Vikan - 28.12.1992, Qupperneq 66
MARGRET HRAFNSDOTTIR SKRIFAR
OG HEYRT í HOLLYWOOD
Sæl aftur og takk fyrir
síðast. Hollywood, heyr
þú mína bæn gæti það
veriö sem allir þessir ungu
leikarar hér eru að biöja við
rúmstokkinn sinn svona um
það leyti sem ég er að leggj-
ast á koddann minn. í þaö
minnsta verður vart þverfótað
hér fyrir leikurum í öllum
mögulegum og ómögulegum
störfum, nema við leik. Það er
í þessu eins og svo mörgu
öðru; margir eru um hituna og
oft rætist draumur leikarans
aldrei nema í dagdraumum.
Og þó...
Draumur ungu stúlkunnar,
sem að dómi föður og kær-
asta kunni að syngja, rættist
heldur betur og Madonna hef-
ur aldeilis látið 1 sér heyra,
gefið út hverja stórplötuna á
fætur annarri. Eitthvað hefur
þó boriö við að stúlkukindin
sé einmana en það er auðvit-
að ekki alit fengið með frægð-
inni, eða hvað? Madonna hef-
ur nú gefið út bók og plötu og
er yrkisefnið að þessu sinni
kynlíf og erótík. í einhverju
skrautlegasta bókarkynning-
arpartíi sem sögur herma
kynnti stjarnan afurðir sínar
hálfber við feikilegan fögnuð
viöstaddra. Velta æ fleiri fyrir
sér hvað við taki hjá lista-
manninum en vinkona henn-
ar, leikkonan Rosie O’Donn-
ell, segist ekki í neinum vafa
um hvað skynsamlegast væri
að gera. Móðurhlutverkið gæti
• •
A ÆÐRISTOÐUM
orðið listamanninum upp-
spretta hugmynda og lífs-
reynslu fyrir næsta áfanga á
ferlinum. Þá vitum við það,
kannski veit hún meira en við.
Viö fylgjumst alla vega með.
Það er einkennandi fyrir all-
ar þær góðu myndir sem
koma út nú með haustinu að i
þeim rennur nýtt leikarablóð
og er það vel. Án efa er or-
sökin í bland hin ógnarháu
leikaralaun sem „stórstjörn-
urnar“ hafa krafist fyrir störf
sín á undanförnum árum. Má
nefna leikara á borði við
Bridget Fonda, Cambell Scott
og Matt Dillon sem hafa öll
komið fram í kvikmyndum á
síðasta ári og slegið í gegn.
Eitthvað er breytt og ann-
aðhvort kreppan eða aukin
samkeppni frá þessu nýja
hæfileikafólki hlýtur aö valda
því að æ meira ber á því að
„gömlu stjörnurnar” vinni sam-
an, jafnvel hnappi sig saman í
einni og sömu myndinni. Er
þetta sannarlega breyting frá
því sem áður var þegar slíkt
gerðist aldrei nema í stór-
myndum á borð við biblíu-
myndir og aörar sögulegar
flugeldasýningar. Þegar betur
er að gáð kemur þó í Ijós að í
kreppunni hefur framleiðsla á
bíómyndum dregist saman.
Færri myndir eru gerðar og
því verða æ fleiri súperstjörn-
ur að láta sér lynda að leika í
aukahlutverkum, jafnvel smá-
hlutverkum, til að halda sér á
floti.
Þeir sem vel þekkja til (
Hollywood eru á því að hlut-
irnir hafi lítiö breyst frá því
stúdíókerfin voru og hétu.
Ungar leikkonur alls staðar að
halda áfram að koma til fyrir-
heitnu borgarinnar í leit að
frægð og frama og það er fátt
sem þær myndu ekki gera til
þess að sjá drauminn rætast.
í nýlegri grein í einu dagblað-
anna kom fram barátta ungra
leikara gegn misnotkun
manna og kvenna á æðri
stöðum á aðstöðu sinni. Ný-
legar tölur benda eindregið til
aö sértu ekki til í tuskið, innan
gæsalappa, eigirðu á hættu
að komast aldrei lengra en
inn í fordyrið. Þetta er nú ekk-
ert nýtt, segja menn og vísa
máli sínu til stuðnings til
þeirra tíma þegar framleið-
endur í Hollywood drottnuðu
yfir örlögum stjarna sinna sem
oft gerðu allt fyrir hlutverk á
hvíta tjaldinu. Nú er þó svo
komið að fólk segist ekki láta
bjóða sér slíkt því þessi siður
sé til þess eins fallinn aö
drepa alla listræna viðleitni í
dróma og tryggja að þeir sem
eitthvað geta gefist upp á
kvikmyndaborginni í eitt skipti
fyrir öll.
Ég segi nú bara við strák-
ana að ef þeir hafi ekki önnur
ráð en að þröngva sér upp á
ungar, upprennandi og skjálf-
andi hæfileikakonur, sem eru
helteknar af ofurást á þessum
áleitna miðli, þá hafi þeir nú
ekki mikið reynt, blessaðir!
Jæja, vinir mínir, það væri
synd aö segja að kvikmynda-
vélarnar, Ijósin og leikurinn
séu ekki til staðar hér því
önnur eins súpa af góðum
myndum hefur ekki komið í
einum belg og einni biðu í
langa tíð. Er því mikil kvik-
myndaveisla hjá unnendum
hér ytra. Ég ætla því að
bregða mér í bíó núna og bið
aö heilsa í bili en það verður
margt heyrt í Hollywood og
séð þar til að næst. Tryggið
ykkur því eintak - og eitt til -
handa ömmu. □
66 VIKAN 26. TBL. 1992