Vikan - 11.03.1993, Síða 7
HEIMIR STEINSSON UTVARPSSTJORI:
Þegar Markús Örn
Antonsson varð óvænt
borgarstjóri losnaði
staða útvarpsstjóra og hafi
borgarstjóraupphefð Markús-
ar Arnar komið á óvart kom
skipun Ólafs G. Einarssonar
menntamálaráðherra í stöðu
útvarpsstjóra enn meira á
óvart. Hún olli ólgu og flokka-
dráttum um víðan völl og ekki
síst í Sjálfstæðisflokknum.
Séra Heimir Steinsson kom
frá Þingvöllum, sá og sigraði
og hefur nú setið í embætti í
eitt og hálft ár. Ég mælti mér
mót við Heimi á skrifstofu
hans á efstu hæð Útvarps-
hússins við Efstaleiti. Hann
flaggaði að vísu ekki fyrir mér
en heilsaði alúðlega og bauð
upp á kaffi og risastórar klein-
ur. Þegar ég kom í húsið frétti
ég að fundur stæði yfir um
niðurskurð á Rás 1 vegna
fjárhagserfiðleika. Er mikill
niðurskurður fyrirhugaður?
„Nei, ekki mikill sem betur
fer. Við fengum fjögurra pró-
senta hækkun á afnotagjöld-
um en báðum reyndar um tíu
prósent. Það verður að skera
niður alls staðar. En við erum
að vona að okkur takist að
halda öllu svona nokkurn veg-
inn úti þrátt fyrir þetta. Rás 1
verður alls ekki látin bera
þyngri byrðar en aðrir."
- Það á þá ekki að fara að
segja upp starfsfólki í stórum
stíl.
„Nei, það eru engin áform
uppi um það.“
VERÐ EKKI VAR
VIÐ SAMKEPPNI
-Finnst þér samkeppnin við
Stöð 2 og Bylgjuna eðlileg og
heilþrigð?
„Ég verð ekki mjög mikið
var við þessa samkeppni
sjálfur, ég verð nú að viður-
kenna það. Ég varð miklu
meira var við samkeppni milli
danska sjónvarpsins og TV 2
um daginn þegar ég var í
fimm daga á hóteli í Kaup-
mannahöfn og eyddi kvöldun-
um beinlínis ( að liggja yfir
sjónvarpinu. En ég ligg ekki
mikið yfir Stöð 2 og þessi
samkeppni er ekki nærgöngul
við mig til eða frá. Við erum
með töluvert frábrugðið efni, í
öllum skilningi. Við leggjum
mikla áherslu á innlenda dag-
skrárgerð sem Stöð 2 gerir lít-
ið af. Þeir eru meira í vönduð-
um erlendum kvikmyndum, ég
held að það sé engin ástæða
til þess að draga úr því. Það
er þá þeirra deild ef svo má
segja.
Samkeppni um fréttir kemur
af sjálfu sér og verður varla
hjá því komist þegar tveir aðil-
ar eru að segja sömu fréttirn-
ar. Þar finnst mér við ekki fara
neitt halloka. Stöð 2 er
kannski stundum svolítið ný-
tískulegri og glannalegri, ligg-
ur mér við að segja, en ég er
hins vegar sannfærður um að
okkar fréttastofa heldur uppi
mjög málefnalegum frétta-
flutningi og það skiptir mig
mestu - að fréttir séu fræðsla.
Það er mikilvægt að maður
viti eitthvað um það sem verið
er að segja, ekki bara að ver-
ið sé að skemmta manni með
hasar. Ég hef ekkert á móti
hasar en vil bara ekki hafa
hann í Ríkisútvarpinu."
- Nú sýna skoðanakannan-
ir að Stöð 2 virðist sífellt
sækja á í samanburði við
Sjónvarpið.
■po
oo
ÖO
CD
5. TBL. 1993 VIKAN 7