt fyrir að það væri frá- bært að vera í Bandaríkjunum færi ég frekar eitthvað annað ef ég væri að velja land sem skiptinemi. í dag færi ég frek- ar til framandi lands eins og Bólivíu eða Thailands. Það er án efa erfiðara að fara til lands sem er meira framandi en veitir manni ábyggilega betri reynslu. Ég er miklu víð- sýnni núna en ég var og geri mér betur grein fyrir því hvað lífið hefur upp á að bjóða. Eina skiptið sem ég efaðist um að það hefði verið rétt hjá mér að fara sem skiptinemi var þegar ég var að fara aftur heim til íslands. Það var svo leiðinlegt að yfirgefa allt fólkið sem ég hafði kynnst alls stað- ar úr heiminum og þótti orðið vænt um, vitandi að það væru mjög litlar líkur á að ég ætti eftir að sjá það aftur. Það var mjög skrítið að koma heim. Fyrir mig var það erfiðara en að fara út. Ég var búinn að setja mig inn í bandarískan hugsunarhátt og farinn að aðlagast lífinu þarna úti. Til dæmis klæðnaðurinn, ég var eins og bjáni hérna á íslandi í fötum sem voru mjög flott í Bandaríkjunum. Til að byrja með var einnig mjög leiðinlegt að vera ári á eftir í skólanum en það lagaðist smám saman og er orðið fínt núna.“ Þannig lýkur þessi óvenju- legi skiptinemi, sem fór til venjulegs lands og bjó hjá venjulegu fólki, máli sínu. Hann sér ekki eftir neinu nema ef til vill því að hafa ekki verið opnari og jákvæðari gagnvart Bandaríkjamönnun- um sem hömuðust við að gera hann eins amerískan í hugsunarhætti og þeir eru sjálfir. □ SITIVE LINE Nýtt krem hefur bœst í hina frábœru Sensitiue línu frá ELLEN BETRIX fyrir viðkvœma húð. Nýjá kremið heitir ANTI-STRESS CTIEAM. Það inniheldur hvorki ilmefni, litarefni eða rotvarnarefni og veitir húðinni vernd, nœringu og hvíld eftir annasaman dag. \ \ \ anti-stress-cream SOINS ANTI-STRESS Anti-Stress-Cronrví ELLEN betrix SENSITIVE 1 FOR SENSITIVE ANDS1W POUR PCAUX .‘.EMSIHl ■ 50 rnl 49.75 u t e 1.75 OZ. netwt ELLEN BETRIX SENSITIVE ^ti-stress-cre^ ^ti-stress-crew^ 'sschutz und Nachtp,kT ELLEN BETRIX ÚTSÖLUST AÐIR: REYKJAVÍK: Clara Kringlunni, Clara Austurstræti, Holtsapótek, Snyrtivöruverslunin Laugavegi 76, Gullbrá Nóatúni, Topptískan Laugavegi 15, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Soffía Hlemmtorgi. Andorra Hafnarfiröi, Apótek Keflavíkur, Apótek Akureyrar, Hilma Husavík, Krisma ísafirði. Ninja Vestmannaeyjum. Snyrtihusið Selfossi. 26.TBL. 1992 VIKAN 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.