Vikan


Vikan - 28.12.1992, Page 64

Vikan - 28.12.1992, Page 64
HUGARÓRAR HALLGERÐAR ÁRAMÓTAHEIT Vá. Þaö er ekkert eðli- legur fílingur í mér út af nýja árinu. Þaö er sko á hreinu aö ég ætla aö breyta öllu í mínu lífi og annarra. Ég byrja á aö planta mér í súmó- glímu meö þaö sama. Þaö má segja aö ég sé eiginlega í stööugri hættu hérna heima. Ég finn það svo innilega. Glætan. Gamla settiö hérna heima er á kafi í áramótaheit- unum og ætlar aö byrja á rosalegri megrun eftir miö- nætti á gamlárskvöld. Ég verö sennilega aö búa hjá afa á Grandanum á meöan. Ég læt ekki geðvonskuna í þessu sjúka liði böggast á mér á meðan mörinn fýkur af því. Þaö verður hrikalega gam- an aö komast inn í nýja áriö. Raketturnar eru komnar í bíl- skúrinn og þaö má búast viö því aö pabbi þurfi aö skjóta upp fyrir alla götuna. Hann var í skátunum þegar hann var átta ára. Skammast ég mín eitthvað smá. Já. Ég meina, sumir eiga bágt. Ég ætla aö breyta lífi mínu þannig á nýja árinu aö ég má segja veröi eins og ný. Það er geggjaö dansnám- skeið í gangi meö vorinu í Japan. Ég fæ vetrarhjálpina til aö redda því dæmi fyrir mig ef ég kemst ekki í sparigrísinn hjá liðinu hérna. Ég þarf líka aö komast á tónleika bæöi í Englandi og Kína. Sénsinn. Eins og maöur missi svona smotterí þó sumum gangi erf- iðlega að opna fyrir túkallana. Vesen aö gamli gaurinn skyldi finna nýja áramóta- heitaplaggiö mitt. Glætan. Ég meina, þó maöur búi til stundatöflu yfir markmiö sfn þarf ekki allt aö brjálast hérna heima. Það á aö senda mig til geðlæknis af því aö ég geröi stundatöflu yfir hálsbólgur, höfuöverki, vöövabólgur og ögn af rosalegu kvefi fram til vorsins. Þaö sjá allir aö ég get ekki veriö í skólanum allan þennan tíma sem eftir er án þess aö taugakerfið gefi sig sviplega. Sénsinn. Eins og þetta gengi fái frekjulega aö stoppa fríin mín af. Það er ekkert eölilegt hvernig þetta liö horfir á mig síöan plaggiö fannst. Ég veit aö það elskar mig enginn. Ég fer þó ekki í Iffstykki og tel öörum trú um aö ég hafi grennst eins og pabbi gerir reglulega. Ég hringdi í afa út af þessu með súmóglímuna og hann bauöst strax til aö koma og þjálfa meö mér. Ég meina, pælið í þvi aö þaö á aö bögga mann meö öllu. Þaö er ó- geðslegt aö komast aö því, svona rétt þegar maður sér fram á nýtt ár, aö þaö á aö lækka viö mig vasapeninginn. Ég hef rétt marið þaö aö láta þennan tíuþúsundkall duga á viku í vetur. Glætan. Ég get ekki búiö meö svona afbrigði- legu liði. Ég þroskast ábyggi- lega ekki rétt eöa eitthvað. Viö skulum bara athuga þaö aö þegar ég ráðlagði Jóu vinkonu aö láta liðið heima hjá henni ekki komast upp meö aö kvelja hana meö kröf- um um peningasparnað þá gekk allt upp meö þaö sama. Jóa bara grenjaði svo hátt aö öll gatan var komin í málið. Ef liöiö heima hjá henni átti aö geta látið sjá sig úti á götu oft- ar varö það aö hækka viö hana gullið. Jóa er alsæl. Vasarnir hennar eru eins og gatasigti út af nýja seðladæm- inu. Vonandi verö ég uppgötv- uö snarlega. □ % Z' 'mm FÉL.fiG' OFN 'liL. bTftF M'ftL 6rttÐ bLmR. Rí-ðí /■ /UALÍ b'oK G.6LFl,l AF/Ia/A Kiub T ÖUA- Skf, 5T. —> / /n'A/,/vi6 T 5 TÓR- 6,R<5T í A/A/ AFA ,/ ,/ > • > Z / XLETTA- A/E-F FjiKíA/ET RÓf/JUiVt F'OfiSTi R.Ó' t>D V . / OL06.IJ-- J J R- OfiO.fi - V . / FfiT^- fi Ou/R 7 J/ T<SL? T'j/Vbí ft UTí'a/a/ V > 11 > . / ftRAAuR. ÓR.U6«G« þjÓÐ > > V s . / EiWAR- > V— / 3 V 5~ 6 ÞekkíR LELi£>- ÍNfi. 6 Lausnarorð 1-6: RAGNAR 64 VIKAN 26TBL. 1992

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.