Vikan


Vikan - 28.12.1992, Side 24

Vikan - 28.12.1992, Side 24
Hann Árni Páll er ekkert venjulegur. Fyrir tveim- ur árum var hann bú- inn að fá nóg af veðrinu og til- breytingarlausu lífinu á íslandi og fór þess vegna sem skiptinemi með AFS skipti- nemasamtökunum til Banda- ríkjanna. Ólíkt flestum þeim sem fara sem skiptinemar og vilja kynnast nýrri þjóð og menningu var hann mjög nei- kvæður á það líf sem beið hans fyrir vestan haf. Það síð- asta sem hann gat hugsað sér var að láta einhverja Am- erikana segja sér hvernig allt ætti að vera. Þrátt fyrir það rættist úr hlutunum. Þetta ár reyndist vera eitt það allra besta í lífi hans hingað til. „Ég gerði gífurleg mistök fyrst eftir að ég kom út. í stað þess að reyna að aðlagast nýjum aðstæðum beið ég eftir því að Ameríkanarnir aðlög- uðust mér - sem er auðvitað alveg fáránlegt. Það tók mig því nokkra mánuði að eignast góða vini og til að byrja með var ég mest með fjölskyldunni sem ég bjó hjá. Ég fann þó aldrei fyrir heimþrá því ég hefði varla getað lent hjá betra fólki. Fjölskyldan sam- anstendur af hjónum, banda- rískum manni sem á efna- verksmiðju, norskri konu hans og þrem krökkum sem voru reyndar öll farin að heiman og stunduðu nám f háskóla. Þetta er eitthvert besta fólk sem ég hef kynnst. Þau heim- sóttu mig áður en ég fór út og við urðum strax miklir vinir. Konan hafði fyrst komið til Bandaríkjanna sem skiptinemi og kynnst þar eiginmanni sín- um. Hún skildi því mjög vel hvernig mér leið.“ Árni Páll dvaldi í New York- fylki, f bæ sem er um þriggja til fjögurra tíma keyrslu frá New York-borg. Hverfið, sem hann bjó f, er fremur rík- mannlegt og til að mynda bjó hann í einbýlishúsi sem lá að stöðuvatni sem er 65 kíló- metra langt. Átti fjölskyldan bæði hraðbát og seglbretti svo auðvelt reyndist að stunda þar ýmsar vatnaíþrótt- ir. Skólinn, sem Árni gekk í, var þó ekki aðeins skóli efn- aðra unglinga því hann sóttu einnig krakkar úr fátækari hverfum. Bjuggu þau mörg hver við mjög bág kjör og til að mynda varð ekkert úr fyrir- huguðu skólaferðalagi til Boston vegna þess hve fáir nemendur áttu fyrir kostnaðin- um. „Ég átti langerfiðast með að aðlagast bandaríska skóla- kerfinu og bandarískum krökkum. Sem skiptinemi hafði ég þó mikið val um námsgreinar og sótti meðal annars tíma í arkitektúr og leiklist. Einnig er það skylda allra AFS-skiptinema í Banda- ríkjunum að sækja tíma í sögu Bandaríkjanna. Sama stundataflan var alla daga vik- unnar og það var ansi þreyt- andi til lengdar. Félagslíf í skólanum bygg- ist að mestu leyti á íþróttum og æfði ég bæði knattspyrnu og frjálsar íþróttir. Þannig kynntist ég auðvitað fullt af krökkum. Flestir krakkanna voru ítalskir innflytjendur og varð ég lítið sem ekkert var við kynþáttafordóma enda voru aðeins tveir negrar í skólanum, það var nú öll lita- dýrðin. Skólinn var mjög lítill og vorum við aðeins fimmtíu sem útskrifuðumst þetta ár. í skólanum var mikill klíku- skapur og því komst ég ekki inn í vinahópinn sem ég hafði augastað á fyrr en eftir tæpt ár. Reyndar varð ég fyrir þeirri leiðinlegu reynslu að besti vinur minn í skólanum fórst í bílslysi ásamt yngri bróður sínum. Þegar maður þarf að takast á við svo mikla erfiðleika lærir maður að meta margt f lífinu sem maður tók áður sem sjálfsögðum hlut. Þó ég hafi eytt síðari hluta ársins að miklu leyti í að skemmta mér lærði ég margt um lífið og öðl- aðist dýrmæta reynslu sem ég vildi ekki skipta á fyrir neitt annað. Krakkarnir, sem ég var mest með, voru frekar mikið fyrir að skemmta sér. Fjöl- skyldan, sem ég var hjá, var alls ekki ströng og ég mátti vera úti langt fram eftir nóttu en það var erfitt að venjast því að flestir félagarnir þyrftu að vera komnir heim til sín á miðnætti um helgar. Það voru engir skemmtistaðir opnir fyrir krakka á þessum aldri en partí voru því algengari. Reyndar stöðvaði lögreglan öll partí ef hún hafði spurnir af þeim og gerði allt áfengi upp- tækt en áfengisneysla er al- gjörlega bönnuð krökkum undir 21 árs aldri. 24 VIKAN 26. TBL. 1992 TEXTI: SIGRÚN SIGURÐARDÓHIR/UÓSM.: PÁLLÁSGEIR

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.