Vikan - 28.12.1992, Qupperneq 10
insprjMiF
VÖLVU-
SPÁIN
1993
„Ný aldursmörk fyrir lífeyrissjóösþega.”
„í nýiönaói veröur byggt á tölvuvinnslu og
veikstraumsrannsóknum.”
„Nýr skattur á
gjaldeyri til
feröalaga.”
bæði einstaklingum og hópum
sem vilja freista þess að ná á-
hrifum. Nöfn heyrast einnig í
framboð til borgarstjóra. Aðal-
lega verður þar að finna nöfn
innan Sjálfstæðisflokksins.
Einnig verða margir til að
hvetja Albert Guðmundsson í
stjórnmálin eina ferðina enn.
Hann mun taka því líklega og
minna á að enn eigi aldraðir
ekki sérstakan málsvara,
hvorki á þingi né í borgarstjórn.
■ Flokkurinn Nýr vettvangur
hverfur af sjónarsviðinu vegna
þess að árangurslaust reynist
að finna samstarfsflokk sem
vill Ijá máls á sameiginlegu
framboði. Núverandi fulltrúar
Nýs vettvangs hverfa á vit
annarra stjórnmálaflokka,
annars vegar Alþýðuflokks og
hins vegar Framsóknarflokks.
■ í samstarfi stjórnarflokk-
anna tveggja verður allt ó-
breytt nema hvað uppstokkun
verður talin nauðsynleg í
Sjálfstæðisflokki og verður
þar skipt út tveimur ráðherrum
sem báðir sætta sig við að
hætta því þeir fá önnur og
tryggari störf að launum.
■ Kosningar verða ekki á ár-
inu en tæpt stendur ríkis-
stjórnin næsta haust, þegar
enn kemur í Ijós mikill óróleiki
vegna stöðu mála í EES-EB
viðræðum sem hvergi nærri
verður lokið á þeim tíma.
Krafan um þjóðaratkvæði
vegna EES-samningsins
verður líka enn á borðinu.
Þetta verður hið versta mál
fyrir stuðningsmenn EES, ekki
síst eftir að útséð var um aðild
Sviss að samkomulaginu.
Svo mjótt er þó bilið milli
þess að til kosninga verði efnt
á árinu og að stjórnin sleppi
fyrir horn án kosninga að ég
sé fyrir mér að í þeim kosn-
ingum - þá eða síðar - muni
margir núverandi þingmenn
falla af þingi vegna óánægju
með störf þeirra. í þessum
kosningum munu hlutföll riðl-
ast að verulegu leyti. Sjálf-
stæðisflokkurinn yrði eftir sem
áður stærsti stjórnmálaflokk-
urinn en bæði Alþýðuflokkur
og Alþýðubandalag munu ná
forskoti á Framsóknarflokkinn
sem tapar fylgi vegna óskýrr-
ar stefnu um EES-samninginn
hingað til, svo og í EB-málinu.
■ Steralyfin verða áfram vax-
andi vandamál hér á landi.
Því minnist ég á þau hér í
framhaldi af tali mínu um
stjórnmálin að á Alþingi verð-
ur málið til umræðu og tillaga
kemur fram um sérstaka og
breytta löggjöf um innflutning
og notkun steralyfja.
Málin þróast nefnilega
þannig að í stað vímuefna,
sem talsverður árangur næst í
að uppræta innflutning á,
munu óprúttnir fantar snúa
sér að stera- eða hormónalyfj-
um í jafnríkum og jafnvel meiri
mæli en áður þekktist um
vímuefnin eða eiturlyfin.
Margir munu telja sig vita
að stera- og hormónalyfin séu
hættuminni og takmarkist við
færri neytendur en hin voða-
legu vímuefni og því sé ekki
svo alvarlegt mál að reyna að
koma þessum fyrrnefndu lyfj-
um til þeirra sem eigi allt undir
því að ná árangri í tilraunum
við að fullkomna líkamann.
Allt verður þetta hið erfið-
asta mál við að eiga og Land-
læknisembættið og löggæslu-
menn eiga ekki sjö dagana
sæla í baráttu sinni við al-
menningsálitið. Það er eins
og oft áður seint að taka rétta
afstöðu til mála.
í DEIGLUNNI
■ í samgöngumálum verður
tekist á í fluginu og raunar
einnig á hafinu. Ekki verður
það í formi bardaga heldur
verður þar barist um völd og
fjárráð. SAS hið skandinav-
íska mun bjóða Flugleiðum
samvinnu sem varla verður
hægt að hafna. Bæði gildir
það að því er varðar farþega
og frakt. Raunar hefjast á ár-
inu viðræður milli þessara
tveggja félaga um sameiningu.
■ Samgöngur á sjó verða líka
ofarlega á blaði á vordögum
því þá rætist langþráður
draumur sumra sem hafa
þráð að eiga þess kost að
komast sjóleiðis með farþega-
skipi annars staðar frá íslandi
en Seyðisfirði.
■ íslenskur vísindamaður
vekur alþjóðaathygli fyrir störf
sín - og íslenskur lögreglu-
maður yfirgefur starf sitt hér
og ræðst til þekktrar erlendrar
upplýsingaþjónustu á lög-
gæslusviðinu. Hann mun
hljóta skjótan frama þar á
sínu sviði. Þekktur embættis-
maður í opinbera kerfinu
verður á haustdögum ráðinn
til norrænu stofnunarinnar í
Mariehamn á Álandseyjum.
íslenskur handknattleiksmað-
ur ræðst til starfa erlendis við
að þjálfa landslið viðkomandi
lands. Eyðni verður áberandi
á íslandi á næsta ári og að-
stoðar beðist frá þekktri með-
ferðarstofnun sem veitir hana
skjótt og kvaðalaust.
■ Hjá sjónvarpi Ríkisútvarps-
ins verður veruleg dagskrár-
breyting þegar ákveðið verður
að færa til kvöldfréttatímann. í
stað þess að lengja bilið milli
fréttatímanna að kvöldinu,
eins og rætt var um, verður
aðalfréttatíminn færður aftur
til kl. 22 og verður klukku-
stundar langur og eini frétta-
tími kvöldsins. Þetta setur
strik í reikninginn hjá Stöð 2
þar sem RÚV hefur þá náð
svo til öllum atburðum dags-
ins austanhafs og vestan.
■ Listamenn munu samein-
ast um kröfuna um sérstakt
ráðuneyti menningarmála og
verður orðið við þeirri ósk frá
og með myndun næstu ríkis-
stjórnar. Ekki sé ég fyrir að
samkomulag takist um stað-
setningu nýs tónlistarhúss
þrátt fyrir áherslu kröfuhafa
um að það hús verði byggt
sem fyrst.
■ Minni háttar væringar
munu að einhverju leyti halda
áfram, að minnsta kosti á yfir-
borði fjölmiðla, milli ráðherr-
anna Davíðs Oddssonar og
Þorsteins Pálssonar. Munu
fjölmiðlar láta dæluna ganga
þar til myndaður verður stuðn-
ingsmannahópur við Þorstein
og hann hvattur til að mynda
opinbert andóf gegn Davíð, í
líkingu við það sem kennt var
við Albert Guðmundsson á
sínum tíma. Verður þetta mál
til umræðu allt fram að næstu
kosningum og þá tekin afstaða
til framboðs Sjálfstæðisflokks-
ins á þessum forsendum.
■ Þegar ég lít yfir sviðið hér
innanlands er svo margt í
deiglunni að heildin verður
einstökum málum yfirsterkari.
En - samt sem áður - tvö mál
virðist mér þó yfirgnæfa: ann-
ars vegar baráttan við erlend-
ar skuldir þjóðarinnar, sem
kemur við alla landsmenn á
einhvern hátt, hins vegar
vinnumarkaðurinn og afleidd
vandamál - eða við skulum
segja mál sem snúast um að
halda uppi vinnu og fram-
leiðslu. Vextir eru þar stærsta
einstaka málið sem tekist
verður verulega á um og geta
sameinað eða sundrað þjóð-
inni þegar ákvarðanir í timans
rás sjá dagsins Ijós.
Ríkisvaldið er leiðandi aðili
í þessum ákvörðunum. Ef það
er ekki sá aðili sem sér hve
vaxtapólitíkin er stór þáttur í
meðferð þjóðmálanna - í
meðbyr þeirra og mótbyr -
þá er flest annað hulið augum
þess. Þá er heldur ekki von til
þess að við hér getum ráðið
ráðum okkar sem sjálfstæð
þjóð miklu lengur - þegar
heimurinn er að skreppa sam-
an og viðskiptabandalög,
myntbandalög og þjóða-
bandalög eru sú framtíðar-
músík sem leikin verður.