Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 64
HUGARÓRAR HALLGERÐAR
ÁRAMÓTAHEIT
Vá. Þaö er ekkert eðli-
legur fílingur í mér út af
nýja árinu. Þaö er sko
á hreinu aö ég ætla aö breyta
öllu í mínu lífi og annarra. Ég
byrja á aö planta mér í súmó-
glímu meö þaö sama. Þaö má
segja aö ég sé eiginlega í
stööugri hættu hérna heima.
Ég finn það svo innilega.
Glætan. Gamla settiö hérna
heima er á kafi í áramótaheit-
unum og ætlar aö byrja á
rosalegri megrun eftir miö-
nætti á gamlárskvöld. Ég verö
sennilega aö búa hjá afa á
Grandanum á meöan. Ég læt
ekki geðvonskuna í þessu
sjúka liði böggast á mér á
meðan mörinn fýkur af því.
Þaö verður hrikalega gam-
an aö komast inn í nýja áriö.
Raketturnar eru komnar í bíl-
skúrinn og þaö má búast viö
því aö pabbi þurfi aö skjóta
upp fyrir alla götuna. Hann
var í skátunum þegar hann
var átta ára. Skammast ég
mín eitthvað smá. Já. Ég
meina, sumir eiga bágt. Ég
ætla aö breyta lífi mínu
þannig á nýja árinu aö ég má
segja veröi eins og ný.
Það er geggjaö dansnám-
skeið í gangi meö vorinu í
Japan. Ég fæ vetrarhjálpina til
aö redda því dæmi fyrir mig ef
ég kemst ekki í sparigrísinn
hjá liðinu hérna. Ég þarf líka
aö komast á tónleika bæöi í
Englandi og Kína. Sénsinn.
Eins og maöur missi svona
smotterí þó sumum gangi erf-
iðlega að opna fyrir túkallana.
Vesen aö gamli gaurinn
skyldi finna nýja áramóta-
heitaplaggiö mitt. Glætan. Ég
meina, þó maöur búi til
stundatöflu yfir markmiö sfn
þarf ekki allt aö brjálast hérna
heima. Það á aö senda mig til
geðlæknis af því aö ég geröi
stundatöflu yfir hálsbólgur,
höfuöverki, vöövabólgur og
ögn af rosalegu kvefi fram til
vorsins. Þaö sjá allir aö ég get
ekki veriö í skólanum allan
þennan tíma sem eftir er án
þess aö taugakerfið gefi sig
sviplega. Sénsinn. Eins og
þetta gengi fái frekjulega aö
stoppa fríin mín af.
Það er ekkert eölilegt
hvernig þetta liö horfir á mig
síöan plaggiö fannst. Ég veit
aö það elskar mig enginn. Ég
fer þó ekki í Iffstykki og tel
öörum trú um aö ég hafi
grennst eins og pabbi gerir
reglulega.
Ég hringdi í afa út af þessu
með súmóglímuna og hann
bauöst strax til aö koma og
þjálfa meö mér. Ég meina,
pælið í þvi aö þaö á aö bögga
mann meö öllu. Þaö er ó-
geðslegt aö komast aö því,
svona rétt þegar maður sér
fram á nýtt ár, aö þaö á aö
lækka viö mig vasapeninginn.
Ég hef rétt marið þaö aö láta
þennan tíuþúsundkall duga á
viku í vetur. Glætan. Ég get
ekki búiö meö svona afbrigði-
legu liði. Ég þroskast ábyggi-
lega ekki rétt eöa eitthvað.
Viö skulum bara athuga
þaö aö þegar ég ráðlagði Jóu
vinkonu aö láta liðið heima
hjá henni ekki komast upp
meö aö kvelja hana meö kröf-
um um peningasparnað þá
gekk allt upp meö þaö sama.
Jóa bara grenjaði svo hátt aö
öll gatan var komin í málið. Ef
liöiö heima hjá henni átti aö
geta látið sjá sig úti á götu oft-
ar varö það aö hækka viö
hana gullið. Jóa er alsæl.
Vasarnir hennar eru eins og
gatasigti út af nýja seðladæm-
inu. Vonandi verö ég uppgötv-
uö snarlega. □
% Z' 'mm FÉL.fiG' OFN 'liL. bTftF M'ftL 6rttÐ bLmR. Rí-ðí /■ /UALÍ b'oK G.6LFl,l AF/Ia/A Kiub T ÖUA- Skf, 5T.
—> / /n'A/,/vi6 T
5 TÓR- 6,R<5T í A/A/ AFA ,/ ,/ > • > Z
/ XLETTA- A/E-F FjiKíA/ET RÓf/JUiVt F'OfiSTi R.Ó' t>D V . /
OL06.IJ-- J J R- OfiO.fi - V . /
FfiT^- fi Ou/R 7 J/
T<SL? T'j/Vbí ft UTí'a/a/ V > 11 > . /
ftRAAuR. ÓR.U6«G« þjÓÐ > > V s . /
EiWAR- > V—
/ 3 V 5~ 6 ÞekkíR LELi£>- ÍNfi. 6
Lausnarorð 1-6: RAGNAR
64 VIKAN 26TBL. 1992