Vikan


Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 26

Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 26
TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON Einn af lesendum Vikunn- ar, Andrés Guömunds- son, sjötugur lyfjafræö- ingur, tók þátt í því með Vik- unni og Lyf hf. að reyna NUPO-megrunarkúrinn ásamt öðrum. Andrés hafði ekki mikla trú á honum fyrirfram þar sem hann hafði reynt ým- islegt áður. En árangurinn lét ekki á sér standa. Á annan tug kílóa eru nú flogin þrátt \éU ISLENSKUR LYFJAFRÆÐINGUR veginn í stað. Ég hafði duftið með mér út og tók það nokk- uð reglulega en fylgdi ekki einingakerfinu eftir aö sama skapi og þvi fór sem fór. Á virkum dögum tek ég alltaf NUPO-skammtinn og líka um helgar nema ég borða alltaf kvöldmatinn á sunnu- dögum - sem er of mikil freisting til að hægt sé að sleppa því.“ LETTIST UMTALSVERT fyrir nokkur hlé og ætlar Andr- és að segja okkur stuttlega frá reynslu sinni. „Ég er búinn að vera allt of feitur í mörg ár, var kominn í um eitt hundrað og fimmtán kíló rúmlega þrítugur og þá var ég 186 cm á hæð. Á þeim tíma tók ég af mér nokkur kíló með einhverjum kúr sem þá var á markaðnum en síðan hef ég rokkað á bilinu 120 til 135 kíló. Þessi fjandi er í ætt- inni. Bræður mínir hafa einnig tilhneigingu til að fitna. Ég var aldrei feitur sem barn og stundaði mikið íþróttir fram aö því aö ég hóf nám í lyfjafræði. Þá fór ég að taka það rólega og byrjaði að fitna. Ég hef vitað í gegnum starf mitt um alls kyns lyfseðils- skyld megrunarlyf sem komið hafa á markaðinn í gegnum tíðina en þau höfðu það mikl- ar aukaverkanir, meðal ann- ars ávanahættu, að ég forð- aðist allt slíkt. Hins vegar fór ég á heilsuhæli þar sem ég var eingöngu á glasafæöi og f líkamsrækt en það tók mig ekki langan tíma að bæta kílóunum á mig aftur eftir aö ég kom heim. Mér var tjáð af lækninum mínum að ég yrði aö grenna mig þar sem ég ætti að gang- ast undir ákveðna rannsókn sem ekki væri hægt að fram- kvæma nema ég væri aö minnsta kosti sautján kílóum léttari. Skömmu eftir að ég fékk þá tilkynningu var ég spurður að því hvort ég væri til í að taka þátt í þessu með Vik- unni og Lyf hf. og ákvaö ég eftir nokkra umhugsun að gera það. Ég fór niður á Borgarspít- ala, hafði samband við lækn- inn minn og var vigtaður um MEÐ NUPO OG ER ORÐINN ALLUR ANNAR leið. Þá kom í Ijós að ég var rúm 130 kíló.“ - Hvernig leist þér á kúrinn í upphafi út frá fyrri reynslu þinni? „Mér leist bara vel á hann, fannst ekkert út á hann að setja. Mér fannst meira að segja eftir að ég hafði kynnt mér einingakerfið að ég þyrfti næstum að borða meira en ég var vanur.“ - Hvernig fannst þér duftið á bragðið? „Mér fannst það bara ágætt en það er kannski ekki að marka mig þar sem mér finnst næstum allur matur góöur og það er sjálfsagt það sem hef- ur gert mig svona feitan í upp- hafi.“ - Hvort bragðið af NUPO- duftinu finnst þér betra? „Ég hef alltaf haft aðra bragðtegundina heima og hina í vinnunni og er ég ekki frá því að mér finnist súkku- laöibragðið betra þegar til lengdar lætur. Ég verð að við- urkenna að mér hefur aldrei gefist tími til að taka alla skammtana sex. Ég drekk Nupoið alltaf í staðinn fyrir morgunmat og svo drekk ég annan skammtinn í kringum hádegið og þá gjarna kaffi og borða brauðsneið með osti eða einhverju áleggi með. Þriðja skammtinn tek ég síð- an um kaffileytið og loks einn áður en ég fer heim. Ég held samt að það væri ráðlegt fyrir mig aö taka tvo skammta í einu í hádeginu og einnig áður en ég fer heim þar sem mér finnst ég ekki koma því við að dreifa skömmtunum sex jafnt yfir daginn." - Hvernig gekk þér aö kom- ast inn í einingakerfið? „Ég fór yfir það og tel mig hafa komist nokkurn veginn inn í það en meö þessari bar- áttu minni við aukakílóin í gegnum árin hefur mér lærst nokkurn veginn hversu orku- rík hver fæðutegund er. Ein- ingakerfið er áreiöanlega mjög hentugt fyrir þá sem eru aö byrja og vilja komast vel inn í þetta og fylgja þessu á mjög nákvæman hátt. Eftir að ég byrjaöi á kúrnum fór ég reglulega í vigtun til næringarfræðingsins hjá Lyf hf. og þetta gekk nokkuð jafnt og þétt hjá mér þangað til ég fór til útlanda i tilefni af sjö- tugsafmælinu mínu en þá stóð þyndartapið nokkurn „Eg hef losnað viö um 12 kíló og þaö er ekki hægt aö segja annað en aö lífið sé allt annaö á eftir. Þaö tekur mig ekki nema um hálftíma aö ganga þá leiö sem tók mig um fjörutíu og fimm mínútur áður.“ - Hefur þú stundað ein- hverjar íþróttir samhliða kúrn- um? „Ég hef alltaf farið í langan göngutúr á morgnana áður en ég fer i vinnuna og hef gert það í gegnum árin þegar færðin er sæmileg og vel viðr- ar. Ég hef losnað við um tólf kíló og það er ekki hægt að segja annað en að lífið sé allt annað á eftir. Það tekur mig ekki nema um hálftíma að ganga þá leið sem tók mig áður um fjörutíu og fimm mín- útur. Maður finnur þetta einnig á liðamótunum í fótunum en ég hafði töluveröa verki í þeim áður og hafði leitað til læknis út af þeim. Núna hafa þeir minnkað. Blóöþrýstingur minn hefur einnig verið nokkuð hár og hefur hann lækkað ásamt púlsinum, hvort sem má rekja það til þessa þyngdartaps eða ekki.“ - Hver er stefnan hjá þér í þessum efnum núna? „Ég er staöráðinn í að halda áfram, að minnsta kosti næstu mánuðina. Ég stefni ekki á að léttast mjög hratt því mér finnst að í mínu tilfelli fari betur á að gera það jafnt og þétt.“ - Hver finnst þér helsti kosturinn við þennan kúr? „Hann er fyrst og fremst sá hversu þægilegt það er aö taka þetta og þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að mann vanti einhver nauðsynleg næringarefni. Ég finn ekki fyrir neinum ókostum nema þá helst að maður saknar þess stundum að geta ekki borðað eins mikið og mig langar til. Ég er samt ákaflega bjartsýnn á framhaldið," segir Andrés að lokum. □ 26 VIKAN 26.TBL. 1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.