Vikan - 28.12.1992, Blaðsíða 70
JÓN ÁSBJÖRNSSON SEM Á ÁRINU HLAUT „LYKIL FRAMTÍÐAR"
HER
GETA
ALLIR
LIFAÐ
GÓÐU
LÍFI"
▼ Margrét
Hrafnsdótt-
ir gerir
grein fyrir
niöurstöö-
um dóm-
nefndar
sem stend-
ur hjá. F.h.
Þórarinn
Jón
Magnús-
son, rit-
stjóri
Vikunnar,
Herluf
Clausen,
Jóhann G.
Bergþórs-
son, Elsa
Haralds-
dóttir,
Svava
Johanson,
Höröur
Gunnars-
son,
Magnús
Oddsson
og Jón Ás-
bergsson.
Svonefnt Gala-kvöld Aka-
demíu Café Óperu var
haldið seint á þessu ári í
annað sinn en þá var veittur
hinn svokallaði „Lykill framtíð-
ar“ sem fimm manns höfðu
verið nefndirtil.
Akademíuna starfsárið
1992-93 skipa þau Ágúst Ein-
arsson, Elsa Haraldsdóttir,
Herluf Clausen, Hörður Gunn-
arsson, Jóhann G. Bergþórs-
son, Jón Ásbergsson, Kristinn
Björnsson, Magnús Oddsson,
Svava Johansen og Þórarinn
Jón Magnússon. Það er hins
vegar Margrét Hrafnsdóttir
sem hefur borið hitann og
þungann af starfseminni.
Þessi hópur hafði tilnefnt
fimm menn sem öllum var
boðið til kvöldverðar og dag-
skrár í Café Óperu af þessu
tilefni; þá Geir A. Gunnlaugs-
son, Friðrik Þór Friðriksson,
Gísla Örn Lárusson, Jóhann-
es Jónsson og Jón Ásbjörns-
son. Ástæðuna sagði dóm-
nefndin vera þá að þessir
menn hefðu sýnt það og
sannað að þar færu framúr-
skarandi einstaklingar hver á
sínu sviði, „menn sem hafa
fengið hugmyndir, þróað þær
og komið í framkvæmd, sýnt
áræði og hugvitsemi og verið
öðrum hvatning til dáða“.
Það var Jón Ásbjörnsson
sem var útnefndur sem fremst-
ur á meðal jafningja. Hann rek-
ur samnefnt fyrirtæki á sviði
innflutnings og útflutnings.
Rökstuðningur Akademíunnar
fyrir vali hans var eftirfarandi:
„Jón Ásbjörnsson hefur
stundað innflutning á vörum
fyrir sjávarútveg í fjöldamörg
ár. Hann braut blað í 60 ára
einokun SÍF í saltfiskútflutn-
ingi, er hann fékk leyfi við-
skiptaskrifstofu utanrfkisráðu-
neytisins til þess að flytja
beint út íslenskan saltfisk,
unninn á íslandi, til annars
stærsta saltfiskmarkaðar í
heimi - Spánar.
Til þess að hljóta slfkt leyfi
þurfti Jón að fá betra verð fyrir
vöruna, sem hann gerir með
því að senda saltfiskinn unn-
inn beint til dreifingaraðila,
fram hjá milliliðum og með því
að framleiða samkvæmt eftir-
spurn.
Jón Ásbjörnsson hefur því
með framtaki sínu stuðlað að
samkeppni á faglegum grunni
sem öllum ætti að vera til
hagsbóta í framtíðinni. Að
mati Akademfunnar getur
þessi útflutningur Jóns hvatt
menn til dáða. Hann hefur
jafnframt verið stór aðili í út-
flutningi fyrir aðra framleið-
endur og er því samnefnari
fyrir kynslóð manna í þessari
atvinnugrein.
Jón Ásbjörnsson er annar
stærsti útflytjandi landsins á
saltfiski, með stóran hluta af
gjaldeyristekjum íslendinga í
sjávarútvegi."
Tákn Akademíunnar, „Lykill
framtíðar", er hannað og
smfðað af Sigurði Steinþórs-
syni gullsmið hjá Gulli og silfri.
10 SPURNINGAR UM
ÁRAMÓT
Hver er svo Jón Ásbjörnsson í
raun og veru og'hver ætli séu
helstu sjónarmið hans í lífinu?
Blaðamaður Vikunnar hitti
hann að máli og lagði fyrir
hann tíu spurningar sem ættu
að geta gefið svolitla mynd af
manninum, nú þegar árang-
ursríku ári er að Ijúka.
Hann er lengst til vinstrl á myndinni ásamt þeirn Friöriki Þór
Friörikssynl, Gísla Erni Lárussyni og Geir A. Gunnlaugssyni
sem efnnfg voru tilnefndir.
Jón Asbergsson afhendir nafna sínum Ásbjörnssyni „Lykil framtíöar". Magnús Oddsson fylg-
ist meö.
70 VIKAN 26.TBL. 1992